Aase Jensen skrifaði:
Jeg forstår simpelthen ikke hvordan jeg strikker det sammen. Fortsætter jeg rundt, eller vender jeg ved sidemarkeringen? Starter jeg med at strikke de ny opslåede masker? Er der ikke en video hvor jeg kan se det? Jeg dynes forklaringen er komplet uforståelig. M. V. H. Aase
09.03.2021 - 10:41DROPS Design svaraði:
Hej Aase, vi kan se at du har fået hjælp i DROPS Workshop på Facebook :)
10.03.2021 - 15:50
Joan skrifaði:
3die gang,jeg stiller et spørgsmål!! Jeg skal til at sætte nedre kant 28m til bærestykket,skal jeg slå 28m op,strikke en ret pind,strikke vrangsiden og strikke 3m sammen, osv???
03.04.2020 - 13:33
Joan skrifaði:
Jeg har slået 28 m op på en rundpind. Jeg har 72m til venstre neder kant,som skal strikkes sammen med de 28 m,hvordan gør jeg?
03.04.2020 - 11:50DROPS Design svaraði:
Hej Joan, Du strikker over de 28 masker ifølge VENSTRE BAGSTYKKE 1.pind tager du 1 maske ud med 1 omslag efter 1.maske, fortsætter ret pinden ud. Nu er du på 2.pind, strikker ret til du har 1 maske tilbage, sætter 2 masker fra trøjen ind på samme pind og strikker de 3 masker ret sammen. Således følger du hver pind som forklaret i opskriften. God fornøjelse!
21.04.2020 - 10:35
Joan skrifaði:
Når man har slået 28m op,på ny pind,hvor skal man sætte dem til,midt bag eller i siden?.Altså i spidsen eller i siden.Jeg har 72m til et halvt rygstykke...?...??
02.04.2020 - 18:31DROPS Design svaraði:
Hej igen Joan, ja du begynder at strikke de nye masker sammen med stykket midt bagpå mod venstre side. Følg hver pind som er beskrevet under VENSTRE BAGSTYKKE :)
21.04.2020 - 11:12
Joan Bengtson skrifaði:
Jeg er kommet til side 5. 282m har jeg,skal der slås 28m op på en anden pind ? og strikke venstre ryg -venstre side m. på denne p.frem og tilbage ?Hvordan skal man begynde er svært at forstå !også når man læser:venstre rygstykke,nederkant 1.p og2.p. Hjælp!! Mvh.
31.03.2020 - 23:38
Helena skrifaði:
Entschuldigung! Ich habe das komplett falsch gemacht und nur jeweils 1 beidseitig zugenommen. Ich mache nun 10 R auf und stricke mit verteilten Zunahmen.
25.11.2019 - 18:42
Helena skrifaði:
Dann ist die Anleitung falsch! Es steht bei Reihe 4 + 8 soll man jeweils nur 4 Zunehmen.
25.11.2019 - 18:38DROPS Design svaraði:
Liebe Helena, bei 4. und 8. Rd Gr. XXL- XXXL wird man 8 M zunehmen: 4. Rd: 2 Umschläge beidseitig des 1. und 4. Markierers (= Vorderteil und Rückenteil) wie folgt: Str bis noch 1 M vor der markierten M übrig ist, 1 Umschlag, 1 M re, 1 Umschlag, die markierte M str, 1 Umschlag, 1 M re, 1 Umschlag (= 8 M zugenommen am Rückenteil und Vorderteil).. Viel Spaß beim stricken!
26.11.2019 - 09:28
Helena skrifaði:
Meine Maschenzahl stimmt nicht. Vor dem Dominoquadrat (XXL) 150M. Dann 1x 3-12 = 32M, dann 7x 1-12 = 280M, dann 1x 1-4 = 12M Also: 150+32+280+12 = 474M Ich sollte aber 542 haben! Was nun?
24.11.2019 - 01:20DROPS Design svaraði:
Liebe Helena, zuerst stricken Sie die Reihen 3-12 (= 8 Zunahmen x 5 Zunahmenrunden (= 4, 6, 8, 10, 12) = 40 Zunahmen), dann wiederholen Sie 7 Mal: (6 Zunahmenrunde (= 3, 4, 6, 8, 10, 12) = 48 Zunahmen) x 7 Mal = 336 Zunahmen. Dann stricken Sie nur die 4 ersten Runden (= 2, 4) = 2 Mal 8 Zunahmen = 16. So haben Sie: 150+40+336+16= 542 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
25.11.2019 - 12:18
Heike Faßbender skrifaði:
Ja, habe ich. Das stimmt auch alles. Aber auch auf dem Bild sieht man, dass das Quadrat unterhalb der Stillegung für die Arme noch weitergeht. Lt. Anleitung wird aber sofort unter dem Arm mit dem Anstricken der unteren Teile begonnen.
