Cat skrifaði:
Thanks Heather - because the pattern says to 'repeat 1 time' I had knitted *3K/3P* two times - ie knitting 6 stitches once and then repeating 1 time = 12 stitches...
08.08.2016 - 01:32Cat skrifaði:
Hi - would you please check the cast on number of stitches OR the number of repeats required to set the pattern, as they do not total e.g. size M & L says cast on 102 stitches but instructions require 114 stitches to cast on. Assume all larger sizes also incorrect too? And does rest of pattern need adjusting? Many thanks for looking, as I already have the yarn and am keen to start!
07.08.2016 - 09:29DROPS Design svaraði:
Hi Cat, the numbers are correct for size M and L. You have to cast on 102 sts. = 3sts in Garter St + 3K/3P (= 6 sts)+ A.1. (= 21 sts) + A.2(= 42 sts) + A.1. (= 21 sts) + 3K/3P (= 6 sts) + 3sts in Garter St.
07.08.2016 - 11:44Heather skrifaði:
Can I get wool delivered to Bulgaria and how long would it take to receive thanks
31.07.2016 - 18:10DROPS Design svaraði:
Dear Heather, please click here to check if there is any store in your country and to get the list of stores shipping worldwide. Remember you can contact them individually to get more informations about their shipping conditions/deliverey time. Happy knitting!
01.08.2016 - 09:54
Sonja skrifaði:
Ein Traum....😀
15.06.2016 - 06:44
Git skrifaði:
Mysig, gillar vidden!
10.06.2016 - 11:27
Isalisse skrifaði:
Un pull doudou comme j' aime !!
05.06.2016 - 22:07
Jacquard skrifaði:
J'adore!!!
04.06.2016 - 17:23
Warm Wine#warmwinesweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody með köðlum og háum kraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-36 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um ermi): Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l sl og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um kraga): Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í skiptingunni á milli sl og br. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram – og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 90-102-102-114-114-126 l á hringprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 0-1-1-2-2-3 sinnum (þ.e.a.s. í stærð S er ekki prjónaðar 3 l sl, 3 l br), prjónið stroff eftir mynstri A.1 (= 21 l), prjónið stroff eftir mynstri A.2 (= 42 l), prjónið br kant eftir mynstur A.1 (= 21 l), * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 0-1-1-2-2-3 sinnum (þ.e.a.s. í stærð S eru ekki prjónaðar 3 l br, 3 l sl) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 12 cm. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl yfir fyrstu 0-6-6-12-12-18 l JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-1-4-1-4 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið l eftir mynstri A.3 (einu sinni), prjónið og fækkið l eftir mynstri A.4 (einu sinni), prjónið og fækkið l eftir mynstri A.3 (einu sinni), prjónið sl yfir næstu 0-6-6-12-12-18 l JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-1-4-1-4 l jafnt yfir þessar l og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni = 70-74-80-86-92-98 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón, en l í A.4 eru prjónaðar eins og sýnt er í mynstri. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón, prjónið og aukið út eftir mynstri A.5 (= 15 l sem auknar eru út til 21 l), A.6 (= 34 l sem auknar eru út til 46 l), A.5 (= 15 l sem auknar eru út til 21 l), 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 94-98-104-110-116-122 l á prjóni. Prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón, A.7 (= 21 l), A.8 (= 46 l), A.7 (= 21 l), 0-2-5-8-11-14 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm fellið af fyrstu 0-2-3-6-8-11 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 94-94-98-98-100-100 l (í stærð S er ekki felld af nein lykkja, en setjið eitt prjónamerki í hvora hlið til að merkja handveg). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 0-0-2-2-3-3 l sléttprjón, haldið áfram með A.7, A.8 og A.7 eins og áður, prjónið 0-0-2-2-3-3 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til 1 umf er eftir og stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Prjónið nú l í kaðli í A.8 saman 2 og 2 (= 12 l færri). Í næstu umf eru felldar af miðju 20-20-22-22-24-24 fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 30-30-31-31-31-31 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Prjónið l í þeim köðlum sem eftir eru saman 2 og 2 (= 6 l færri). Í næstu umf eru felldar af þær 25-25-26-26-26-26 l sem eftir eru á öxl (mikilvægt er að affellingarkanturinn á öxl verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 64-66-67-69-70-72 cm. Prjónið nú l í kaðli í miðju A.8 saman 2 og 2 (= 12 l færri). Í næstu umf eru miðju 14-14-16-16-18-18 l settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 30-30-31-31-31-31 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. Prjónið l í þeim köðlum sem eftir eru 2 og 2 (= 6 l færri). Í næstu umf eru felldar af þær 25-25-26-26-26-26 l sem eftir eru (mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 30-30-36-36-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff hringinn (= 3 l sl, 3 l br) í 10 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 2-2-6-6-4-4 l jafnt yfir = 28-28-30-30-32-32 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 11-11-11-13-13-11 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 3½-3-3-2-2-2 cm millibili alls 10-11-11-13-13-14 sinnum = 48-50-52-56-58-60 l. Þegar stykkið mælist 45-44-42-41-40-39 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan stykki fram og til baka á hringprjóna þar til ermin mælist 45-46-45-46-47-48 cm (þ.e.a.s.ca 0-2-3-5-7-9 cm frá prjónamerki), fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma kant í kant – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur (passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur), EN endið þegar ca 20 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Leggið ermarnar inn undir kant í garðaprjóni meðfram handveg (prjónamerki á ermi á að passa við hlið á fram- og bakstykki við prjónamerki). Saumið niður meðfram handveg (kantur í garðaprjóni meðfram handveg á að liggja ofan á ermi) og í botni handvegs frá prjónamerki og inn að stykkinu. KRAGI: Prjónið upp frá réttu ca 50 til 64 l í kringum hálsmál (meðtaldar l frá þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er jafnt út til 66-66-72-72-78-78 l. Prjónið stroff hringinn (= 3 l sl, 3 l br). Þegar kraginn mælist 10 cm eru allar 3 l sl auknar út til 4 l sl – LESIÐ ÚTAUKNING-2 = 77-77-84-84-91-91 l. Þegar kraginn mælist 20 cm eru allar 4 l sl auknar til 5 l sl = 88-88-96-96-104-104 l. Þegar kraginn mælist 22 cm eru allar 3 l br auknar út til 4 l br = 99-99-108-108-117-117 l. Haldið áfram með stroff með 5 l sl, 4 l br þar til kraginn mælist 27-27-28-28-29-29 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er slegið uppá prjóninn á eftir 9. hverri l JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmwinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.