DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Grace in Lace

Kjóll heklaður ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuttum ermum úr DROPS Safran. Stærð S - XXXL.

DROPS 175-30
DROPS Design: Mynstur e-263
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
500-550-600-650-700-750 g litur 50, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 12 stuðlar og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GATAMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. A.2 sýnir hvar umferðin byrjar og endar þegar A.1 er heklað (A.2 kemur í viðbót við A.1, þ.e.a.s. A.2 kemur ekki í stað fyrstu lykkju).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Hver umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Hver umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar.
Umferð 2 og 5 í A.3 byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

MYNSTUR-1 (á við um fram- og bakstykki):
Heklið A.3. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru heklaðar 5-6-8-9-10-11 umferðir með 1 stuðli í hvern stuðul, heklið síðan A.3 einu sinni til viðbótar.

ÚTAUKNING-/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 258 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 17,2. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 17. hverja lykkju. Ef á að fækka lykkjum þá eru heklaðar 16. og 17. hver lykkja saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju.

ÚTAUKNING-2:
Heklið þar til 2 stuðlar/loftlykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í/um næsta stuðul/loftlykkju (= 1 stuðull fleiri), heklið 1 stuðul í/um hvern og einn af næstu 2 stuðlum/loftlykkjum, prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla/loftlykkja, heklið 2 stuðla í/um næsta stuðul/loftlykkju (= 1 stuðull fleiri). Endurtakið útaukningu við hvert prjónamerki.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig:
Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin þá er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan og heklað er ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Heklið 146-146-155-155-163-163 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Safran og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðull í hverja af næstu 5-5-0-0-1-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 126-126-133-133-140-140 stuðlar (meðtaldar 3 loftlykkjur í byrjun umferðar). Heklið síðan A.1 hringinn (= 18-18-19-19-20-20 mynstureiningar 7 lykkjur – A.2 sýnir hvernig hver umferð í A.1 byrjar og endar og kemur sem viðbót til A.1). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 eru sett 8 prjónamerki í stykkið og heklað þannig: Heklið eins og útskýrt er í mynsturteikningu og aukið út eins og útskýrt er frá að neðan – LESIÐ ÚTAUKNING-1: Heklið 29-29-31-31-33-33 stuðla og aukið út 0-0-0-1-0-0 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki í stykkið, heklið 4 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki, heklið 42-42-44-44-46-46 stuðla og aukið út 0-1-1-2-1-1 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 stuðla og aukið út 2-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 58-58-62-62-66-66 stuðla og aukið út 0-0-0-2-0-0 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 stuðla og aukið út 1-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= framstykki), heklið 42-42-44-44-46-46 stuðla og aukið út 0-1-1-2-1-1 stuðla jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki, heklið 4 stuðla og aukið út 1-4-4-4-4-4 stuðla, setjið 1 prjónamerki (= ermi), heklið 29-29-31-31-33-33 stuðla og aukið út 0-0-0-1-0-0 stuðla jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 222-234-246-252-258-258 stuðlar í umferð. Stykkið mælist ca 9 cm.

Heklið 0-0-0-0-2-2 umferðir með 1 stuðli í hvern stuðul og aukið út 0-0-0-0-12-15 stuðla jafnt yfir í hverri umferð – LESIÐ ÚTAUKNING-/ÚRTAKA (= 0-0-0-0-24-30 stuðlar alls) = 222-234-246-252-282-288 stuðlar. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Endurtakið A.3 alls 37-39-41-42-47-48 sinnum á breidd. Í 2. umferð (þ.e.a.s. umferð með stuðlum) aukið út við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og aukið út 2-8-8-8-8-8 stuðla jafnt yfir í umferð (= 2 stuðlar fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 stuðlar útauknir jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 stuðlar fleiri í umferð) = 240-258-270-276-306-312 stuðlar. A.3 er endurtekið nú 40-43-45-46-51-52 sinnum á breidd. Endurtakið útaukningu í síðustu umferð A.3 (þ.e.a.s. 2 stuðlar fleiri við hvert prjónamerki og 2-8-8-8-8-8 stuðlar fleiri jafnt yfir = alls 18-24-24-24-24-24 stuðlar fleiri í umferð)= 258-282-294-300-330-336 stuðlar.
* Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið 1 umferð stuðla og aukið út 18-18-16-17-24-26 stuðla jafnt yfir *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-3-2-3 sinnum = 276-300-326-351-378-414 stuðlar. Heklið 0-1-1-0-1-0 umferðir með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 39-43-47-51-57-64 stuðlunum (= hálft bakstykki), heklið 8 loftlykkjur, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 stuðla frá fyrri umferð (= ermi), 1 stuðull í hvern af næstu 78-86-94-103-114-128 stuðlum (= framstykki), 8 loftlykkjur, hoppið yfir 60-64-69-73-75-79 stuðla frá fyrri umferð (= ermi), 1 stuðull í hvern af síðustu 39-43-47-51-57-64 stuðlum (= hálft bakstykki) = 172-188-204-221-244-272 stuðlar/loftlykkjur í umferð. Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í umferð, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul/loftlykkju. Heklið 1 umferð til viðbótar með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið JAFNFRAMT um 4-2-0-5-4-2 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ÚRTAKA = 168-186-204-216-240-270 stuðlar.
Heklið nú MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-10-11-12-13-14 cm, passið að næsta umferð sé umferð með stuðlum, fækkið um 6-12-12-6-6-6 l jafnt yfir = 162-174-192-210-234-264 stuðlar. Haldið áfram með mynstur-1. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm aukið út um 6 stuðla jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA og ÚTAUKNING-1. Aukið svona í 3. hverri umferð alls 12-12-12-12-14-14 sinnum = 234-246-264-282-318-348 stuðlar. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá prjónamerki (allur kjóllinn mælist ca 71-74-77-80-83-86 cm), heklið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er hekluð 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul. Heklið síðan 1 umferð með fastalykkjum með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Kjólinn mælist ca 76-79-82-85-88-91 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju á 8 loftlykkjum sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið 3 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 3 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir ermi, heklið 1 stuðul í hverja og eina af þeim 4 loftlykkjum sem eftir eru undir ermi = 68-72-77-81-83-87 stuðlar í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

