Dee Cortiglio skrifaði:
I'm having some trouble using the A.2 Chart for the Charlotte Cardigan. How do you do the "K 4 twisted together"? in the back lace work. Any help would be appreciated. Dee
19.07.2016 - 02:37DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cortiglio, watch this video on how to k4 twisted together. Hope this helps. Happy knitting!
19.07.2016 - 09:20
Mona Røsand skrifaði:
Om knappe hull : det står strikk 2m, strikk 3m sammen, et kast. Sitter du ikke da igjen med 4m og ikke 5 som du startet med?
07.06.2016 - 18:04DROPS Design svaraði:
Hei Mona. Der staar: 1 knapphull = strikk 2.og 3.m fra midt foran rett sammen og lag deretter 1 kast. Dvs, du strikker maske nummer 2 OG 3 sammen = 2 m bliver 1, saa du faar ikke mindre.
08.06.2016 - 16:19
Inge Nielsen skrifaði:
Hvordan skal jeg forstå diagram A1 og A2? Jeg har set i opskrift DROPS 168-15, hvor det samme mønster er benyttet. Her er et billede af mønsteret tæt på, hvor jeg kan tælle at der er 2 p mellem hulrækkerne, altså hulrække på hver 4. p. Jeg opfatter at en kvardrat i diagrammet dækker over 1 maske ret på retten og vrang på vrangen. Er det forkert opfattet? Venlig hilsen Inge Nielsen
03.03.2016 - 20:08DROPS Design svaraði:
Hej Inge, du start altid i nederste højre hjørne, hver rude er én maske. Her kan du se hvordan selve mønsterpinden strikkes.
DROPS Knitting Tutorial: How to work a wave pattern from Garnstudio Drops design on Vimeo.
08.03.2016 - 09:42
Gunda Poll skrifaði:
Einfach fantastisch, diese Kollektion, wo soll ich nur anfangen, eins schöner als das andere, herrlich, danke, tausendmal danke!!! must have!
10.02.2016 - 09:26
Eva Vilsbøl skrifaði:
Flot og elegant model, som passer til en hyggelig aften i selskab med gode vennerne dejlig varm sommeraften. En model jeg skal have.
20.01.2016 - 19:49Evelyn skrifaði:
Lovely. Looks like a perfect top for a hot summer's day in Paris Cotton.
11.01.2016 - 15:23
Mita skrifaði:
Leuke twinset met het bloesje van daarnaast
11.12.2015 - 11:38
Charlotte Cardigan#charlottecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með gatamynstri, laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-9 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið l frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan l með prjónamerki: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið l frá röngu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki: 2 l snúnar brugðið saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 2 l brugðið saman. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of stíft þá kemur laskalínan til með að verða of stutt og handvegur of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 5, 13, 21, 30, 39 og 48 cm. STÆRÐ M: 5, 14, 23, 32, 41 og 50 cm. STÆRÐ L: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm. STÆRÐ XL: 4, 12, 20, 28, 36, 45 og 54 cm. STÆRÐ XXL: 4, 12, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXXL: 4, 13, 22, 31, 40, 49 og 58 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. PEYSA: Fitjið upp 155-171-183-199-219-239 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, 2 l br, A.1 (= 5 l), 2 l br, sléttprjón yfir næstu 48-56-62-70-73-83 l, * 2 l br, A.1*, endurtakið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 l br, A.2 (= 13 l), 2 l br, *A.1, 2 l br,* endurtakið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, sléttprjón yfir næstu 48-56-62-70-73-83 l, 2 l br, A.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. Þær 5 l garðaprjón í hvorri hlið = kantur að framan. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með þetta mynstur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 41-45-48-52-57-62 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 73-81-87-95-105-115 l). Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar – lesið ÚRTAKA = 135-151-163-179-199-219 l. Þegar stykkið mælist 21 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 6-6-7-7-8-8 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 147-163-175-191-211-231 l. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm (í einni umf frá réttu) fellið af 6 l í hvorri hlið (= 3 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið), aðrar l eru prjónaðar eins og áður = 135-151-163-179-199-219 l. KANTUR ERMI: Fitjið upp 52-56-60-62-66-70 l á sokkaprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf garðaprjón, síðan er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 3 cm. Fellið af 6 l mitt undir ermi = 46-50-54-56-60-64 l. Prjónið annan kant á ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 227-251-271-291-319-347 l á prjón. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður, jafnframt sem í næstu umf er lykkjum er fækkað fyrir laskalínu í hverja af 4 skiptingunum á milli fram- og bakstykkis og erma (þ.e.a.s. 8 úrtökur í hverjum úrtökuhring) – LESIÐ ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR! Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 16-16-16-17-18-18 sinnum, síðan í hverri umf 0-2-4-4-5-7 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 99-107-111-123-135-147 l í umf. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 6-11-12-22-31-40 l jafnt yfir = 93-96-99-101-107 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #charlottecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.