DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Crayons Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með röndum, prjónuð í vinkil í garðaprjóni og dominoferningum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 167-35
DROPS Design: Mynstur nr fa-335
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 g nr 623, bleik þoka
150-150-150-200-200-200 g nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 6-7-8-8-8-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

FABEL:
Fitjað er upp með mismunandi litum svo að rendurnar passi á hæðina.
Í stærð S-M-L-XXXL er fitjað upp með litnum natur.
Í stærð XL-XXL er fitjað upp með litnum bleik þoka.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

RENDUR:
Rendur eru prjónaðar mismunandi eftir stærðum þannig:
STÆRÐ S-M-L-XXXL:
2 umf garðaprjón (fyrsta umf = rétta) með litnum natur.
2 umf með garðaprjóni (fyrsta umf= rétta) með litnum bleik þoka.
STÆRÐ XL-XXL:
2 umf garðaprjón (fyrsta umf = rétta) með litnum bleik þoka.
2 umf garðaprjón (fyrsta umf = rétta) með litnum natur.

DOMINOFERNINGUR:
STÆRÐ S-M-L-XL:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. Prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 3.-4.-6.-7. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf).
UMFERÐ 3 (og allar umf frá röngu): Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum á eftir 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið til og með l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og á framstykki).
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 8: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 4. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki (= 4 l fleiri á bakstykki og á framstykki).
UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2.

STÆRÐ XXL-XXXL:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1.-3.-4.-6. prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf).
UMFERÐ 3 (og allar umf frá röngu): Prjónið slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 4: Aukið út með 2 uppsláttum á eftir 1. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið til og með l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út með því að slá 2 uppá prjóninn á undan 4. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 l fleiri á bakstykki og á framstykki).
UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 8: Prjónið eins og umf 4.
UMFERÐ 10: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 12: Prjónið eins og umf 2.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Fækkið l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm
STÆRÐ M: 2, 8, 14, 20, 26, 32 og 38 cm
STÆRÐ L: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm.
STÆRÐ XL: 2, 8, 14, 20, 26, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 8, 14, 20, 26, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 8, 14, 20, 26, 32, 38, 44 og 50 cm.

MÆLING:
Öll mæling á ermum er gerð þegar stykkinu er haldið uppi, ermarnar koma til með að teygjast á lengdina við notkun og þetta er gert svo að ermarnar verði ekki of langar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og tilbaka í RENDUR – sjá skýringu að ofan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með FABEL – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið frá réttu þannig: 2 l garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (= miðju-l, setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l garðaprjón (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu hvoru megin við miðju-l og innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umf frá réttu alls 6-8-8-9-9-10 sinnum = 31-39-39-43-43-47 l (= 13-17-17-19-19-21 l á milli miðju-l og prjónamerkja í hvorri hlið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Klippið frá. Næsta rönd er með litnum bleik þoka og frá réttu. Fitjið upp 42-46-46-49-49-51 lausar l á hringprjóna nr 3,5 (= vinstri ermi og framstykki), prjónið garðaprjón að miðju-l JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l garðaprjón (miðju-l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón út umf JAFNFRAMT er aukið út um 0-0-0-1-1-1 l, fitjið upp 42-46-46-49-49-51 lausar l (= hægri ermi og framstykki) í lok umf (= 2-2-2-4-4-4 l fleiri) = 117-133-133-145-145-153 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, setjið 1. prjónamerki í næstu l (= kantur að framan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= vinstra framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 3. prjónamerki í næstu l (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki í næstu l (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir (= bakstykki), sláið uppá prjóninn, setjið 5. prjónamerki í næstu l, prjónið 22 l garðaprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 l jafnt yfir, setjið 6. prjónamerki í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= ermi), prjónið 14-18-18-21-21-23 l garðaprjón og aukið út um 0-0-4-0-2-7 l jafnt yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 7. prjónamerki í næstu l, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki) 125-141-161-157-161-189 l. Prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, byrjið að prjóna umf 3 (þ.e.a.s. fyrsta umf er frá röngu). ATH: Fyrsta umf í dominoferningi er prjónaður með sama lit og fyrri umf. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Fyrsta umf í hverjum lit er alltaf frá réttu. Prjónið 3. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf 1 sinni, síðan er endurtekin 1. til 10.-10.-10.-10.-12.-12. umf alls 7-7-8-8-7-7 sinnum. Prjónið síðan fyrstu 0-6-0-4-4-8 umf 1 sinni til viðbótar = 62-70-76-78-90-100 l á milli 1. og 2. prjónamerkis/3. og 4. prjónamerkis/4. og 5. prjónamerkis/6. og 7. prjónamerkis (= framstykki/bakstykki), 1 l við hvert prjónamerki (= 7 l), 70-74-76-78-88-90 l á milli 2. og 3. prjónamerkis/5. og 6. prjónamerkis (= ermar) og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki = 405-445-473-485-553-597 l alls. Stykkið mælist nú ca 18-19-20-21-22-23 cm mælt meðfram öxl. Prjónið 1 umf slétt frá röngu.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram í garðaprjóni og rendur eins og áður. Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (meðtaldar l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 72-76-78-80-90-92 l (meðtaldar l með 2. og 3. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l), 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 2 l eru eftir á undan 5. prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), setjið næstu 72-76-78-80-90-92 l (meðtaldar l með 5. og 6. prjónamerki) á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l), 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 7. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (meðtaldar l með prjónamerki) = 277-309-333-349-397-437 l.