STÆRÐ S + M:
Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið JAFNFRAMT um 2-0 stuðla jafnt yfir = 66-72 stuðlar.

STÆRÐ L + XL + XXL + XXXL:
Heklið 1 umferð með stuðlum með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið JAFNFRAMT út 1-3-1-3 stuðla jafnt yfir = 78-84-84-90 stuðlar.

ALLAR STÆRÐIR:
= 66-72-78-84-84-90 stuðlar. Heklið stuðla í hring með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum. Heklið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka er hekluð 1 umferð með stuðlum í hvern stuðul. Heklið síðan 1 umferð fastalykkjur með 1 fastalykkju í hvern stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina alveg eins.

HÁLSMÁL:
Heklið fram og til baka frá miðju að aftan – ATH: Heklað er í loftlykkjurnar þar sem stuðlar voru heklaðir, en ekki hekla í loftlykkjurnar sem hoppað var yfir = 126-126-133-133-140-140 lykkjur. Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 16-16-18-18-20-20 lykkjum, * 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 tvöfaldur stuðull í hverja af næstu 19 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum *, 1 fastalykkja í hverja af næstu 32-32-35-35-38-38 lykkjum, endurtakið frá *-* 1 sinni og heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af síðustu 16-16-18-18-20-20 lykkjunum. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 20-20-22-22-24-24 lykkjum, ** 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, 1 stuðull í hverja af næstu 3 lykkjum, * heklið næstu 2 tvöfalda stuðlana saman *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, 1 stuðul í hverja af næstu 3 lykkjur, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 lykkjur **, 1 fastalykkja í hverja af næstu 38-38-41-41-44-44 lykkjur, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar og endið með 1 fastalykkju í hverja af síðustu 20-20-22-22-24-24 lykkjum = 114-114-121-121-128-128 lykkjur. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.05.2017
Heklleiðbeiningar: ...Umferð 2 og 5 í A.3 byrjar með 3 loftlykkjum, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = KÚLA: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull um loftlykkjuhringinn, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um sama loftlykkjuhring.
symbols = heklið 6 loftlykkju, 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá heklunálinni, snúið loftlykkjuhringnum (þ.e.a.s. haldið áfram að hekla í sömu átt), heklið síðan kúlu
symbols = heklið 1 stuðul í stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar í sama stuðul og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sama loftlykkjuboga og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = það á ekki að hekla fyrstu umferð, hún hefur nú þegar verið hekluð, en sýnir hvernig næsta umferð er hekluð í stuðla

symbols = keðjulykkja
symbols = heklstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Grace in Lace

Mayra Aguilar, United States

Grace in Lace

Paťka, Slovakia

Grace in Lace

Fairy Mae Manahan, Norway

Grace in lace

SaraČara, Slovenia

Milky dress

Olga, Russian Federation

Frocktails dress

Shelley, Australia

Šaty

Danidula, Czech Republic

175-30 Grace in Lace

Kristin, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (118)

country flag Alecia Flores wrote:

Your reply to Ms. Bauer 'there are now 6dc over 4 dc from the previous round' has confused me. The pattern has the increases on the last row of A1, should I complete the last row with the 4dcs per ch5 sp and do increases on the next row?

17.10.2023 - 22:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Flores, the increases in A.1 are evenly distributed between first and last row, you start working A.1 over 7 sts and repeat whole diagram all the round (insert marker between each repeat can help you keeping tracking); and you should have 3 chain-spaces in each A.1 on the next to last round. Work then last round (4 dc in each ch-space) increasing evenly as explained in the written pattern (you might have then more than 4 dc in some ch-spaces). Happy crocheting!

