DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Josephine

Prjónaður kjóll úr DROPS Karisma með laskalínu og köðlum, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 172-14
DROPS Design: Mynstur nr u-792
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S – M – L – XL – XXL – XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
700-800-850-950-1050-1150 g nr 39, dökk bleikvínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út á undan A.1a þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan A.1a, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl.
Aukið út á eftir A.1a þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l sl með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (ermi):
Fækkið l á undan A.1b þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan A.1b, prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið l á eftir A.1b þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA (fram- og bakstykki):
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 4 l sl.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 4 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur þá er hægt að fella af með ½ nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 124-124-132-140-148-148 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan 6 umf stroff (2 l sl 2 l br). Skiptið yfir á hringprjóna 4. Prjónið fyrstu umf er prjónuð þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 16-16-18-18-20-20 l og aukið út um 1-2-2-2-2-2 l jafnt yfir (= hálft bakstykki), prjónið A.1a (= 6 l í fyrstu umf), prjónið sl yfir næstu 18-18-18-22-22-22 l og aukið út um 2-2-2-2-4-4 l jafnt yfir (= hægri ermi), prjónið A.1a yfir næstu 6 l, prjónið sl yfir næstu 32-32-36-36-40-40 l og aukið út um 2-4-4-4-4-4 l jafnt yfir (= framstykki), prjónið A.1a yfir næstu 6 l, prjónið sl yfir næstu 18-18-18-22-22-22 l og aukið út um 2-2-2-2-4-4 l jafnt yfir (= vinstri ermi), prjónið A.1a yfir næstu 6 l, prjónið sl yfir þær 16-16-18-18-20-20 l sem eftir eru og aukið út um 1-2-2-2-2-2 l jafnt yfir (= hálft bakstykki) = 132-136-144-152-164-164 l (+ 1 l sem aukin er út í hverri mynstureiningu A.1a í umf = 4 l í umf9.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf er mynstrið prjónað og aukið út fyrir laskalínu. LESIÐ ALLAN KAFLANNN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í sléttprjóni og A.1a í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Þegar A.1a hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.1b endurtekið yfir A.1a – ATH: Í síðasta skipti sem A.1b er prjónað á hæðina í berustykki er ekki aukið út með uppslætti (þ.e.a.s. það eru 6 l fleiri í hverri mynstureiningu A.1b þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið). JAFNFRAMT í 2. umf í A.1a byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við A.1a/A.1b.
ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum.
LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið svona út í hverri umf 0-0-0-7-9-12 sinnum, í annarri hverri umf 19-22-23-23-24-26 sinnum og í 4. hverri umf 1-1-1-0-0-0 sinnum (= alls 20-23-24-30-33-38 sinnum).
LASKALÍNA Á ERMUM:
Aukið svona út í annarri hverri umf 13-18-23-22-20-18 sinnum og í 4. hverri umf 4-3-1-2-4-7 sinnum (= alls 17-21-24-24-24-25 sinnum).

