DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Highland Heather

Prjónaður kjóll úr DROPS Karisma með marglitu mynstri, laskalínu og snúru með skúfum í mitti, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-5
DROPS Design: Mynstur nr u-798
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350-400-450-500-550-550 g nr 72, ljós perlugrár
250-250-250-300-350-350 g nr 21, milligrár
100-100-100-150-150-150 g nr 39, dökk bleikvínrauður
50-50-100-100-100-100 g nr 13, kirsuber
50-50-50-50-50-50 g nr 68, ljós himinblár
50-50-50-50-50-50 g nr 65, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g nr 52, sinnepsgulur
50-50-50-50-50-50 g nr 33, millibleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

MYNSTUR LEIÐBEININGAR:
Í stærð M, L og XL er þetta umf ein umf í mynstri með 2 litum. Klippið frá mynsturlitinn svo að það verði ekki langt bil undir ermi. Í stærð S, XXL og XXXL er fitjað upp í einni umf með mynsturlit.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

ÚTAUKNING-1:
Prjónið fram að 2 l á undan prjónamerki á hlið, sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l) sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 192 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12 l) = 16. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er slegið 1 sini uppá prjóninn á eftir ca 16. hverri l sem er prjónuð. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

UPPHÆKKUN:
Prjónuð er upphækkun með sléttprjóni við hnakka við miðju að aftan þannig: ATH: Í hver skipti sem snúið er við mitt í stykki er 1. l tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið síðan áfram. Prjónið 10-11-12-13-13-14 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-22-24-26-26-28 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 35-38-41-44-44-47 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-54-58-62-62-66 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 65-70-75-80-80-85 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 80-86-92-98-98-104 l. Snúið við og prjónið að miðju að aftan.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki. Prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða, steypið óprjónuðu l yfir.

AFFELLING:
Ef affellingakanturinn verðu stífur þá er hægt að fella af með ½ nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 110-115-130-135-145-150 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 6 umf. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón þar sem auknar eru út 2-5-10-17-19-26 l jafnt yfir = 112-120-140-152-164-176 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4.

Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l = miðja að aftan (látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu). Prjónið síðan UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan – í hnakka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram í sléttprjóni, í fyrstu umf eru sett 4 merkiþræðir og 3 prjónamerki til viðbótar (= 4) í stykkið þannig:
Prjónið fyrstu 18-19-21-24-27-30 l (= hálft bakstykki), setjið einn merkiþráð, prjónið næstu 11-12-15-15-15-15 l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l á hægra prjóni (= miðju-l á ermi), prjónið næstu 10-11-14-14-14-14 l (= ermi), setjið einn merkiþráð, prjónið næstu 18-19-21-24-27-30 l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l á hægra prjóni (= miðju-l á framstykki), prjónið næstu 17-18-20-23-26-29 l (= framstykki), setjið einn merkiþráð, prjónið næstu 11-12-15-15-15-15 l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l á hægra prjóni (= miðju-l á ermi), prjónið næstu 10-11-14-14-14-14 l (= ermi), setjið einn merkiþráð, prjónið síðustu 17-18-20-23-26-29 l (= hálft bakstykki).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú MYNSTUR eftir A.1. ATH: Lykkjan með prjónamerki í á bakstykki, framstykki og á ermum á að passa við l með ör í mynstri. Teljið út frá hlið (þ.e.a.s. mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingum á milli fram- og bakstykki og ermum).
Lykkjan hvoru megin við merkiþræðina (þ.e.a.s. í hverri laskalínurönd) er prjónuð með grunnlit í mynstri. JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 l fleiri í umf). Aukið svona út í annarri hverri umf alls 21-24-25-27-29-32 sinnum = 280-312-340-368-396-432 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð mælist stykkið 22-24-25-26-29-31 cm frá öxl og síðasta umf sem er prjónuð er merkt með ör í A.1.
Næsta umf í mynstri heldur áfram þannig:
Prjónið fyrstu 39-43-46-51-56-62 l (= hálft bakstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi með grunnlit í mynstri – LESIÐ MYNSTUR LEIÐBEININGAR, setjið næstu 63-71-79-83-87-93 l á þráð (= ermi), prjónið næstu 77-85-91-101-111-123 l (= framstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi í grunnlit í mynstri, setjið næstu 63-71-79-83-87-93 l á þráð (= ermi), prjónið þær 38-42-45-50-55-61 l sem eftir eru í umf (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 170-186-202-222-246-274 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar l sem fitjaðar voru upp undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram með umf sem eftir eru í A.1. ATH: Mynstrið gengur ekki jafnt upp í hvorri hlið. Haldið síðan áfram með milligrár. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri).
Fækkið l svona í 4. hverri umf alls 2 sinnum = 162-178-194-214-238-266 l. Þegar stykkið mælist 7 cm er prjónuð gataumferð þannig:
Prjónið 1 l sl, * 2 l sl, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 l sl. Prjónið 2 umf til viðbótar með litnum milligrár.
Prjónið nú mynstur A.2 (= 2 umf). Prjónið síðan með litnum ljós perlugrár þar til stykkið mælist 20 cm í allar stærðir, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 5.-5.-5.-4.-4.-4. hverri umf alls 6 sinnum = 186-202-218-238-262-290 l. Prjónið 1 umf þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 192-204-228-240-264-300 l. Prjónið A.3 (= 12 l) 16-17-19-20-22-25 sinnum í umf. Í 6. umf í A.3 er aukið út um 12-12-24-24-24-24 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-2 = 204-216-252-264-288-324 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með litnum milligrár. Í fyrstu umf með litnum milligrár er aukið út um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum = 216-228-264-276-300-336 l. Þegar stykkið mælist 39-40-42-43-43-44 cm prjónið A.4 (= 12 l) 18-19-22-23-25-28 sinnum í umf. Í umf 8 í mynstri er aukið út um 8-12-8-12-20-16 l jafnt yfir = 224-240-272-288-320-352 l. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf með litnum ljós perlugrár þar sem aukið er út um 31-45-48-47-55-63 l jafnt yfir = 255-285-320-335-375-415 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 5 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING. Stykkið mælist alls 80-83-86-89-92-95 cm frá öxl.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4. Prjónið upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 l undir ermi = 71-79-89-93-99-107 l. Setjið 1 prjónamerki á milli nýrra lykkja undir ermi (= byrjun umf) og haldið eftir prjónamerki í miðju-l ofan á ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram með mynstur eins og á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. í þeim umf sem eftir eru í A.1. Lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á að passa við l með ör í mynstri, mynstrið gengur ekki jafnt upp mitt undir ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum milligrár og A.2 eins og á fram- og bakstykki. ATH: Ekki er prjónuð gataumferð á ermi, prjónið síðan með litnum ljós perlugrár JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-5.-4.-3. hverri umf alls 13-16-20-21-23-26 sinnum = 45-47-49-51-53-55 l. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 30-29-28-28-27-25 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – prjónið A.5. Lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á að passa við l með ör í mynstri. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.4 yfir A.5. ATH: Ekki er aukið út í umf með stjörnu! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum ljós perlugrár til loka.
Þegar stykkið mælist 43-42-41-41-40-38 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf þar sem auknar eru út 5-3-6-4-7-5 l jafnt yfir = 50-50-55-55-60-60 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

