ZULIAN EDITH skrifaði:
J'adore ! de plus la Drops Melody est extraordinaire ! je l'adore !! publiez le vite que je puisse le réaliser
03.01.2016 - 09:08
Gabi skrifaði:
Diese Jacke ist ja ein Traum, habe schon eine Jacke nachgestrickt bin auch von der Drops Wolle total begeistert. Bitte dieses Modell freimachen. Danke danke danke
02.01.2016 - 12:56
Barbara Liebing skrifaði:
Ein Superstück ------ bitte stellt die Anleitung online. Ich werde es auf jeden Fall nacharbeiten !
27.12.2015 - 21:02
Bodil skrifaði:
God og varm jakke med skjønne farger! Enkel å strikke på tykke pinner..
26.12.2015 - 11:05
Sigi skrifaði:
Wenn dieses Modell zum nacharbeiten freigeschaltet würde, müsste ich sofort los legen, das ist ja wirklich ein Traum-Stück. Brauche ich unbedingt, also bitte, bitte, bitte ....
18.12.2015 - 16:49
Ann Bredenfeldt skrifaði:
Superfin långkofta som kan användas året om, ser jätteskön ut.
16.12.2015 - 21:17
Luna Commisso skrifaði:
Molti bello!!!
12.12.2015 - 13:25
Katharina skrifaði:
Diese Jacke ist ja ein Traum! Der Stil liegt absolut im Trend, die Farben sind aber auch zeitlos, so dass ich lange was davon habe! Ein wunderschönes Modell, vielen Dank! Ich kann´s kaum erwarten!
12.12.2015 - 11:40
Katharina skrifaði:
Diese Jacke ist ein Traum! Ich kann es nicht erwarten, sie nachzustricken! Hoffentlich ist das Modell bald online! Das Modell liegt voll im Trend! Danke!
12.12.2015 - 11:35
Jacqueline skrifaði:
Zie onder
11.12.2015 - 13:18
Ocean Roar#oceanroarjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Melody prjónuð ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: ATH: Allar litaskiptingar eru gerðar á hlið á stykki! 10-10-10-12-12-12 umf með sléttprjóni með 2 þráðum natur. 8-8-8-8-8-8 umf með garðaprjóni með 1 þræði natur + 1 þræði beige. 8-8-8-8-8-8 umf garðaprjón með 1 þræði natur + 1 þræði ljós sægrænn. 2-2-4-4-4-4 umf garðaprjón með 2 þráðum ljós sægrænn. 4-4-4-4-4-4 umf garðaprjón með 1 þræði ljós sægrænn + 1 þræði dökk blár. 8-8-8-8-8-8 umf garðaprjón með 2 þráðum dökk blár. 2-2-2-2-2-2 umf garðaprjón með 1 þræði dökk blár + 1 þræði beige. 2-2-2-2-2-2 umf garðaprjón með 1 þræði beige + 1 þræði ljós sægrænn. 8-8-8-8-8-8 umf garðaprjón með 1 þræði ljós sægrænn + 1 þræði dökk blár. 4-4-4-4-6-6 umf garðaprjón með 2 þráðum ljós sægrænn. 6-6-6-6-6-6 umf garðaprjón með 1 þræði ljós sægrænn + 1 þræði natur. 2-2-2-2-2-2 umf garðaprjón með 2 þráðum natur. 2-4-4-4-4-4 umf garðaprjón með 1 þræði natur + 1 þræði beige. 4-4-4-4-4-4 umf garðaprjón með 2 þráðum beige. 4-4-4-4-4-4 umf garðaprjón með 1 þræði beige + 1 þræði dökk blár. 6-6-6-6-6-8 umf garðaprjón með 2 þráðum dökk blár. 6-6-6-6-8-8 umf garðaprjón með 1 þræði dökk blár + 1 þræði ljós sægrænn. 6-6-6-8-8-8 umf garðaprjón með 1 þræði ljós sægrænn + 1 þræði natur. 6-8-8-8-8-8 umf garðaprjón með 2 þráðum natur. RENDUR Á ERMI: 4-4-4-4-4-2 umf garðaprjón með 1 þræði natur + 1 þræði beige. 8-8-6-6-6-6 umf garðaprjón með 2 þráðum beige. 2-2-2-2-2-2 umf garðaprjón með 1 þræði beige + 1 þræði natur. 2-2-2-2-2-2 umf garðaprjón með 2 þráðum natur. 4-4-4-4-4-4 umf garðaprjón með 1 þræði natur + 1 þræði ljós sægrænn. 4-4-4-4-4-4 umf garðaprjón með 2 þráðum ljós sægrænn. 6-6-6-6-6-6 umf garðaprjón með 1 þræði ljós sægrænn og 1 þræði natur. 6-6-6-6-6-6 umf garðaprjón með 1 þræði natur + 1 þráður beige. 8-8-8-8-6-6 umf garðaprjón með 2 þráðum natur. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. Öll úrtaka er gerð frá réttu! ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysa er prjónuð í stykkjum fram og til baka á hringprjóna og saumuð saman í lokin. Til að geta stjórnað lengdinni á peysunni og á ermum þá eru öll stykkin prjónuð ofan frá og niður. BAKSTYKKI: Byrjað er á vinstri öxl að aftan (þegar peysan er mátuð). Fitjið LAUST upp 18-19-21-22-24-25 l á hringprjóna nr 15 með 2 þráðum í litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu. Geymið stykkið. Prjónið nú hægri öxl að aftan þannig: Fitjið LAUST upp 18-19-21-22-24-25 l á hringprjóna nr 15 með 2 þráðum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og fitjið upp 6-7-6-7-7-9 nýjar l í lok þessara umf fyrir hálsmáli, prjónið síðan 18-19-21-22-24-25 l frá vinstri öxl slétt = 42-45-48-51-55-59 l á prjóni. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN og RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm (mælt flatt) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir handveg). Þegar rendur hafa verið prjónaðar til loka mælist stykkið ca 83-86-89-92-95-97 cm frá öxl – ATH: Lengdina er hægt að ákveða að óskuðu máli. Stykkið kemur til með að teygjast þegar peysan er mátuð miðað við mynsturteikningu með máli – sjá útskýringu að neðan undir “Stærð”. Fellið LAUST af með sl frá réttu. HÆGRI KRAGI + FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp 5-6-5-6-6-7 l á hringprjóna nr 15 með 2 þráðum í litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stuttar umf fyrir kraga þannig: (1. umf = ranga): * Prjónið 3-4-3-4-4-5 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 3-4-3-4-4-5 sl til baka frá réttu, síðan eru prjónaðar 2 umf slétt fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 6-6-6-6-6-7 cm mælt innst (þá kemur stykkið að mælast ca 12-12-12-12-12-14 cm yst). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og fitjið upp 18-19-21-22-24-25 nýjar l í lok þessara umf fyrir öxl = 23-25-26-28-30-32 l á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Prjónið síðan garðaprjón og rendur fram- og bakstykki eins og á bakstykki (endaskiptingar verða alltaf að vera í hlið á framstykki, ekki við miðju að framan). Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm (mælt flatt) setjið 1 prjónamerki í hlið eins og á bakstykki. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er fellt LAUST af með sl frá réttu. VINSTRI KRAGI + FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri kragi + framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. fyrsta umf er prjónuð frá röngu. Stuttar umf á kraga byrja frá réttu (ekki frá röngu) og fitjaðar eru upp nýjar l fyrir öxl í lok umf frá réttu (ekki frá röngu). Endaskipti eiga alltaf að vera að innan verðu (ekki við miðju að framan), þannig koma rendurnar á vinstra framstykki að vera eins og rendurnar á röngu á hægra framstykki. ERMI: Fitjið LAUST upp 22-24-25-26-28-29 l á hringprjóna nr 15 með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum beige (= 2 þræðir). Prjónið garðaprjón og RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 9-7-6-6-5-4 cm millibili alls 4-5-5-5-6-6 sinnum = 14-14-15-16-16-17 l. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka mælist ermin ca 37-37-35-35-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). ATH: Ermalengdina er hægt að jafna til að óskaðri lengd – ermin kemur til með að teygjast þegar flíkin er notuð miðað við mál í mynsturteikningu. Fellið LAUST af með sl frá réttu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Allur frágangur er gerður með 1 þræði í litnum natur. Saumið axlasauma – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Saumið síðan sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – ATH: Saumið í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur, skiljið eftir ca 30 cm í hvorri hlið fyrir klauf. Saumið kraga saman við miðju að aftan, saumið síðan kragann við hálsmál aftan í hnakka, en passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanroarjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.