DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11660.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Irish Sea

Prjónuð ermalaus peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-17
DROPS Design: Mynstur nr z-737
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 g nr 100, natur
150-150-150-150-200-200 g nr 7120, ljós grágrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50-75-75-75-75-100 g nr 01, natur
50-75-75-75-75-100 g nr 06, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l x 34 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund saman verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11660.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Prjónið rendur með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði Kid-Silk þannig:
FRAMSTYKKI:
Prjónið garðaprjón í litnum ljós grágrænn þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm. Prjónið síðan * 2 umf garðaprjón í litnum natur og 2 umf garðaprjón í litnum ljós grágrænn *, endurtakið frá *-* í 16-16-17-17-18-18 cm (passið uppá að þráðurinn verði ekki of stífur við litaskipti). Prjónið garðaprjón í litnum natur þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm (= mitt ofan á öxl).
BAKSTYKKI:
Haldið áfram með garðaprjón í litnum natur þar til stykkið mælist 19-20-20-21-21-22 cm. Prjónið síðan * 2 umf garðaprjón í litnum ljós grágrænn og 2 umf garðaprjón í litnum natur *, endurtakið frá *-* í 16-16-17-17-18-18 cm (passið uppá að þráðurinn verði ekki of stífur við litaskipti). Prjónið garðaprjón í litnum natur þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út innan við 1 kantlykkju. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í etti stykki yfir axlirnar og niður á aðra hliðina. Öll peysan er prjónuð með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 70-77-83-94-101-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5,5 með 1 þræði ljós grágrænn Kid-Silk og 1 þræði ljós grágrænn Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið úrtöku með 6-5-5-5-5-5 cm millibili 3-4-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 62-67-73-84-91-104 l. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-36-36 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 39-39-41-41-43-43 cm = 66-71-77-88-95-108 l. Haldið áfram í garðaprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist alls 43-44-45-46-47-48 cm, passið uppá að næsta umf sé frá réttu, aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki fyrir ermar = 68-73-79-90-97-110 l. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 82-87-93-104-111-124 l. Fitjið síðan upp nýjar l í hvorri hlið fyrir ermar í lok hverrar umf þannig: 14-14-13-12-11-9 l 2 sinnum og 15-14-14-12-13-11 l 1 sinni = 168-171-173-176-181-182 l.
Þegar stykkið mælist 55-57-57-59-59-61 cm fellið af fyrir hálsmáli þannig: Passið að næsta umf sé frá réttu, prjónið yfir fyrstu 72-73-74-75-77-77 l (= vinstri öxl/ermi) og setjið þessar l á þráð, fellið af næstu 24-25-25-26-27-28 l fyrir hálsmáli og prjónið út umf (= 72-73-74-75-77-77 l á hægri öxl/ermi).

HÆGRI ÖXL/ERMI:
Fækkið um 1 l í byrjun á næstu 2 umf frá réttu (frá hálsmáli) = 70-71-72-73-75-75 l eftir á öxl/ermi. Prjónið þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm og setjið eitt prjónamerki í stykkið (= mitt ofan á öxl). Haldið áfram í garðaprjóni og rendur eins og áður. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl er aukið út um 1 nýja l fyrir hálsmáli í lok næstu 2 umf við háls = 72-73-74-75-77-77 l. Passið uppá að næsta umf sé frá réttu og setjið l á þráð.

VINSTRI ÖXL/ERMI:
Setjið til baka l frá vinstri öxl/ermi á prjóninn (1. umf = ranga).
Fækkið nú um 1 l í lok 2 næstu umf frá réttu (frá hálsmáli) = 70-71-72-73-75-75 l eftir á öxl/ermi. Prjónið þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm og setjið eitt prjónamerki í stykkið (mátið við hægri öxl/ermi = mitt ofan á öxl). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni og röndum eins og áður. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl er aukið út um 1 nýja l fyrir hálsmáli í lok 2 næstu umf við hálsmál = 72-73-74-75-77-77 l. Í næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 24-25-25-26-27-28 nýjar l í lok umf og prjónið síðan til baka l frá hægri öxl/ermi sem sitja á þræði á prjóninn = 168-171-173-176-181-182 l á prjóni.

