Solveig Hansson skrifaði:
Hur kan man i mönster A5 göra ett omslag mellan 2 maskor som inte finns eftersom man i varvet före har stickat ihop 3 maskor till en maska?
27.12.2015 - 18:31DROPS Design svaraði:
Hej. Du har på varvet innan stickat ihop 3 maskor till 2 maskor, omslaget på nästa varv görs alltså mellan dessa två maskor. Lycka till!
05.01.2016 - 08:38
Merce skrifaði:
En este dibujo, --- = desl 1 pt como de derecho, 1 d., pasar el pt desl por encima. Esto se debería hacer con 3 puntos, y sólo mencionan 2. ¿Me podrían aclarar? muchas gracias.
30.11.2015 - 20:32DROPS Design svaraði:
Hola Merce, He repasado el patrón y tienes razón. Hay un error que voy a corregir ahora mismo. En lugar de 1 derecho, son 2 derechos en el medio. Gracias por escribir y perdona las molestias.
03.12.2015 - 10:00
Sunniva skrifaði:
Jeg strikker vottene og har nå lagt opp 74m.. strikket 1 runde rett.. på runde nummer to får jeg ikke maskeantaller til å gå opp. 26m+17 =43... strikker jeg vrangbord resten da så får jeg en maske til overs. Håper dere kan hjelpe meg da jeg har skikkelig lyst til å strikke disse! På forhånd takk!
18.11.2015 - 00:33DROPS Design svaraði:
Hej. Du har 47 m. Stickar vrbord de första 26 m, A.2 över nästa 17 m och sen 2 r och 2 vr. 26+17+2+2=47 m. Lycka till!
18.11.2015 - 11:34
Louise skrifaði:
Is this pattern available in written form rather than in diagram (chart)?
21.09.2015 - 03:40DROPS Design svaraði:
Dear Louise, we have here only diagram till now, a request for a video has been registered, while it comes, you can have a look here to learn how to read diagram. Remember your DROPS store will also gives you tips & advices if required. Happy knitting!
21.09.2015 - 09:36
Bea skrifaði:
Śliczne i praktyczne
28.05.2015 - 09:41
Maggie Blues#maggiebluesset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum úr DROPS Karisma með smáum köðlum, brugðnum lykkjum og dúskum
DROPS 164-38 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 l á undan prjónamerki): 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitji upp 108-117 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið A.1a (= 12-13 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.1a hefur verið prjónað einu sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og haldið áfram með A.1b. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16 cm er fækkað um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu (= 12-13 l færri). Endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 4 sinnum til viðbótar í báðum stærðum = 48-52 l. Þegar húfan mælist 25-26 cm eru allar l prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 24-26 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 1 m. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Festið snúruna neðst niðri í húfuna (í skiptinguna á milli stroffs og mynsturs), hnýtið litla slaufu, jafnið til lengdina á snúrunni og festið lítinn dúsk í hvorn enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 47-47 l á sokkaprjóna nr 3 með Karisma og prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br yfir fyrstu 26 l (endið á 2 l sl), A.2 yfir næstu 17 l, 2 l sl, 2 l br. Prjónið þar til stroffið mælist 6-7 cm. Prjónið nú næstu umf þannig: * 2 l sl, 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 24 l, 2 l sl, * 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 15 l, 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl 2 l brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Næstu umf er prjónuð þannig: 26 l sléttprjón (= innan í lófa), A.3 (= 17 l) og 4 l sléttprjón, uppslátturinn er prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við fyrstu l í umf fyrir þumli – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umf, 4-5 sinnum til viðbótar = 57-59 l. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumal í næstu umf = 47-47 l. Þegar vettlingurinn mælist ca 26-28 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, þegar ca 4 cm eru eftir að loka máli), setjið 1 prjónamerki á eftir fyrstu l í umf og 1 prjónamerki eftir 24 l. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar í báðum stærðum og síðan í hverri umf alls 3 sinnum = 23 l eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið að auki upp 4-3 l aftan við þumal = 15-16 l. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm að loka máli ). Prjónið 2 umf slétt JAFNFRAMT þar sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2 í báðum umf = 4-4 eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 1,5 m. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Festið snúruna neðst í gataumferðina á vettlingnum, hnýtið slaufu fyrir miðju ofan á vettlingnum og festið lítinn dúsk í hvorn enda. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 22. l í umf. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 209 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið A.4 í 5 cm, í síðustu umf í A.4 er fækkað um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 l brugðið saman = 171 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið síðan A.5 (= 19 mynstureiningar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur, þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l vinstra megin við hverja brugðna mynstureiningu = 152 l. Endurtakið úrtöku til skiptis hægra og vinstra megin við hverja brugðnu mynstureiningu þegar stykkið mælist 15 og 20 cm = 114 l. Þegar stykkið mælist 25 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónað þannig: * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff í 5 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 30 cm. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maggiebluesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.