STÆRÐ S-M-L:
UMFERÐ 1 (= allar umf frá röngu): Prjónið br til baka frá röngu, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn það eiga að myndast göt.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Haldið áfram með rendur og garðaprjón eins og áður, prjónið 6 kantlykkjur að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, prjónið næstu 2 l slét saman (= 1 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 2 l slétt saman, (= 1 l færri), prjónið að 7. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), endið með 6 kantlykkjur að framan.
UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2.
UMFERÐ 6: Haldið áfram með rendur og garðaprjón eins og áður, prjónið 6 kantlykkjur að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* (= 2 l færri), prjónið að 4. prjónamerki (= miðja að aftan), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), prjónið þar til 6 l eru á undan prjónamerki undir ermi, * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l færri), prjónið 4 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), * prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 l fleiri), prjónið að 7. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), endið með 6 kantlykkjum að framan (= alls 4 l færri í umf). Endurtakið umf 1-6 alls 4 sinnum = 261-293-317 l.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Prjónið 1 umf slétt frá röngu.

ALLAR STÆRÐIR:
= 261-293-317-349-397-437 l. Látið l sitja á prjóninum. Þær eiga að prjónast saman við kant prjónaðan frá hlið að hlið.

PRJÓNAÐ SAMAN:
Prjónið nú frá hægra framstykki, að hægra bakstykki, að vinstra bakstykki, að vinstra framstykki. Fitjið upp 34-28-20-20-20-20 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum natur.

HÆGRA FRAMSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið á nú að prjóna saman með l af prjóni (þ.e.a.s. berustykki) frá miðju að framan á horni á domino að hlið.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn bleik þoka.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri).
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn natur.
Endurtakið umf 1-8 þar til allar l á undan prjónamerki á hlið (= frá hægra framstykki) hafa verið prjónaðar saman með kanti.

HÆGRA BAKSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið er prjónað saman við l af bakstykki, þ.e.a.s. frá hlið og niður að horni á dominu fyrir miðju að aftan.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, prjónið sl út umf (= 1 l færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í þessari umf, það eiga að myndast göt, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn bleik þoka.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 4 l eru á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, setjið til baka fyrstu 2 l frá berustykki á prjóninn, prjónið 3 l slétt saman.
Skiptið yfir í litinn natur.

