Sophie Nieuwenhuizen skrifaði:
Ik kan het patroon vanaf blad 4 niet meer printen. Alles is dan blanco. Ik wil dit patroon graag breien.
07.08.2016 - 09:02DROPS Design svaraði:
Ik heb hier getest en kan alle blandzijden printen. Het ligt dus niet aan de website. Wellicht licht het aan de instellingen van uw printer, wij raden u aan daar naar te kijken. Het kan ook zijn dat u niet de laatste versie van uw browser hebt geïnstalleerd. U kunt het ook met een andere browser proberen.
07.08.2016 - 14:12Lorraine skrifaði:
Love the lace pattern and also the collar on the garment. Hope it is available in English soon. It is winter here in Australia so would like to make it now!
26.06.2016 - 06:21
Nadine skrifaði:
Superbe, et magnifique en jaune !
14.06.2016 - 22:57
Gemma Gola skrifaði:
Abbastanza elegante ma il colore non invita molto
13.06.2016 - 16:40Rene skrifaði:
Love it, so stylish!
12.06.2016 - 09:17
Ellis skrifaði:
Mmmmmm, nice. Like setin sleeves because they are elegant (I understand that dropped shoulders are easy to knit for beginners) and also the colour, mustard/ ochre / yellow.
08.06.2016 - 21:54
ELIE skrifaði:
Lumineux!
05.06.2016 - 17:01
Franca skrifaði:
Molto elegante!
03.06.2016 - 16:06
Cornfield#cornfieldcardigan |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 173-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynstur fyrir rétta stærð. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri). ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki á hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf til að koma í veg fyrir göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist STÆRÐ S: 6, 15, 24, 33 og 42 cm. STÆRÐ M: 7, 16, 25, 34 og 43 cm. STÆRÐ L: 6, 14, 22, 30, 38 og 46 cm. STÆRÐ XL: 7, 15, 23, 31, 39 og 47 cm. STÆRÐ XXL: 6, 15, 24, 33, 41 og 49 cm. STÆRÐ XXXL: 8, 17, 26, 34, 42 og 50 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og saumaðar við stykki í lokin. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 230-238-254-274-302-326 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Í næstu umf frá réttu eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 55-57-61-66-73-79 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hægra framstykki), 110-114-122-132-146-158 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 55-57-61-66-73-79 l sléttprjón, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= vinstra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið l svona með 1½ cm millibili alls 11 sinnum = 186-194-210-230-258-282 l. Þegar stykkið mælist 25 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.1a (= 10-10-11-11-12-13 l), endurtakið A.2a (= 11-11-12-12-13-14 l) alls 3 sinnum á breidd (= 33-33-36-36-39-42 l), 1 l br, 0-4-4-14-20-24 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 1 l br, endurtakið A.3 (= 11-11-12-12-13-14 l) alls 3 sinnum á breidd (= 33-33-36-36-39-42 l), A.4 (= 10-10-11-11-12-13 l) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1a til A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 170-178-194-214-242-266 l. Prjónið síðan A.1b til A.4b yfir A.1a til A.4a á hæðina. Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-1½-1½-1½-2-2 cm millibili alls 6-8-9-9-8-8 sinnum = 194-210-230-250-274-298 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan þessa l í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm fellið af fyrir handveg í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 48-52-57-61-67-73 l (meðtaldar kantlykkjur að framan = hægra framstykki), fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 l (þ.e.a.s. 3-3-3-4-4-4 l hvoru megin við prjónamerkin), prjónið 86-94-104-112-124-136 l (= bakstykki), fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 l (þ.e.a.s. 3-3-3-4-4-4 l hvoru megin við prjónamerkin, prjónið næstu 48-52-57-61-67-73 l (meðtaldar kantlykkjur að framan = vinstra framstykki) = 48-52-57-61-67-73 l á hvoru framstykki og 86-94-104-112-124-136 l á bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 48-52-57-61-67-73 l. Haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður og fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 3 l alls 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 l alls 0-2-2-4-4-4 sinnum, síðan 1 l alls 2-2-3-3-2-4 sinnum = 46-46-50-50-54-58 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, 1 l br, A.3 alls 3 sinnum á breidd eins og áður, A.4 yfir næstu 9-9-10-10-11-12 l eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, stillið af að næsta umf sé frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 28-29-31-31-34-38 l fyrir öxl = 18-17-19-19-20-20 l eftir fyrir sjalkraga. Prjónið stuttar umf yfir þær l sem eftir eru (= fyrir sjalkraga) með byrjun fyrir miðju að framan (1. umf = ranga) þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 11-10-12-12-13-13 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem stykkið er styst. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið og fellið af eins og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir handveg í byrjun umf frá röngu. Prjónið mynstur A.1 í stað A.4 og A.2 í stað A.3. Sjalkraginn byrjar frá réttu. BAKSTYKKI: = 86-94-104-112-124-136 l. Haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður og fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið á stykkið þannig: Fellið af 3 l alls 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 l alls 0-2-2-4-4-4 sinnum, síðan 1 l alls 2-2-3-3-2-4 sinnum = 82-82-90-90-98-106 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 l sléttprjón, 1 l br, endurtakið A.3 alls 3 sinnum á breidd eins og áður, A.4 yfir næstu 9-9-10-10-11-12 l eins og áður, A.1 yfir næstu 9-9-10-10-11-12 l eins og áður, endurtakið A.2 alls 3 sinnum á breidd eins og áður, endið með 1 l br og 1 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 l = 29-29-32-32-35-39 l á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er fækkað um 1 l = 28-29-31-31-34-38 l eftir á öxl. Haldið áfram að prjóna br yfir br og mynstur, þær mynstureiningar sem ekki ganga jafnt upp eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. Stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-44-46-48-50-52 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 10-8-6-10-10-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 17-18-19-20-21-22 sinnum = 76-80-84-88-92-96 l. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-42-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-3-3-4-4-4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 6 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist 54 cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman kragann við miðju að aftan og saumið saman við hálsmál. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cornfieldcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.