TVINNUÐ SNÚRA MEÐ SKÚFUM:
Klippið 3 þræði ca 3 metra með litnum kirsuber. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið þá saman tvöfalt og þá koma þeir til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í mitti.
Gerið skúfa á hvorn enda þannig:
Klippið 12 þræði með litnum kirsuber ca 16 cm, þræðið í gegnum hnútinn í enda á snúrunni. Vefjið einn þráð í kringum toppinn á skúfnum nokkrum sinnum og hnýtið síðan þráðinn þannig að skúfurinn haldist saman. Gerið annan skúf á hinn endann á snúrunni með litnum dökk bleikvínrauður.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.02.2022
Næsta umf í mynstri heldur áfram þannig:
Prjónið fyrstu 39-43-46-51-56-62 l (= hálft bakstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi með grunnlit í mynstri – LESIÐ MYNSTUR LEIÐBEININGAR, setjið næstu 63-71-79-83-87-93 l á þráð (= ermi), prjónið næstu 77-85-91-101-111-123 l (= framstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi í grunnlit í mynstri, setjið næstu 63-71-79-83-87-93 l á þráð (= ermi), prjónið þær 38-42-45-50-55-61 l sem eftir eru í umf (= hálft bakstykki).

Mynstur

symbols = ljós perlugrár
symbols = gallabuxnablár
symbols = millibleikur
symbols = kirsuber
symbols = sinnepsgulur
symbols = ljós himinblár
symbols = dökk bleikvínrauður
symbols = milligrár
symbols = útauknings umferð - sjá útskýringu í uppskrift
symbols = ör merkir miðjulykkju í mynstri - sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Bonjour, Merci beaucoup pour votre réponse. Et toutes mes excuses pour vous avoir dérangé avec mes questions. Car après plusieurs lectures, j'ai enfin compris comment tricoter ! Et c'est superbe ! Pour moi, il fallait lire et relire plusieurs fois les explications. Peut-être encore besoin de vous un peu plus tard :)) Merci beaucoup de votre aide, Bonne journée

01.12.2023 - 12:59

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Je ne sais pas commencer le jacquard. Suis en L. Si je fais correspondre ma maille avec le marqueur dans le dos avec le milieu du diagramme (avec la flèche) le jacquard ne suit pas. Tricoter 1 maille de chaque coté des fils marqueurs (ceux des raglans) veut dire augmenter 1 maille de chaque coté ? Je dois commencer le jacquard (là ou il y a la flèche) après combien de mailles en partant du milieu du dos ? Merci d'avance pour vos explications.

30.11.2023 - 17:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francesconi, dans cette leçon, nous expliquons comment centrer un diagrammes vous allez procéder de la même façon de sorte que la maille avec le marqueur dans le dos, le devant et les manches doit être celle avec la flèche dans le diagramme (ainsi cette maille est au milieu dos/devant/manche); les 2 mailles des raglans (1 maille de chaque côté des fils marqueurs) se tricotent en jersey simplement (pas en jacquard) dans la couleur de fond. Bon tricot!

01.12.2023 - 08:22

country flag Isabelle Francesconi wrote:

Je ne comprends pas très bien la ré-hausse. Il faut à chaque fois tourner, glisser la 1ere maille, serrer le fil, tricoter ? C’est bien cela ? Il faut également glisser à chaque fois la 1ere maille ? Aussi, on ne met pas plutôt le marqueur avant la 1ere maille plutôt que dans la maille ? ce n’est pas mieux de mettre ces marqueurs sur les aiguilles ? plus facile de les faire suivre… Merci beaucoup d’avance pour votre réponse. Isabelle

25.11.2023 - 15:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Francesconi, pour éviter les trous des rangs raccourcis, on va glisser la 1ère maille au début de chacun des rangs raccourcis, ainsi, en taille S, tricotez 10 mailles, tournez, glissez la 1ère maille et tricotez 19 mailles (soit 20 au total en comptant la maille glissée), et ainsi de suite. C'est la technique que l'on montre dans cette vidéo. Bon tricot!

27.11.2023 - 08:37

country flag Stacey Jefferies wrote:

When it says "238-262-290 sts. Work 1 round while adjusting the no of sts to 192-204-228-240-264-300", where do you increase the 2 stiches (138-140) wihtout adjusting the side or centre markers???