Endurtakið umf 1-8 niður að horni við miðju að aftan, í síðustu endurtekningu á 8. eða 2. umf eru fyrstu 3 l af bandið settar til baka á prjóninn, prjónið 4 l slétt saman.

VINSTRA BAKSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið er prjónað saman við l frá miðju að aftan frá horni á domino og að hlið. Prjónið vinstra bakstykki á sama hátt og hægra framstykki (þ.e.a.s. að prjónamerki).

VINSTRA FRAMSTYKKI (neðri kantur):
Stykkið er prjónað saman við l frá hlið og niður að horni á domino fyrir miðju að framan. Prjónið á sama hátt og hægra bakstykki. Fellið af þegar allar l frá berustykki hafa verið prjónaðar saman við kant.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og rendur. Setjið l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3,5 = 72-76-80-82-90-92 l. Fitjið upp 8-8-8-12-12-12 l í lok fyrstu umf = 80-84-88-94-102-104 l. Prjónið síðan áfram með röndum. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýja l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – LESIÐ MÆLING! Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 6-6-10-12-17-17 sinnum, síðan með 2 cm millibili 4-5-2-2-0-0 sinnum = 60-62-64-66-68-70 l. Fellið af þegar stykkið mælist 23 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermi. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið saman uppfitjunarkant (þ.e.a.s. fyrstu 7 l).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.03.2016
Leiðrétting: DOMINOFERNINGUR: UMFERÐ 2 (= rétta): Aukið út með því að slá uppá prjóninn á eftir 1.-2.-4.-5. Prjónamerki og sláið uppá prjóninn á undan 3.-4.-6.-7. prjónamerki (= 8 l fleiri í umf).

Mynstur

symbols = þetta er ca stærð, stærðin fer eftir því hversu margar l eru prjónaðar í neðri kant
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Anne Lisbeth Pedersen wrote:

Jeg mangler en anvisning på, om omslag skal strikke drejet ret eller ret på efterfølgende pind. I beskrivelsen af dominoruden står der at omslag ikke skal strikkes drejet ret, men der står ikke noget ved resten af omslagene, heller ikke nakkestykket, hvor jeg har gættet mig til at omslagene omkring midtermasken bag skal strikkes ret. Utrolig forvirrende og upræcis opskrift. Hilsen en erfaren strikker.

01.04.2023 - 11:01

DROPS Design answered:

Hej Anne, skriv hvor du er i opskriften, så vi kan se hvilke omslag du spørger om :)

13.04.2023 - 10:33

country flag Nina Nielsen wrote:

Det er hele den nederstkant der er strikke med 8 pinde hvis man strikker det bliver cardiganen ikke som på billedet, desuden er der ikke garn nok, man skal brug lige meget af de 2 farver.

16.11.2022 - 21:32

country flag Nina wrote:

Jeg er nu nået til nederst kant, og på billedet er der 2 pinde hvid og 2 pinde rosa. Men opskriften som er på 8 pinde lave 2 pinde hvid og så pind 3 til 8 rosa, hvilke giver et andet udtryk end på billedet.

15.10.2022 - 17:39

DROPS Design answered:

Hei Nina. Litt usikker på hva du mener og hvor du er i oppskriften. HØYRE FORSTK (nederkant) eller HØYRE BAKSTK (nederkant)? Kan du gi en bedre forklaring? Husk at noen ganger stemmer ikke bilde (som oftes er str. S&M), med den str man strikker. mvh DROPS Design

24.10.2022 - 13:15

country flag Nina Søberg Nielsen wrote:

Jeg strikker str L og har strikket bærestykket. Ialt 317 m. Str xl-xxl-xxxl: stik 1p ret fra vrangen. Skal jeg ikke også gøre det????