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 280-312-336-368-392-416 l í umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-47-53-58-63 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið næstu 80-88-94-106-116-126 l (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 l undir ermi, prjónið síðustu 40-44-47-53-58-63 l (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 176-192-208-232-256-280 l fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 l sem fitjuð var upp undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA (fram- og bakstykki). Fækkið l svona í 6. hverri umf alls 2 sinnum = 168-184-200-224-248-272 l. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 25-30-35-37-39-41 l jafnt yfir = 143-154-165-187-209-231 l.
ATH: Þetta er gert til að bæta upp 26-28-30-34-38-42 l sem auknar eru út í 1. umf í mynstri A.2a. Prjónið 1 umf til viðbótar sem endar þegar 2 l eru eftir í umf. Þetta er nú byrjun umf! Þetta er gert til að mynstrið verði samhverft. Nú er mynstrið prjónað þannig: * A.2a (= 3 l í 1. umf), 8 l sl * endurtakið frá *-* 12-13-14-16-18-20 sinnum til viðbótar í umf (= 13-14-15-17-19-21 mynstureiningar) = 169-182-195-221-247-273 l. Haldið síðan svona áfram með mynstur hringinn. Þegar allt A.2a hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 195-210-225-255-285-315 l í umf. Prjónið síðan A.2b yfir A.2a til loka JAFNFRAMT er aukið út í br mynstureiningunum og mynstureiningum með sléttprjóni þannig:
ÚTAUKNING Í MYNSTUREININGU MEÐ SLÉTTUM LYKKJUM:
Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 2 l í hverri mynstureiningu í sléttprjóni með því að slá uppá prjóninn innan við 1 l sl hvoru megin við mynstureiningu – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 26-28-30-34-38-42 l fleiri í umf). Aukið út um 8 cm millibili alls 3 sinnum.
ÚTAUKNING Í MYNSTUREININGU MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM:
Þegar stykkið mælist 20 cm er aukið út um 1 l br í hverri mynstureiningu með br – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 26-28-30-34-38-42 l fleiri í umf). Aukið svona út með 8 cm millibili alls 3 sinnum.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 351-378-405-459-513-567 l í umf. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 83-86-89-92-95-97 cm mælt frá öxl – stillið af að síðasta umf sem er prjónuð sé umf 2 í A.2b.
Fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING!

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4, prjónið upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýjar l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Nú er haldið áfram í sléttprjóni og A.1a mitt undir ermi (þ.e.a.s. það eru 3 l í A.1a hvoru megin við prjónamerki). Þegar A.1a hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.1b yfir A.1a. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við A.1b undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA (ermi). Fækkið l svona í 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umf alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 l.
Þegar ermin mælist 38-37-36-35-34-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – Stillið af að næsta umf sem er prjónuð sé umf 2 í A.2b, aukið út um 8-6-8-6-8-6 l jafnt yfir l í sléttprjóni = 52-52-56-56-60-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið nú stroff (2 l sl, 2 l br) – Passið uppá að prjónað sé sl yfir sl og br yfir br yfir 6 l yfir A.2b. Þegar stykkið mælist 6 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.09.2017
ERMI:..Þegar ermin mælist 38-37-36-35-34-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – Stillið af að næsta umf sem er prjónuð sé umf 2 í A.2b, aukið út um 8-6-8-6-8-6 l jafnt yfir l með sléttprjóni = 52-52-56-56-60-60 l.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju. Þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann á lykkju
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, steypið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir hinar 2 þannig að lykkjan liggi utan um 2 síðustu lykkjur á hægri prjóni (= 1 lykkjur færri).
symbols = þessi lykkja hefur verið felld af
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (103)

country flag Ulla wrote:

Ska man alltid sticka ett ”mellanvarv” mellan mönstervarven? Jag avser mönsterdel A.2a. Tre varv ser likadana ut, utan ändring.

21.03.2024 - 09:50

DROPS Design answered:

Hej Ulla, du starter nederst i diagrammet fra retsiden, tager ud i hver side så du har 5 masker ifølge diagrammet. De 3 næste pinde strikkes ens ja :)

03.04.2024 - 14:14

country flag Pirjo Honkanen wrote:

Onko tarkistettu koon XXL hihan lopulliset silmukka määrät, itse sain eri luvun.

28.02.2024 - 12:31

DROPS Design answered:

Hei, silmukkaluvut ovat oikeat. Hihassa kavennetaan yhteensä 40 silmukkaa (= 52 silmukkaa) ja myöhemmin lisätään 8 silmukkaa (= 60 silmukkaa).

12.03.2024 - 17:23

country flag Ulla wrote:

RAGLAN FRAM- OCH BAKST: Öka så här på varje v 0-0-0-7-9-12 ggr, på vartannat v 19-22-23-23-24-26 ggr och på vart 4:e v 1-1-1-0-0-0 ggr (= totalt 20-23-24-30-33-38 ggr). ”På varje….på vartannat…på vart4:e? Är det varv på mönstret eller stickningens varv?

