Edneia skrifaði:
Amei esse projeto
15.08.2020 - 21:44
Danielle skrifaði:
In toer 14 staat dat er 10 steken gemeerderd moeten worden om op 120 steken in totaal uit te komen, dit moeten er 3 zijn omdat je in toer 13 al 117 steken hebt.
23.06.2017 - 15:29DROPS Design svaraði:
Hallo Daniëlle, Ik denk dat je gelijk hebt en ik zal het even doorgeven aan de afdeling design om aan te passen. Bedankt voor het doorgeven?
01.07.2017 - 12:09
Paola skrifaði:
Vorrei acquistare il cotone per eseguire questa borsa (DROPS 175-4 Acapulco), ma non riesco a capire cosa fare al """"GIRO 14: Lavorare in tondo seguendo il diagramma A.2, ma sul primo giro, aumentare 10 maglie a intervalli regolari (= 10 ripetizioni in larghezza) = 120 mezze maglie alte."""" non tornano i conti: se aumento 10 maglie ottengo 127 (117+10=127); se invece devo avere 120 maglie devo aumentare soltanto 3 maglie (117+3=120). Ringrazio per il chiarimento.
22.04.2017 - 00:03DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola. Abbiamo corretto il testo. Si devono aumentare 3 maglie. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
22.04.2017 - 00:11
Lika skrifaði:
Where can I find this pattern please??
16.01.2017 - 15:27
Taco skrifaði:
Macht schon beim Anschauen gute Laune!
09.01.2017 - 19:03
Taco skrifaði:
Macht beim Anschauen schon gute Laune!
09.01.2017 - 18:52
Laura skrifaði:
Stupenda!
21.12.2016 - 20:21
Tammy skrifaði:
Love this
18.12.2016 - 02:02
Lauren McRoberts skrifaði:
Beautiful! Please include!
14.12.2016 - 13:34
Acapulco#acapulcobag |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð taska með marglitu mynstri úr DROPS Paris.
DROPS 175-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 ferningur = 1 hálfur stuðull. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta hálfa stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið síðan þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta hálfa stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og er alltaf til staðar þegar á þarf að halda. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hálfa stuðulinn í umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur, endið umferðina með 1 keðjulykkju í aðra loftlykkju. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring með hálfa stuðla. Fyrst er botninn heklaður með mynstri A.1 og útaukningar. Heklið síðan A.2 án útaukninga. Efst er hekluð gataumferð fyrir snúru. TASKA Heklið 5 loftlykkjur með kóral með heklunál 3,5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan í hring eftir mynsturteikningu A.1 (heklaðar eru 9 mynstureiningar af A.1 á breidd – LESIÐ LITAMYNSTUR! UMFERÐ 1: Heklið 9 hálfa stuðla um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 hálfa stuðla í hvern hálfa stuðul = 18 hálfir stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 hálfan stuðul í fyrsta hálfa stuðul, 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 27 hálfir stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 hálfan stuðul í hvorn af fyrstu 2 hálfu stuðla, 2 hálfir stuðlar í næsta hálfa stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 hálfir stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-13: Haldið áfram með útaukningu og mynstur eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 hálfur stuðull fleiri á milli útaukninga = 117 hálfir stuðlar. Aukið út um 9 hálfa stuðla í hverri umferð. UMFERÐ 14: Heklið í hring eftir A.2 með hálfa stuðla, í fyrstu umferð er aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir (= 10 mynstureiningar á breidd) = 120 hálfir stuðlar. Heklið A.2 1 sinni á hæðina, í umferð með ör er heklað þannig: Heklið 3 loftlykkjur, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 hálfan stuðul, 1 stuðull í næsta hálfa stuðul *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun umferðar. Í næstu umferð er heklaður 1 hálfur stuðull í hvern stuðul og hverja loftlykkju. Heklið A.2 til loka. Klippið frá og festið enda. SNÚRA: Klippið 6 þræði í hverjum lit ca 120 cm = 36 þræðir. Leggið þræðina saman og hnýtið lausan hnút, skiljið eftir ca 12 cm eftir hnútinn. Skiptið þráðunum í 3 alveg eins hluta með 12 þræði í hverjum hluta. Fléttið þrjá hlutana saman þar til fléttan mælist ca 68 cm. Skiptið þráðunum í 2 hluta. Þræðið 2 helmingunum í gegnum töskuna með 1 stuðuls millibili, í fjórðu umferð frá kanti. Hnýtið saman í hnút á utanverðri töskunni. Takið upp hnútinn frá byrjun á fléttu og festið endann við töskuna alveg eins, nema í gagnstæðri hlið. Gerið aðra fléttu alveg eins – sjá mynd. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #acapulcobag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.