18.10.2023 - 08:27

country flag Alecia Flores wrote:

I submitted a questions, & got a note it was too long. I used all the characters allowed, so what happened to my question?

17.10.2023 - 08:31

country flag Marthe81 wrote:

Hei! Når man skal hekle bol og armer, står det at disse skal hekles hver for seg. Men, de 8 luftmaskene, skal det hekles i de både på bolen, og etterpå når det skal hekles i ermene, altså at man hekler både på "oversiden og undersiden"?. Hvis ikke forstår jeg ikke hvordan det skal hekles for å bli pent/riktig?

31.07.2023 - 10:45

DROPS Design answered:

Hej Marthe, se videoen nederst i opskriften hvordan du deler arbejdet og fortsætter bolen for sig først og så ærmerne :)

07.08.2023 - 11:36

country flag Paula Terreur wrote:

Halsrand (XL) : de eerste 22 steken, moet 24 steken worden en ook op het einde. Totaal steken = 123 steken.

29.07.2023 - 11:36

country flag Bianca Nägeli wrote:

Hallo Grösse S: Ich bin bei der letzten Reihe von A1. Ich verstehe die Zunahmen nicht. 29 M (etwas mehr als 2 Rapporte) häkeln, danach 0 Zunahmen, danach 4 M häkeln und 2 M verteilt zunehmen = halbes Rückenteil? Gemäss Maschenanzahl wäre doch das halbe Rückenteil erst nach 4,5 Rapporten? Ich verstehe es nicht.

12.06.2023 - 09:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nägeli, hier zählen Sie nicht die Rapporte, nur die Maschen, dh häkeln Sie zuerst die ersten 29 Stäbchen (= halbes Rückenteil), dann häkeln Sie 4 Stäbchen aber gleichzeitig nehmen Sie 2 Stäbchen regelmäßig verteilt (es sind jetzt 6 Stb über 4 Stb), usw, dh häkeln Sie einfach die letzte Reihe A.1 aber ohne die Rapporte zu zählen, nur die Maschen. Viel Spaß beim häkeln!

12.06.2023 - 13:35

country flag Cindy wrote:

Beste, heb het gevonden. Het is dus 5 maal dubbele stokjes samen haken, dus van * tot * en niet van ** tot *. Ik was wat verward daar. (Even ter correctie van mijn vorig bericht. ) Met vriendelijke groet Cindy

03.05.2023 - 01:58

country flag Cindy wrote:

Hallo, Ik ben aan de laatste ronde van de hals bezig en daar staat, (** 1 half stokje in elke van de volgende 3 steken, 1 stokje in elke van de volgende 3 steken, * haak de volgende 2 dubbele stokjes samen *, herhaal van *-* nog 5 keer,). Ik vermoed dat herhaal nog 5 keer van * tot * , 1 keer moet zijn ipv 5 keer of ben ik mis? Prachtige jurk trouwens. Met vriendelijke groet Cindy

01.05.2023 - 18:39

country flag Iza wrote:

Witam, na sam koniec sukienki pisze "Przerobić 1 okrążenie oczek ścisłych. Zakończyć." Często widzę takie sformułowania. Czy to znaczy że po okrążeniu oś robimy jeszcze okrążenie oz? Czy zakończyć to znaczy po prostu zacisnąć supełek z włóczki?

25.02.2023 - 16:03

DROPS Design answered:

Witaj Izo, zakończyć znaczy zacisnąć supełek. Pozdrawiamy!

27.02.2023 - 08:57

country flag Juju wrote:

Hallo! Ich habe gerade mit dem Häkeln angefangen und versuche die Anleitung zu verstehen, worauf beziehen sich diese Zahlen aus dem Passe N, je 1 Stäbchen in die nächsten 5-5-0-0-1-1 Luftmaschen,?? Danke für die Antwort.

03.02.2023 - 23:10

DROPS Design answered:

Liebe Juju, das Kleid ist in 6 Größen geschrieben, und hier sind die jeweiligen Zahlen für die jeweiligen Größen beschrieben, dh in S und M häkeln Sie je 1 Stäbchen in die nächsten 5 Luftmaschen, in L und XL häkeln Sie hier kein Stäbchen (dies überspringen) und in XXL und XXXL häkeln Sie 1 Stäbchen in die nächste Luftmasche. Viel Spaß beim häkeln!

06.02.2023 - 09:10

country flag Sienna wrote:

If you watch the tutorial of A1/A2 for pattern 175-30 the first round finishes with no dc it joins in the round after the last repeat but in this tutorial there are two dc done before joining in the round. The two tutorials are different that’s why I was getting so confused following this one.

04.07.2022 - 14:56

DROPS Design answered:

Dear Sienna, that's correct and as shown in diagram, A.1 ends with 2 chain stitches, skip 2 stitches - when working this at the end of the round, crochet a slip stitch in the 3rd stitch from the beginning of the round (= A.2). Happy crocheting!

04.07.2022 - 16:38