27.02.2024 - 10:15

DROPS Design answered:

Hej Ulla. Det är stickningens varv. Mvh DROPS Design

28.02.2024 - 07:52

country flag Vibeke wrote:

Kan det passe der skal strikkes mønster på undersiden af ærmet? Når jeg læser opskriften til ærmer, står der man skal strikke a1.a og derefter a1.b. Men ser man på billedet kan man ikke se der er strikket mønster på ærmerne. Mvh Vi ele

06.02.2024 - 23:00

DROPS Design answered:

Hei Vibeke. Ja, du strikker mønster på undersiden av ermet slik det står forklart i oppskriften. Skal undersøke om vi har et bilde som viser fletten som vi kan legge til :) mvh DROPS Design

16.02.2024 - 08:53

country flag Katrien wrote:

En brei ik die dan zoals in het instructiefilmpje "Hoe gebruikt u een markeerdraad tussen 2 steken"of meerder ik ze op een andere manier?

02.10.2023 - 17:54

country flag Katrien wrote:

Hallo,ik brei maat L,op de eerste nld na de halsboord,moet ik 36 st R breien en dan 4 st gelijkmatig meerderen=voorpand.Meerder ik die alle vier na elkaar na die 36 steken met tussen de meerderingen mijn markeerdraad,na 2 seken dus? Veel groetjes en al een dankuwel!

02.10.2023 - 17:51

country flag Maddy wrote:

Hello! I can't seem to find a size charge to go along with this pattern? Is there one available? Thank you

24.07.2023 - 08:18

DROPS Design answered:

Hi Maddy! A size chart is give under the pattern. Sometimes it doesn't show if internet connection is interrupted. Try to refresh the page or visit later. Hope it helps!

24.07.2023 - 16:54

country flag Birgitta wrote:

Im Rumpfteil soll ich 37 Maschen abnehmen gleichmäßig .das heißt alle 6 Reihen 4 Maschen also 9 Mal 4 Maschen das sind dann 36 und wo nehme ich die eine Masche ab danke

31.01.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Liebe Brigitta, nach 37 cm stricken Sie 1 Runde und gleichzeitig nehmen Sie 37 Maschen regelmäßig verteilt zu - dann verschieben Sie der Anfang der Runde und stricken Sie A.2a wie beschrieben. Viel Spaß beim stricken!

31.01.2023 - 17:26

country flag Birgitta wrote:

Ich soll beim Rumpfteil 7xin jeder Reihe aufnehmen also 7 Reihen 1 Masche oder eine Reihe 7 Maschen

07.01.2023 - 08:40

DROPS Design answered:

Liebe Birgitta, für Raglan wird es in XL um einen unterschiedlichen Rythmus beim Rumpfteil und bei den Ärmeln zugen,ommen, dh beim Rumpfteil nehmen Sie 7 x in jeder Reihe (=jeweils 2 Maschen beim Vorder- und Rückenteil) und dann 23 x in jeder 2. Runde - gleichzeitig nehmen Sie für die Ärmel 22 x in jder 2. Runde dann 2 x in jeder 4. Runde. So werden Sie entweder 4 Maschen (z.B. nur beim Rumpf in jeder Runde) oder 8 Maschen (Rumpf in jeder Runde + Ärmel in jeder 2. Runde) zunehmen. siehe auch RAGLANZUNAHMEN. Viel Spaß beim stricken!

09.01.2023 - 08:55

country flag Daisie wrote:

Hello, Why do I not see the A.1a and A.1b running on the underside of the sleeves in the photo? Is it just because of the angle the photo was taken? Thanks!

04.11.2022 - 03:01

DROPS Design answered:

Dear Daisie, correct - this cannot be seen on the picture. Happy knitting!

04.11.2022 - 07:53