Misty Harbor Cardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk prjónuð ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út um 1 l með því að slá1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri A.1 á fram- og bakstykki og þær eru prjónaðar í mynstri A.3 á ermum. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum eins og kemur fram í útskýringu og í einhverjum umf þá er einungis aukið út í fram- og bakstykki en ekki í ermum. TILFÆRSLA Í A.2 (á við um fram- og bakstykki eftir handveg): A.2 á að færast til frá hlið undir ermi að miðju framan/miðja aftan. Tilfærsla á lykkjum er alltaf gerð frá réttu eins og segir í útskýringu. Á hægra framstykki og á hægri hlið á bakstykki er þetta gert þannig: Prjónið eins og áður fram að A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið a.2 eins og áður, en þegar síðasta l í A.2 er eftir er þessi l tekin eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Á vinstra framstykki og í vinstri hlið á bakstykki er þetta gert þannig: Prjónið eins og áður þar til 1 l er eftir á undan A.2, prjónið næstu l slétt saman með fyrstu l í A.2, prjónið A.2 eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.3. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 2 l mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan A.2, prjónið 2 l slétt saman, prjónið A.2 (= 8 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir öllum hnappagötum frá röngu þannig: Prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). Fellið af fyrir hnappagati í fyrstu umf frá röngu á eftir kanti í hálsmáli, næstu 6-7 hnappagöt eru felld af með ca 8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 110-110-110-110-134-134 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Kid-Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20 l jafnt yfir í öllum stærðum (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 130-130-130-130-154-154 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf br frá röngu, en 5 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= kantur að framan) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 18-18-18-18-24-24 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 6 l á vinstra framstykki), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.1 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 l (= 6-6-6-6-8-8 mynstureiningar 6 l á bakstykki), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.3 yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), A.2 (= 8 l í laskalínu), A.1 yfir næstu 18-18-18-18-24-24 l (= 3-3-3-3-4-4 mynstureiningar 6 l á hægra framstykki og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-6-5-12-10-16 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 18 sinnum í öllum stærðum og að lokum í 4. hverri umf alls 6-6-7-6-8-8 sinnum. ERMAR: Aukið út í annarri hverri umf alls 14-19-27-30-33-32 sinnum og síðan í 4. hverri umf 8-7-4-3-3-5 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 314-354-374-406-442-470 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig (ef síðasta umf er prjónuð frá röngu, prjónið 1 umf frá réttu til að byrja nú frá röngu): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 47-53-53-59-65-71 l á hægra framstykki, haldið áfram með A.2 yfir 4 næstu l (= ½ mynstureiningar með A.2) og fitjið upp að auki 6-6-7-7-7-8 nýjar l í hliðum = 57-63-64-70-76-83 l á hægra framstykki. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þær l sem eru eftir eru settar á þráð eða bíða á öðrum prjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 57-63-64-70-76-83 l. LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir A.3, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, haldið áfram með A.1 eins og áður fram að kanti að framan og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar TILFÆRSLA Í A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með tilfærslu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 36 sinnum – ATH: Þegar A.2 færist til þá verður heildarfjöldi lykkju að vera sá sami, en það verða færri l í A.1 við miðju að framan og fleiri l í A.3 við hlið. Lykkjur í A.1 sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar þær færast til eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur upp í mynstri. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 l að innanverðu við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 60-66-67-73-79-86 l. Eftir síðustu tilfærslu þá eiga að vera 1-2-2-3-4-5 mynstureiningar með A.1 á undan kanti við miðju að framan. Haldið áfram með mynstur fram og til baka án tilfærslu þar til stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá prjónamerki (peysan mælist ca 52-54-56-56-58-60 cm frá öxl og niður). Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 5-3-6-4-2-3 l jafnt yfir = 65-69-73-77-81-89 l – ATH: Þær 2 kantlykkjur í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan halda áfram í garðaprjóni og A.2 heldur áfram með sl yfir sl og br yfir br (þ.e.a.s. ekki er aukið út yfir A.2 eða l í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir í umf og endið með 2 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (passið uppá að stroffið gangi jafnt upp með stroffi í A.2). Haldið svona áfram með stroff, en í síðustu umf frá réttu eru allar 2 l br auknar út til 3 l br (aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat) = 79-84-89-94-99-109 l. Þegar stroffið mælist 4-4-4-6-6-6 cm felið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk). Peysan mælist nú ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆGRI ERMI: Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l af þræði eða hjálparprjóni á stutta hringprjóna nr 3,5 og fitjið að auki upp 12-12-14-14-14-16 nýjar l mitt undir ermi = 72-80-92-96-102-106 l í umf. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með A.3 hringinn, en nú er A.2 einungis prjónað yfir miðju 8 l undir ermi. Þegar ermin mælist 1½ cm fækkið um 1 l hvoru megin við A.2 – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri). Fækkið l alls 13-16-21-22-23-24 sinnum í stærð S: Í 7. hverri umf, í stærð M: Til skiptis í 5. og 6. hverri umf, í stærð L + XL: Í 4. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umf og í stærð XXXL: Í 3. hverri umf = 46-48-50-52-56-58 l. Þegar ermin mælist 32-31-31-31-28-27 cm prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 14-16-18-16-16-14 l jafnt yfir = 60-64-68-68-72-72 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn yfir allar l (= 2 l sl, 2 l br, en passið uppá að stroffið haldi áfram yfir A.2 mitt undir ermi). Þegar stroffið mælist 8 cm eru allar 2 l br auknar út til 3 l br (aukið út eins og á hægra framstykki) = 75-80-85-85-90-90 l. Þegar stroffið mælist 12 cm (eða að óskaðri lengd, ermin mælist nú ca 44-43-43-43-40-39 cm), fellið af með sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk). BAKSTYKKI: Byrjið frá röngu. Fitjið upp 6-6-7-7-7-8 l á hringprjóna nr 3,5, prjónið næstu 92-104-104-116-128-140 l af þræði/hjálparprjóni og fitjið upp 6-6-7-7-7-8 nýjar l í lok umf = 104-116-118-130-142-156 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir A.3, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, haldið áfram með A.1 yfir næstu 84-96-96-108-120-132 l, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, prjónið 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir A.3 og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þannig: JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar TILFÆRSLA Í A.2 – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með tilfærslu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þar til eftir eru 6-8-8-10-10-12 mynstureiningar með A.1 í miðju (þ.e.a.s. 36-48-48-60-60-72 l með A.1). Síðan er haldið áfram með mynstur án tilfærsla á lykkjum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 110-122-124-136-148-162 l. Þegar stykkið mælist 30-30-31-30-30-30 cm frá prjónamerki (peysan mælist nú ca 52-54-56-56-58-60 cm frá öxl) prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 8-8-6-6-6-8 l jafnt yfir – ATH: Þessar 2 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni og A.2 heldur áfram með sl yfir sl og br yfir br (þ.e.a.s. ekki er aukið út yfir A.2 eða l í garðaprjóni) = 118-130-130-142-154-170 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir á prjóni og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni (passið uppá að stroffið gangi jafnt upp með stroffi í A.2). Haldið svona áfram með stroff, en í næstu umf frá réttu eru allar 2 l br auknar til 3 l br = 146-161-161-176-191-211 l. Þegar stroffið mælist 4-4-4-6-6-6 cm felið laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br (til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er fellt af með 2 þráðum Kid-Silk). VINSTRI ERMI: Setjið næstu 60-68-78-82-88-90 l af þræði/hjálparprjóni á stutta hringprjóna nr 3,5 og fitjið að auki upp 12-12-14-14-14-16 nýjar l mitt undir ermi = 72-80-92-96-102-106 l á prjóni. Prjónið síðan í hring ásama hátt og hægri ermi. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu, fitjið upp 6-6-7-7-7-8 l á hringprjóna nr 3,5, haldið áfram með A.2 yfir næstu 4 l (= ½ mynstureiningar með A.2) og prjónið eins og áður yfir síðustu 47-53-53-59-65-71 l af þræði/hjálparprjóni = 57-63-64-70-76-83 l á vinstra framstykki. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 42-48-48-54-60-66 l, haldið áfram með A.2 yfir næstu 8 l, prjónið 0-0-1-1-1-2 l mynstur eftir mynstri A.3 og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið á sama hátt og á hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar stroffið neðst niðri á framstykki er prjónað er fyrsta umf prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir á prjóni og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið kant í kant yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið þegar ca 12 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Bonjour, merci pour votre rapidité de réponse !!
24.10.2016 - 12:14Bonjour, empiècement, début augm. : 1) les augm. commencent sur un rang envers ? 2) Dos et Devant, taille S : augmenter 0 fois "tous les rgs". puis 18 fois dans toutes tailles ts les 2 rgs. Est-ce que celà signifie que pour la taille S on démarre tout de suite les 18 fois ts les 2 rgs ? Parallèlement, on démarre aussi les augm. manches 14 ts les 2 rgs taille S...Merci par avance.