BAKSTYKKI:
Prjónið nú bakstykki niður yfir í garðaprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm fækkið lykkjum fyrir ermum í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig:
Fellið af 15-14-14-12-13-11 l 1 sinni og 14-14-13-12-11-9 l 2 sinnum = 82-87-93-104-111-124 l. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 66-71-77-88-95-108 l. Passið uppá að prjóna rendurnar á sama stað á bakstykki eins og á framstykki. Fækkið síðan um 1 l í hvorri hlið þegar stykkið mælist 24-26-26-28-28-30 cm og 29-31-32-34-35-37 cm = 62-67-73-84-91-104 l. Þegar stykkið mælist 35-35-37-39-41-43 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið í næstu umf frá réttu. Endurtakið útaukningu með 6 -5-5-5-5-5 cm millibili 3-4-4-4-4-4 sinnum til viðbótar = 70-77-83-94-101-114 l. Fellið laust af þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm frá prjónamerki mitt ofan á öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt, í ystu lykkjubogana.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Jennie Brindley wrote:

Hi, thank you for your post answering my first questions. I love this jumper in the colours illustrated. Could you kindly let me know, as this pattern is written for knitting this jumper using 1 strand of Alpaca and 1 strand of Kid Silk, the names of the colours in 100 % Alpaca I need to use with the Kid Silk to get the jumper as shown in the picture? So far as I see, ‘Light Grey Green’ is only available in Alpaca Nepal (no 7120). Thanks.

27.01.2022 - 09:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brindley, this colour is now discontinued, but please feel free to contact your DROPS store for any individual assistance choosing the best matching colour, they will help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

28.01.2022 - 10:31

country flag Jennie Brindley wrote:

I ordered the wool for this pattern through a uk website called Ritohobby, who have been very helpful. However, the link on their website automatically sent me Drops Alpaca 100% which is a 4 ply wool. 2 questions: 1. Pls can you let me know if this pattern should state Alpaca NEPAL,, which is an Aran - the colours and numbers seems to match, and my tension sample is appropriate with this wool. 2. Is there any reason not to use a circular needle when knitting this pattern? Thanks

26.01.2022 - 10:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brindley, this jumper is worked with 2 strands of yarn group A, ie 1 strand Alpaca + 1 strand Kid-Silk and then you get approximately the thickness of a yarn like aran (= yarn group C like Nepal) - so you can work either with 2 strands yarn group A or 1 strand yarn group C (= Nepal for example). You work here back and forth on circular needle to have enough room for all stitches. Happy knitting!

26.01.2022 - 13:18

country flag Natasa Papadopoulou wrote:

Hi, I'm new in knitting and I really enjoy it. But I have some troubles in following the pattern. I don't understand how to do the following demand: 'Then cast on new sts in each side for sleeves at the end of every row as follows: 14-14-13-12-11-9 sts 2 times and 15-14-14-12-13-11 sts 1 time = 168-171-173-176-181-182 sts.' I can't find the explanation in any video. Thanks in advance

13.12.2020 - 08:13

DROPS Design answered:

Dear Mrs Papadopoulou, this video shows how to cast on new stitches at the end of a row from wrong side - in this pattern you need to cast on the new stitches on each side, ie you will cast on new stitches at the end of a row from right side as well as at the end of a row from wrong side (for sleeves). Happy knitting!

14.12.2020 - 08:52

country flag Susanne wrote:

Guten Tag Ich bin nicht so erfahren im Stricken. Kann ich aus dieser Anleitung eine A-linie machen? Liebe Grüsse susanne

01.10.2018 - 10:37

DROPS Design answered:

Liebe Suzanne, wenn Sie nicht so erfahren im Stricken sind, suchen Sie vielleicht am besten einen trapezförmigen Pullover. Viel Spaß beim stricken!

01.10.2018 - 12:33

country flag Bea wrote:

Ich liebe streifenpullis!

22.12.2015 - 17:58

country flag Roswitha wrote:

Schlicht und doch ein Hingucker!

18.12.2015 - 13:47

country flag Ylva Gustafsson wrote:

Enkel och snygg, lätt att variera själv!

17.12.2015 - 15:55