15.10.2022 - 16:03

DROPS Design answered:

Hei Nina. Nei, det er bare i str. XL-XXL-XXXL. Du fortsetter med der det står ALLE STR. mvh DROPS Design

24.10.2022 - 12:51

country flag Kerstin Reich wrote:

Vielen Dank für die schnelle Rückmeldung. Mir fehlt in der Beschreibung wie es nach dem still legen der Ärmelmaschen weitergeht um die Spitze des Domimoquadrates zu verlängern. Wie sie geschrieben haben bei Größe XL auf 29 cm nach Armausschnitt.

25.08.2022 - 21:02

country flag Kerstin Reich wrote:

Ich habe ein Problem mit der vorderen Länge de Dominoquadrats. Das Muster hört bei Größe Co nach 80 Reihen auf. Das sind knapp 20 cm. Auf der Grafik ist die vordere Spitze der Passe doch mindestens doppelt so lang. Jetzt mit 20 Maschen neuen Maschen quergestrickt starten gibt nur ein Plus in der Länge von Max. 10 cm. Müsste das Dominoquadrat ab unter dem Arm nicht noch weitergestrickt werden?. Meine Maschenprobe passt exakt.

23.08.2022 - 20:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Reich, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten Sie ca das gleiche Ergebnis wie in der Maßskizze, in XL z.B. ist die Spitze bei ca 29 cm nach Armausschnitt fertig + die 9 cm (20 Maschen quer) + die 21 cm Passe sind es 59 cm. Viel Spaß beim stricken!

24.08.2022 - 08:41

country flag Maibritt wrote:

Ved bærestykket. Model nr.Fa-335. Først er der ikke skrevet hvad farve man taster med. Nr.2 . Der står man skal gentage de udtagning men hvor ? Ved midten eller bare mellem de 2 mærker … Har strikket i mange år men den er dårligt forklaret.

17.06.2021 - 19:22

DROPS Design answered:

Hej Maibritt, øverst i opskriften skriver vi: FABEL: Det slåes op med forskellig farve så striberne stemmer i højden. I str S-M-L-XXXL slåes der op med natur. I str XL-XXL slåes der op med rosa tåge. Og så skriver vi af du gentager udtagningen fra retsiden, både på hver side af midt m og inden for 2 kantmasker i hver side (4 omslag). God fornøjelse!

30.06.2021 - 14:06

country flag Hanne wrote:

Jeg overholder strikkefastheden præcist. Det ændrer heller ikke ved, at opskriften på bærestykket stopper ved armhulen.

23.02.2021 - 11:33

country flag Hanne wrote:

Jeg er nået til at sætte masker på en pind til ærmerne. Jeg strikker str. xl. Nu siger opskriften, at jeg skal begynde på kanten, men det virker som om dominoruden ikke er strikket færdig. På billedet er der 6 knapper i trøjen, og mit arbejde har kun 3 knaphuller indtil videre. Endvidere skal kanten ifølge billedet ikke gå helt op til armhulen. Skal jeg ikke strikke videre på dominoruden (inkl. de 12 masker opslået under armene) til bærestykkets forkant måler ca. 33 cm,?

17.02.2021 - 01:24

DROPS Design answered:

Hej Hanne, for at få de mål vi har i opskriften og på måleskitsen er det vigtigt at du har strikkefastheden som står i opskriften 23 masker i bredden på 10 cm og 45 pinde retstrik på 10 cm i højden :)

23.02.2021 - 09:52

country flag Grete Kuhrt wrote:

Jeg mangler hjælp til sammenstrikningen forneden på arbejdet. Hvor og hvordan, får jeg begyndt. Jeg er ikke nybegynder, det er en af de få gange i mit liv, hvor jeg ikke fatter opskriften. på forhånd tak. Mvh. Grete Kuhrt

03.08.2020 - 21:21

DROPS Design answered:

Hej Grethe, Denne video vil hjælpe dig med at forstå teknikken. Du skal selvfølgelig følge din opskrift, men det er samme princip: Nederste kant i dominojakke

04.08.2020 - 10:49