23.08.2019 - 10:05DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Faßbender, es sollte schon stimmen, auf dem Foto sieht man diese Masse (= 17-23 cm) + die 5 cm vom Schulter, deshalb sieht es länger aus. Am besten zeigen Sie Ihr Strickstück Ihr DROPS Laden, dort wird man am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
23.08.2019 - 12:06
Heike Faßbender skrifaði:
Hallo, ich bin gerade dabei den Pulli zu stricken in Gr. XL. Ich habe ein Problem, nachdem ich die Maschen für die Arme stillgelegt habt. Lt. Anleitung soll ich sofort mit dem Anstricken der unteren Teile beginnen. Aber da fehlt mir noch Länge. Meiner Meinung nach, fehlt ein Mittelstück in der Anleitung.
23.08.2019 - 09:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Faßbinder, Stimmt Ihre Maschenprobe? Haben Sie von der Anschlagskante bis die Maschen auf der Nadel für den Ärmel gemessen? (dh nicht von der Anschlagskante am Rücken- Vorderteil messen). Nach allen Zunahmen sollen Sie 338 M haben. Viel Spaß beim stricken!
23.08.2019 - 10:00
Crayons#crayonssweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel eða DROPS Flora, prjónuð í vinkil með röndum, garðaprjóni og domino ferningum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-36 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- FABEL/FLORA: Fitjað er upp með mismunandi litum svo að rendurnar passi á hæðina. Í stærð S-M-L-XXXL er fitjað upp með litnum natur. Í stærð XL-XXL er fitjað upp með litnum bleik þoka/bleikur. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. RENDUR: Rendur eru prjónaðar mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S-M-L-XXXL: 2 umf garðaprjón (fyrsta umf er prjónuð slétt) með litnum natur. 2 umf með garðaprjóni með litnum bleik þoka/bleikur. STÆRÐ XL-XXL: 2 umf garðaprjón (fyrsta umf er prjónuð slétt) með litnum bleik þoka/bleikur. 2 umf garðaprjón með litnum natur. DOMINOFERNINGUR: STÆRÐ S-M-L-XL: UMFERÐ 1: Prjónið br. UMFERÐ 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1.-2.-4.-5. prjónamerki og með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-3.-4.-6. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf). UMFERÐ 3 (og allar odda umferðir): Prjónið br, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (= framstykki og bakstykki) þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og framstykki). UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 8: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið að l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2. STÆRÐ XXL-XXXL: UMFERÐ 1: Prjónið br. UMFERÐ 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1.-2.-4.-5. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-3.-4.-6. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf). UMFERÐ 3 (og allar odda umf): Prjónið br, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum hvoru megin við 1. og 4. prjónamerki (= framstykki og bakstykki) þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og á framstykki). UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 8: Prjónið eins og umf 4. UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 12: Prjónið eins og umf 2. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Fækkið l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). MÆLING: Öll mæling á ermum er gerð þegar stykkinu er haldið uppi, ermarnar koma til með að teygjast á lengdina við notkun og þetta er gert svo að ermarnar verði ekki of langar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og tilbaka, síðan í hring ofan frá og niður. Þegar stroffið hefur verið prjónað, prjónið neðri kant fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í RÖNDUM – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka þannig: Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með FABEL/FLORA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (= miðju-l, setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l garðaprjón (= 4 l fleiri) = 11 l. Endurtakið útaukningu hvoru megin við miðju-l og innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umf frá réttu 5-7-7-8-8-9 sinnum til viðbótar = 31-39-39-43-43-47 l (= 13-17-17-19-19-21 l á milli miðju-l og prjónamerkja í hvorri hlið). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón að miðju-l JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (= miðju-l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón út umf JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, fitjið upp 73-81-81-87-87-91 lausar l (= ermar og framstykki) í lok umf (= 2-2-2-4-4-4 l fleiri) = 106-122-122-134-134-142 l. Setjið stykkið saman og prjónið 2 l garðaprjón, umf færist til þannig að næsta umf byrjar hér. Stykkið er nú prjónað í hring í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og röndum eins og áður þannig: Prjónið 1 umf br. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 14-18-18-21-21-23 l og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 1. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= hálft framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 5. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 6. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 114-130-150-146-150-178 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, byrjið að prjóna umf 3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 3. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf 1 sinni, endurtakið síðan 1. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf alls 7-7-8-8-7-7 sinnum. Prjónið fyrstu 0-6-0-4-4-8 umf 1 sinni til viðbótar = 62-70-76-78-90-100 l á milli 1. og 2. prjónamerkis/3. og 4. prjónamerkis/4. og 5. prjónamerkis/6. og 7. prjónamerkis (= framstykki/bakstykki, 1 l fleiri með hverju prjónamerki (= 6 l) og 70-74-78-80-88-90 l á milli 2. og 3. prjónamerkis/5. og 6. prjónamerkis (= ermar) = 394-434-466-478-542-586 l alls. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm mælt meðfram öxl. Næsta umf er prjónuð þannig: Haldið áfram í garðaprjóni og rendur eins og áður. Prjónið fyrstu 2 l saman, prjónið garðaprjón fram að 1. prjónamerki, sláið 1 sinnum uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, prjónið 2 l saman, setjið næstu 72-76-80-82-90-92 l (meðtalin l með 2. og 3. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l), prjónið 2 l saman, prjónið garðaprjón að 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan 5. prjónamerki, prjónið 2 l saman, setjið næstu 72-76-80-82-90-92 l (meðtalin l með 5. og 6. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki á milli nýrra lykkja), prjónið garðaprjón út umf = 266-298-322-338-386-426 l. STÆRÐ S-M-L: UMFERÐ 1 (= allar odda umf): Prjónið br, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt. UMFERÐ 2: Haldið áfram með rendur og garðaprjón eins og áður, prjónið að 1. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið 2 næstu l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (= miðja að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið út umf. UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 6: Prjónið að 1. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (= miðju að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið út umf (= alls 4 l færri í umf). Endurtakið umf 1-6 alls 4 sinnum = 250-282-306 l. ALLAR STÆRÐIR: = 250-282-306-338-386-426 l. Látið l sitja á prjóninum. Þær eiga að prjónast saman við kant prjónaðan frá hlið að hlið. Færið l til þannig að l með 1. prjónamerki er byrjun umf. PRJÓNAÐ SAMAN: Prjónið nú frá miðju að aftan, vinstra bakstykki að hlið, vinstra framstykki að miðju, hægra framstykki að hlið og síðan hægra bakstykki. Fitjið upp 34-28-20-20-20-20 l á hringprjóna nr 3,5 með natur. Stykkið er nú prjónað fram og til baka þannig: VINSTRA BAKSTYKKI (neðri kantur): Stykkið á nú að prjóna saman með l af prjóni frá 1. prjónamerki og að prjónamerki undir ermi, frá miðju að aftan á horni á domino að vinstri hlið. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn bleik þoka / bleikur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn natur. Endurtakið umf 1-8 þar til allar l á undan prjónamerki í hlið (= vinstra bakstykki) hafa verið prjónaðar saman með kanti. VINSTRA FRAMSTYKKI (neðri kantur): Stykkið er prjónað saman við l af hálfu framstykki, þ.e.a.s. frá prjónamerki í hlið og niður að horni á domino fyrir miðju að framan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, prjónið sl út umf (= 1 l færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn bleik þoka. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru á prjóni, snúið við. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman. Skiptið yfir í litinn natur. Endurtakið umf 1-8 niður að horni við miðju að framan, í síðustu endurtekningu á 8. eða 2. umf eru fyrstu 3 l af þræði settar til baka á prjóninn, prjónið 4 l slétt saman. HÆGRA FRAMSTYKKI (neðri kantur): Stykkið er prjónað saman við l frá horni á domino fyrir miðju að framan og upp að prjónamerki í hægri hlið. Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki. HÆGRA BAKSTYKKI (neðri kantur): Stykkið er prjónað saman við l frá hlið þ.e.a.s. prjónamerki, að miðju að aftan þ.e.a.s. horni á domino. Prjónið eins og vinstra framstykki. Felllið af þegar allar l frá berustykki hafa verið prjónaðar saman við kant, passið uppá að síðasta röndin sé með litnum bleik þoka. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og rendur. Setjið l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3,5 = 72-76-80-82-90-92 l. Fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l í lok fyrstu umf = 80-84-88-94-102-104 l. Prjónið síðan áfram með röndum. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýja l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – LESIÐ MÆLING! Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 6-6-10-12-17-17 sinnum, síðan með 2 cm millibili 4-5-2-2-0-0 sinnum = 60-62-64-66-68-70 l. Fellið af þegar stykkið mælist 23 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermi. Saumið saman uppfitjunarkant (þ.e.a.s. fyrstu 7 l). |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crayonssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.