Ineke Van Dioxhoorn skrifaði:
Hoe kan ik alleen een breiboek bestellen? Ik wil graag het hele nr. 171 !! Help
10.09.2016 - 20:56DROPS Design svaraði:
Hoi Ineke. De breiboeken komen binnen 1-2 weken in de winkels. Neem contact op met jouw verkooppunt voor meer informatie.
12.09.2016 - 11:16
Mary-Ann Andersen skrifaði:
Hej Jeg er nu færdig med "første stykke" af denne opskrift. Jeg er sluttet ned 8 riller. Nu står der at jeg skal strikke stykket 20 gange Ialt, MEN!! Skal jeg starte med 8 riller igen, som der står i opskriften (Ialt 16 riller efter hinanden), eller er de 8 riller jeg sluttede med, de samme riller dom beskrives først i opskriften? Venligst Mary-Ann Andersen
10.08.2016 - 12:07DROPS Design svaraði:
Hej Mary-Ann. Jeg ville gentage fra: Fortsæt med forkortede p i retstrik således... Altsaa de forkortede pinde 1-6 med 6 masker mere for hver p fra retsiden.
16.09.2016 - 17:02
Gerda Meijer skrifaði:
Prachtig hoe het garen hier tot zijn recht komt!
29.07.2016 - 19:56
Beate skrifaði:
Klasse ein echter hingucker Freu mich schon aufs stricken
18.07.2016 - 04:45
Nicole skrifaði:
Ich liebe verkürzte Reihen und freue mich schon aufs Stricken der Jacke.
09.07.2016 - 11:46
Kris skrifaði:
This one is stunning , I love that it's different and the color is amazing. Cannot wait to make this , it's beautiful
30.06.2016 - 19:12
Christine Farris skrifaði:
I love the look of this sweater, Fingers crossed that it is crocheted!
25.06.2016 - 00:13
Marie Breward skrifaði:
Name suggestion : Autumn spiral Jacket
24.06.2016 - 21:46
Shannon Furnish skrifaði:
Great color way. Beautifully designed. Stunning model.
20.06.2016 - 06:54
Aubry Claudotte skrifaði:
Magnifique ! mon choix n° 1 dans la collection hiver 2016-2017. j'ai hâte d'en avoir les explications et d'en connaître le coloris. j'ai bien pensé au coloris "automne" mais le modèle me semble plus clair. bravo à toute l'équipe de chez Drops !
08.06.2016 - 15:37
Spectre#spectrecardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð hringpeysa úr DROPS Delight í garðaprjóni og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-25 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. STUTTAR UMFERÐIR MEÐ GARÐAPRJÓNI – MEÐ UPPSLÆTTI: Þegar snúið er við og slegið 1 sinni uppá prjóninn þá er komið í veg fyrir göt í stykkinu. Stuttar umferðir í garðaprjóni: Prjónið þann fjölda lykkja sem gefinn er upp í mynstrinu, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, lyftið þræðinum fram frá framhlið á stykki, setjið til baka óprjónuðu lykkjuna á vinstri prjóninn. Snúið stykkinu. Í næstu umf þegar komið er að lykkjunni sem tekin var óprjónuð af, prjónið lykkjuna og þráðinn sem liggur utan um hana (uppsláttinn) saman eins og ein lykkja og prjónið út umferðina. ÚTAUKNING: Þegar teknar eru upp fleiri l en eru í rönd í garðaprjóni (t.d. á að taka upp 140 l jafnt yfir næstu 132 röndum í garðaprjóni) takið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjóni og hinar l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn jafnt yfir á milli l. Þ.e.a.s. í þessu dæmi eru teknar upp 132 l í 132 röndum í garðaprjóni og slegið er uppá prjóninn alls 8 sinnum jafnt yfir = 140 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er prjónaður ytri hringur, síðan eru teknar upp l á styttri boganum á hringnum og hringirnir í miðjunni prjónaðir. YTRI HRINGUR: Stykkið er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 70-72-74-76-78-80 l á hringprjóna nr 4 með Delight. 