23.10.2016 - 12:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dury, en taille S, on augmente pour le dos et les devants: 18 x tous les 2 rangs et 6 x tous les 4 rangs (= commencez au rang suivant sur l'endroit, pas d'augmentations au rang suivant). Pour les manches, augmentez 14xtous les 2 rangs et 8 x tous les 4 rangs. Commencez également au rang suivant sur l'endroit. Bon tricot!
24.10.2016 - 10:24Pour les augmentations, côté dos/devants, est-ce que les premières sont en jersey et quand on a 3 m on commence le A1, pour augmenter les motifs devants et du dos
14.10.2016 - 14:18DROPS Design answered:
Bonjour Mme Phaneuf, on tricote effectivement les augmentations dos et devant en A.1 (3 augm = 1/2 motif de A.1, 6 augm = 1 motif complet de A.1) - celles des manches se tricotent en suivant A.3. Bon tricot!
14.10.2016 - 15:18Pour les augmentations du raglan, il est écrit : tricoter les augm. en jersey , alors, jusqu'à combien de mailles augmentées avant de commencer le A1, 3 ou 6 mailles? Et les tricoter en A3 sur les manches(8 mailles) est-ce qu'on le fait aussi pour les augmentations du raglan?
13.10.2016 - 23:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Phaneuf, on tricote les augm. en jersey jusqu'à ce qu'il y ait suffisamment de mailles pour les tricoter en point fantaisie, par ex 1 torsade de A.1 = 3 m, tant que vous n'aurez pas ces 3 m, tricotez les augm. en jersey. les 2 augm. suivantes se tricoteront en jersey, puis lorsque vous aurez augmenté 1 m de plus, vous aurez suffisamment de mailles pour tricoter 1 motif de A.1 complet (= 6 m ). Bon tricot!
14.10.2016 - 09:20Hvor meget garn går der til den flotte trøje, synes at 200 g. Lyder meget for lidt
03.10.2016 - 17:08DROPS Design answered:
Hej Hanne. 200 gr Kid-Silk er 8 nögler (25 gr hver) og et nögle er 200 m, saa det skulle vaere nok.
04.10.2016 - 14:56Bonjour, Est qu'il faut prendre 2 fils "kid-silk"? (avec 1 seul je n'arrive pas à faire l'échantillon) Merci de votre réponse. Cordialement
06.09.2016 - 17:15DROPS Design answered:
Bonjour Mme Chaffard, ce gilet se tricote avec un seul fil Kid-Silk, avec une tension courante pour un fil du groupe A, soit 23 m x 30 rangs en jersey = 10 x 10 cm. Bon tricot!
07.09.2016 - 08:33Skal den strikkes med dobbelt tråd? Jeg synes mit strik er noget "finere" en billedet :) dbh janne
20.08.2016 - 16:20DROPS Design answered:
Hej Janne. Nej, den er strikket med 1 traad. Har du eventuelt en lösere strikkefasthed end hvad der angives?
22.08.2016 - 14:25Est ce que je peux tricoter les manches en aller retour avec une couture au centre si oui dois je augmenter de la meme facon 12 mailles d un cote ou 6 mailles de chaque cote
03.08.2016 - 00:08DROPS Design answered:
Bonjour Silange, les manches se tricotent effectivement en rond, et, sur les 12 m montées sous la manche, on va tricoter A.2 sur les 8 m centrales - ajustez pour que vous ayez bien A.2 au milieu sous la manche ou regardez nos vidéos pour tricoter en rond (beaucoup ont finalement adopté cette méthode après avoir essayé - cf onglet "vidéos" pour les techniques). Bon tricot!
03.08.2016 - 09:35Bonjour encore moi pour une petite question les manches sont tricotees en rond alors pas de couture aux manches
02.08.2016 - 17:31DROPS Design answered:
Bonjour Silange, les manches se tricotent effectivement en rond, on va juste assembler ensuite les mailles montées sous la manche à celles montées pour le devant et le dos. Bon tricot!
03.08.2016 - 09:27J ai termine toutes les augmentations quand je commence est ce que je tricote jusque a 47 mailles du bord je rajoute 6 mailles et je commence apres le decalage si je fais le contraire je commence par le cote droit
26.07.2016 - 22:53DROPS Design answered:
Bonjour Mme Silange, quand les augmentations du raglan sont faites et que vous avez 314 m (en taille S), tricotez sur l'envers les 47 m du devant droit + 4 m de A.2 (= 1/2 motif) et montez 6 m en fin de rang = 57 m. Commencez à décaler A.2 au 2ème rang sur l'endroit du devant droit après avoir monté les mailles de la manche. Bon tricot!
27.07.2016 - 08:03