Chieri skrifaði:
Hi! Is the gauge measured flat or in the round?
12.03.2026 - 16:37DROPS Design svaraði:
Hi Chieri, We recommend that you work a swatch flat (a small knitted square of at least 10 x 10 cm), to measure your knitting tension and get the right gauge. Regards, Drops Team.
13.03.2026 - 06:10
Barbara skrifaði:
Sono bloccata e non riesco a capire questo passaggio: ho inserito i 6 marcapunto come da voi indicato. Quando arrivo al 2 rigo di A3 faccio 1 gettato, 1 passata e 1 accavallata, 4 maglie a diritto, 2 insieme a diritto, 1 gettato, 1 diritto, 1 gettato e devo fare 1 passata e 1 accavallamento ma trovo il marcapunto nel mezzo alle 2 maglie. E’ corretto e devo spostare il marcapunto? Grazie siete sempre preziosi….
01.03.2026 - 10:07DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, al momento non ci sono correzioni previste per il modello, sposti il segnapunti verso l'alto durante il lavoro. Buon lavoro!
01.03.2026 - 21:06
Barbara skrifaði:
Ho bisogno di aiuto..ho inserito i 6 marcapunto come da voi indicato. Quando arrivo al 2 rigo di A3 faccio 1 gettato, 1 passata e 1 accavallata, 4 maglie a diritto, 2 insieme a diritto, 1 gettato, 1 diritto, 1 gettato e devo fare 1 passata e 1 accavallamento ma trovo il marcapunto nel mezzo alle 2 maglie. E’ corretto e devo spostare il marcapunto? Grazie siete sempre preziosi….
17.02.2026 - 14:33DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, al momento non ci sono correzioni previste per il modello, sposti il segnapunti verso l'alto durante il lavoro. Buon lavoro!
01.03.2026 - 21:06
Angèle skrifaði:
Bonjour. Je ne comprends pas les diminutions pour les emmanchures. vous dites : au 1er tour après les côtes mousse rabattre 6 m au milieu des côtes et en même temps au 1er rang sur l'endroit diminuer pour les emmanchures. Merci de me préciser comment procéder à cette étape. En l'attente et avec mes remerciements Bien cordialement
03.06.2025 - 15:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Angèle, ceci se fait en 2 étapes: vous rabattez d'abord les mailles des emmanchures et vous terminez chaque partie séparément; tricotez maintenant les mailles du dos sur l'envers (en jersey avec 3 m point mousse de chaque côté), puis, au rang suivant sur l'endroit, vous commencez à diminuer pour l'emmanchure de chaque côté. Bon tricot!
04.06.2025 - 07:43
Satu skrifaði:
Kudon pyöröpuikoilla eli suljettuna neuleena. Olen kutonut kuvion A.2 mukaisesti siten, että rivit, joissa on kavennuksia/lisäyksiä on kudottu oikein ja välirivit nurin. Näin ollen kuvion viimeisin rivi on nurjaa. Kun jatkan kuvioon A.3, ensimmäisen (alimman) rivin pitäisi olla siis oikeaa ja kavennukset/langankierrot pitäisi tehdä nurjalla? Vai kuinka?
24.03.2024 - 20:29DROPS Design svaraði:
Hei, piirrokset näyttävät mallineuletta oikealta puolelta katsottuna. Eli kaikki tyhjät ruudut neulotaan oikein (kun neulot suljettua neuletta). Tällöin piirroksen A.2 viimeinen rivi neulotaan oikein.
27.03.2024 - 18:51
Elly skrifaði:
After completing A.5 it says "insert 1 marker on round." and measure from there. I don't understand. where do I place the marker?
03.03.2023 - 23:10DROPS Design svaraði:
Hi Elly, you can place the marker anywhere in the round - on the edge or in the middle - so that you can easily measure the distance from the round when you work ahead. Happy knitting!
05.03.2023 - 09:53
Elly skrifaði:
I have a question about the diagrams. the first instruction says to "choose diagram for your size." what does that mean? I'm making a size small. Also when the pattern says to work A.1 in the round = 10 repetions of 23 stitches, does that mean I repeat the entire 12 row A.1 pattern 10 times with decreases at row 10?
17.02.2023 - 00:02DROPS Design svaraði:
Dear Elly, this applies only to diagram A.6 - all remaining diagrams are the same for all sizes, when working A.6A and A.6B chosse the one for size S (below all diagrams, just above measurement charts). Happy knitting!
17.02.2023 - 11:55
Brigitte skrifaði:
Mes surjets ( glisser un maille, tricoter la suivante, rabattre la maille glissée sur la maille tricotée ) ne sont pas réguliers. Puis-je les remplacer par 2 mailles ensemble torses à l'endroit ?
18.07.2022 - 17:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Brigitte, vous pouvez, l'effet est le meme, la maille obtenue sera inclinee a gauche dans les 2 cas. Bon tricot!