1 STYKKI: Prjónið 14-14-14-14-16-16 umf garðaprjón (= 7-7-7-7-8-8 rönd með garðaprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar stuttar umf þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sl yfir fyrstu 60-66-66-66-66-66 l – LESIÐ STUTTAR UMFERÐIR Í GARÐAPRJÓNI – MEÐ UPPSLÆTTI, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl til baka, snúið við. UMFERÐ 3: Prjónið sl yfir fyrstu 54-60-60-60-60-60 l, snúið við. UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka, snúið við. UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir fyrstu 48-54-54-54-54-54 l, snúið við. UMFERÐ 6: Prjónið sl til baka, snúið við. Haldið svona áfram að prjóna stuttar umferðir í garðaprjóni. Þ.e.a.s. prjónið yfir 6 l færri í hverri umf frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6 l (= 20-22-22-22-22-22 umf garðaprjón, þegar prjónaðar hafa verið alls 34-36-36-36-38-38 umf með garðaprjóni þar sem stykkið er breiðast). Síðasta umf er frá röngu. Prjónið síðan stuttar umf þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sl yfir fyrstu 8 l, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl til baka, snúið stykkinu. UMFERÐ 3: Prjónið sl yfir fyrstu 14 l, snúið stykkinu. UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka, snúið stykkinu. UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir fyrstu 20 l, snúið stykkinu. UMFERÐ 6: Prjónið sl til baka, snúið stykkinu. Haldið áfram að prjóna stuttar umferðir í garðaprjóni þannig: Þ.e.a.s. prjónið yfir 6 l fleiri í hverri umf frá réttu þar til eftir eru 2-4-6-8-10-6 l á prjóni (= 22-22-22-22-22-24 umf í garðaprjóni). Síðasta umf frá röngu. Prjónið 14-14-16-16-16-16 umf garðaprjón yfir allar l. Nú hafa verið prjónaðar 28-28-30-30-32-32 umf garðaprjón þar sem stykkið er styst og 70-72-74-74-76-78 umf garðaprjón þar sem stykkið er breiðast. Stykkið mælist ca 7-7-7-7-8-8 cm þar sem stykkið er styst og ca 17-18-18-18-19-19 cm þar sem það er breiðast. Prjónið alls 20-20-20-21-21-21 stykki. Stykkið mælist nú ca 137-137-146-154-164-164 cm þar sem stykkið er styst og ca 341-351-361-379-389-400 cm þar sem það er breiðast. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman affellingarkantinn við uppfitjunarkantinn, í ystu lykkjubogana. HRINGUR Í MIÐJU: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna (skiptið yfir á sokkaprjóna þegar þörf er á) frá stystu hliðinni á ytri hringnum inn að miðju. Takið upp frá réttu með hringprjónum nr 4 þannig: Passið uppá að saumurinn komi niður að miðju að aftan. Takið upp 1 l í hverja og eina af fyrstu 35-37-40-41-43-45 röndum í garðaprjóni (þ.e.a.s. yfir næstu 70-74-80-82-86-90 umf), fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l (fyrir handveg), hoppið yfir næstu 35-37-39-41-43-45 rendur í garðaprjóni (= alls 70-74-78-82-86-90 umf), takið upp 134-140-144-150-154-158 l jafnt yfir næstu 140-132-142-151-164-156 rendur í garðaprjóni (= alls 280-264-284-302-328-312 umf) – LESIÐ ÚTAUKNING, fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l (fyrir handveg), hoppið yfir næstu 35-37-39-41-43-45 rendur í garðaprjóni (= alls 70-74-78-82-86-90 umf), takið upp 1 l í hverja af fyrstu 35-37-40-41-43-45 röndum í garðaprjóni (þ.e.a.s. yfir næstu 70-74-80-82-86-90 umf) = 276-290-304-316-328-340 l. Stykkið er prjónað í hring í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, til loka. Prjónið 1 umf br, setjið 5 prjónamerki og fækkið l jafnt yfir þannig: Fækkið um 0-2-4-4-4-4 l jafnt yfir alla umf og prjónið þannig: * 46-48-50-52-54-56 l br, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið síðustu 46-48-50-52-54-56 l br = 276-288-300-312-324-336 l. Í næstu umf er l fækkað þannig: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), * prjónið þar til 3 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman (= 1 l færri), 1 l sl (= alls 12 l færri). Fækkið l svona í 4. hverri umf þar til 24 l eru eftir. Prjónið allar l 2 og 2 saman = 12 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Hringurinn í miðju mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm að þvermáli. ERMI: Ermin er prjónuð í hring, neðan frá og upp. Fitjið upp 46-48-50-52-56-58 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni, en gengið er frá ermum með rönguna út. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-10-6-10-10-8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 16-17-19-20-20-22 sinnum = 78-82-88-92-96-102 l. Fellið af þegar ermin mælist alls 53 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Snúið ermunum við og saumið þær í með rönguna út. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spectrecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.