Antonia skrifaði:
I do not understand the decrease for the hat. According to the pattern, you have to decrease ONE STITCH in EVERY P section and to then repeat 9 times it total. But the P section has only 6 stitches, how do I decrease nine times?
21.02.2021 - 22:25DROPS Design svaraði:
Hi Antonia, You have 9 purled sections on the round and you decrease 1 stitch in each purled section (so the purled stitches are reduced from 6 to 5 in each section). When you repeat the decreases you alternate the decreases on each side of A.1. Hope this helps and happy knitting!
22.02.2021 - 07:31
Mahlin L skrifaði:
Hej! Skall omslagen i A1 släppas från stickan eller stickas som en maska nästföljande varv?
12.03.2019 - 22:24DROPS Design svaraði:
Hej. De ska stickas som en maska på nästkommande varv. Lycka till!
13.03.2019 - 09:36
Laura Justiniano skrifaði:
Buenas tardes, es realmente difícil descifrar este patrón, podrían ayudarme con algún vídeo tutorial?...muchas gracias
29.12.2016 - 17:55Stella skrifaði:
To understsnd this pattern and to understand how the shawl looks, when laid out, I really need a drawing or more pictures! This is a puzzle!
25.11.2015 - 11:18DROPS Design svaraði:
Dear Stella, the scarf consists here on 2 pieces worked from mid back to each end (so that the end of the piece are the same), working following diagrams as explained - read more about diagram here. Happy knitting!
25.11.2015 - 14:51
Ice Flower |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og sjali úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri.
DROPS Extra 0-1173 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 117-120-126 l á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið * 6-5-7 l br, A.1 (= 7 l) *, endurtakið frá *-* alls 9-10-9 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-20-20 cm er fækkað um 1 l í hverri br mynstureiningu þannig: Prjónið * 2 l br saman, 4-3-5 l br, A.1 eins og áður *, endurtakið frá *-* alls 9-10-9 sinnum = 108-110-117 l. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 3-2-4 sinnum til viðbótar. ATH: Fellið af til skiptis hvoru megin við A.1 = 2 l br á milli hverra A.1 = alls 81-90-81 l á prjóni. Prjónið síðan A.2 yfir A.1 JAFNFRAMT í umf 4 í A.2 eru prjónaðar 2 l br saman (= 9-10-9 l færri). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 18-20-18 l á prjóni. Prjónið allar l 2 og 2 saman = 9-10-9 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í 2 hlutum sem saumaðir eru saman í lokin. SJAL: Fitjið laust upp 117 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: 2 l sléttprjón, 3 l br frá réttu – sl frá röngu, A.3 (= 10 l) þar til 2 l eru eftir, prjónið 2 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32 cm – passið uppá að næsta umf sé ekki fyrsta umf í A.3 – setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf frá réttu er aukið út í hverri br mynstureiningu þannig: Prjónið 3 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 12 l fleiri). (Uppslátturinn er prjónaður snúinn sl frá röngu – snúið br frá réttu í næstu umf). Endurtakið útaukningu til skiptis hvoru megin við br (þ.e.a.s. aukið annað hvort út á undan eða á eftir 3 l br) í 4. hverjum cm 9 sinnum til viðbótar = 237 l (= 13 l br á milli gatamynstra og í hvorri hlið). Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist ca 42 cm – passið uppá að stykkið endi á eftir síðustu umf í A.3. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið laust af. Stykkið mælist ca 75 cm. Prjónið annað stykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin við uppfitjunarkant, saumið með lykkjuspori svo að saumurinn sjáist ekki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1173
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.