24.07.2022 - 15:03
Anna skrifaði:
Jag är på bakstycket, har minskat till 58 maskor, men vet inte hur jag nu ska fortsätta. Instruktionen säger fortsätt mönstret med 3 kantmaskor i rätstickning i varje sida. Hur ska jag fortsätta med kombinationen som innan var 10rm, A6A, A6B, 20rm, A6A, A6B, 10rm, då det är mer än 58m? Sedan undrar jag hur jag stickar varje axel för sig? Helt ny på detta, och beskrivninen säger bara sticka som förut och maska av 1m på nästa varv från halsen?
19.03.2020 - 12:50DROPS Design svaraði:
Hej Du fortsätter att sticka A6A och A6B som tidigare så att mönstret stämmer och de minskade maskorna minskar du av de slätstickade i sidorna. När du gör varje axel färdig sen och ska maska av mot halsen ser du bara till att mönstret från diagrammen stämmer så att det passar mot det du stickat innan. Lycka till!
20.03.2020 - 10:23
Rikke skrifaði:
Har fundet løsningen på mit spørgsmål. Var en læse fejl
24.07.2019 - 20:52
Ribeira#ribeiradress |
||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með gatamynstri úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-10 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan merki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan merki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út hvoru megin við 1. og 4. merki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur í sléttprjóni (merkið er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt til að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp fyrir handveg, síðan er prjónað fram- og bakstykki fram og til baka hvort fyrir sig. KJÓLL: Fitjið laust upp 230-230-276-276-322-322 lykkjur á hringprjóna 5 með DROPS Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 23 lykkjur). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 210-210-252-252-294-294 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 21 lykkja). ATH: Í 7. umferð í A.2 færist umferðin til um 1 lykkju fram. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 180-180-216-216-252-252 lykkjur í umferð. Setjið 6 merki í stykkið þannig: 1. merki er sett í byrjun umferðar (= í hlið), 2. merki er sett á eftir næstu 10 lykkjum, 3. merkið er sett á eftir næstu 70-70-88-88-106-106 lykkjum, 4. merkið er sett á eftir næstu 10 lykkjum (= í hlið), 5. merki er sett á eftir næstu 10 lykkjum, 6. merki er sett á eftir næstu 70-70-88-88-106-106 lykkjum = 10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki. Látið merkin fylgja með í stykkinu. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið A.3 hringinn (= 10-10-12-12-14-14 mynstureiningar 18 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er næsta umferð prjónuð þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur (1. merkið er nú staðsett mitt í A.4 og A.4 á að falla fallega yfir götin í A.3), prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4. merki, prjónið A.4 yfir næstu 3 lykkjur og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram í sléttprjóni og A.4 í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-14-16-14-14-16 cm fækkið lykkjum á eftir 2. og 5. merki og á undan 3. og 6. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 3-4-2½-4-3-4½ cm millibili alls 13-10-15-11-15-10 sinnum = 128-140-156-172-192-212 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 51-52-54-56-58-60 cm (úrtöku er nú lokið), skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er skipt aftur til baka yfir á hringprjóna 5. Setjið 1 merki í umferðina – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umferð er prjónuð þannig: 10-13-17-17-22-27 lykkjur sléttprjón, A.6A (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), A.6B (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 20-26-34-34-44-54 lykkjur sléttprjón (merki í hlið er staðsett mitt í þessum lykkjum), A.6A (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur), A.6B (= 22-22-22-26-26-26 lykkjur) og 10-13-17-17-22-27 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm frá merki er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 cm frá merki = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið (6-6-7-9-11-13 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. merki – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð á eftir garðaprjóni eru felldar af miðju 6-6-8-12-16-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (3-3-4-6-8-10 lykkjur hvoru megin við 1. og 4. merki). Fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.6 eins og áður og prjónið 3 síðustu lykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-7-8-11 sinnum í hvorri hlið = 58-62-64-64-68-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 77-80-83-86-89-92 cm. Fellið nú af miðju 26-26-26-32-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 15-17-18-15-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af í garðaprjóni frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Prjónið áfram á sama hátt og á bakstykki og fækkið lykkjum í handvegi í hvorri hlið á sama hátt og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 66-69-71-74-76-79 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu), skiptist stykkið í miðju fyrir op fyrir hálsmáli og hvort framstykki er prjónað hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Haldið áfram fram og til baka yfir helming af lykkjum með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.6A við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 72-75-78-81-84-87 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu), setjið fyrstu 9-9-9-12-12-12 lykkjur frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 15-17-18-15-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til 1 umferð er þar til stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, en með úrtöku í gangstæðri hlið (þegar lykkjur eru settar á þráð fyrir hálsmáli er það gert frá réttu, ekki frá röngu). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HÁLSMÁL: Byrjið við miðju að framan og prjónið upp frá réttu ca 74 til 94 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ribeiradress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.