19.08.2023 - 16:18

DROPS Design answered:

Dear Stacey, from here on out, the markers won't matter, since you will simply work the same over all stitches or increase evenly the whole round. So you can increase the stitches wherever you prefer, for example one on each side; it won't affect the pattern in any way. Happy knitting!

20.08.2023 - 17:34

country flag Makala Jefferies wrote:

Where exactly do you add the amendment please? (Should this not be in the part of the pattern where the amendment occurs?) If using your colours, is this entire row done in the base colour of light grey?

20.06.2023 - 17:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jefferies, if you printed the pattern after the correction date, then the online pattern is already fixed - when working diagrams, repeat the diagrams all the round, this means repeat the colour(s) as shown in the diagrams to the end of the round. Read more about diagrams here. Happy knitting!

21.06.2023 - 07:45

country flag Makala wrote:

Has anyone converted this from a top down round needle to a bottom up straight needle? Whilst I am not a novice, I am not advanced, however, I have had advanced knitters take a look at this pattern, and they were about as confused as I am!!!

19.06.2023 - 10:12

DROPS Design answered:

Hi Makala, how to adapt a pattern for circular needles into straight needles you will find HERE. In this case working a dress top-down provides more flexibility and room for personal adjustment. For example it is easier to try the garment on while working, as well as making adjustments to length of yoke and shoulder caps. Happy knitting!

19.06.2023 - 13:34

country flag Mieke wrote:

Ik heb een foto van mijn versie van dit model deze morgen gepubliceerd in de drops workshop op fb. Ik had erbij geschreven dat ik er 1 jaar over gedaan heb. Blijkbaar was dat genoeg om mijn post te verwijderen, owv ‘bepaalde trefwoorden ‘. Wat heb ik fout gedaan?

22.11.2022 - 12:04

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Wat jammer! Wat de reden precies is geweest weet ik niet, maar je zou het beste even contact op kunnen nemen met DROPS via facebook hierover.

22.11.2022 - 20:58

country flag Susanne wrote:

Jeg strikker str M. Selve kjolen passer fint men ærmerne bliver for løse/store. Jeg har prøver at lave indtagninger på hver 5. Pind i stedet for på hver 6., og jeg har starter indtagninger med det samme og ikke efter ærmet måler 4 cm. Men stadig er ærmet for løs. Har I en løsning på problemet? Kan jeg strikke ærmerne på en mindre pind feks. 3,5 og tage ind på hver 4. Pind? Eller har I andre forslag?

20.08.2022 - 10:56

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Om du bytter til p. 3,5 vil du muligens se en "overgang" som du ikke vil ha, der du går fra p. 4,0 til 3,5. Hvordan er strikkefastheten din i forhold til det som er opplyst i oppskriften? Når du ser på cm målene på målskissen, rundt øvre del av ermet, hvordan er det i forhold til armene dine. Du kan evnt prøve å felle ofter, men jevnt fordelt. Om du regner ut fra strikkefastheten hvor mange masker du ønsker å ha til slutt, kan du evnt felle flere masker. mvh DROPS Design

22.08.2022 - 13:20

country flag Liv wrote:

Får ikke det til å stemme at maskene som er erme skal strikkes før de settes på en tråd. i videoen som ligger under dette mønsteret settes maskene for erme på en tråd før opplegg under erme og videre strikking av forstykket . Hva er riktig

18.02.2022 - 08:17

DROPS Design answered:

Hej Liv, nej de masker du sætter på tråd til ærmet skal ikke strikkes først - vi skal få lavet en rettelse - tak for info :)

18.02.2022 - 10:26

country flag Frederique PASCAL DE RAYKEER wrote:

Je viens de terminer ma robe, elle est tout simplement MAGNIFIQUE! et très chaude! elle a un franc succès! J'ai beaucoup aimé la façon de tricoter avec des aiguilles circulaires! Merci!

13.02.2022 - 10:33