Artoos Els skrifaði:
Zeer goede uitleg en goede maten! Mooi geheel! Heb het gebreid maar niet de tas!!
21.03.2025 - 14:09
Rita skrifaði:
Der er ingen forklaring på tasken, man er nødt til at samle masker op i begyndelsen for at få mønsteret som på foto. Dårlig opskrift.
18.03.2021 - 07:04
Heidi Andersen skrifaði:
Hej Jeg forstår ikke hvordan i får sat snoren i tasken Mvh Heidi Andersen
28.09.2016 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hej Heidi. Har du set den her video - det er en anden taske (mönster), men princippet er det samme.
28.09.2016 - 14:47
E. M. skrifaði:
More of this please
08.06.2015 - 23:18
Gitte Ammitzbøll Langholm skrifaði:
Super flot
28.05.2015 - 13:05
Lena Svendsen skrifaði:
Tøft sett
28.05.2015 - 08:22
Joke Lieberom skrifaði:
Gaaf zo,n tas en muts.Kun je fijn je spulletjes meenemen veilig kan niemand bij. De muts is ook mooi.markenset.
27.05.2015 - 14:36
Southwest Bag#southwestbag |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu og tösku úr DROPS Nepal með grafísku mynstri.
DROPS 165-21 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Allar l í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 93 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum svartur Nepal. Prjónið stroff (1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem fækkað er um 5 l jafnt yfir = 88 l. Í næstu umf er A.1 prjónað (= 8 l) yfir allar l í umf – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Í síðustu umf í A.1 er fækkað um 4 l jafnt yfir = 84 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan A.2 (= 12 l) yfir allar l. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina og stykkið mælist 19 cm er haldið áfram með litnum svartur til loka. Setjið 6 prjónamerki í stykkið með 14 l millibili. Í næstu umf byrjar úrtaka hvoru megin við hvert prjónamerki (= 12 l færri í umf) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 5 sinnum til viðbótar = 12 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn stóran dúsk ca 8 cm að þvermáli með litnum svartur. Festið niður efst á húfuna. ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. TASKA: Fitjið upp 101 l með litnum svartur Nepal á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón og fækkið um 5 l jafnt yfir = 96 l. Prjónið næstu umf þannig: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* hringinn alla umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat! Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 9 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 4 umf GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón þar til stykkið mælist 12 cm. Prjónið síðan mynstur A.3 (= 24 l) 4 sinnum í umf – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 40 cm. Prjónið síðan með svartur til loka. Prjónið 4 umf garðaprjón. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykki með 16 l millibili. Í næstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6 sinnum til viðbótar = 12 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. SNÚRA: Klippið 8 þræði ca 4 metra í litnum ljós brúnn. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda saman þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút í hvorn enda þannig að þú fáir skúf ca 7 cm. Gerið annan skúf alveg eins. Setjið snúruna í töskuna með því að þræða snúruna upp og niður í götin efst á töskunni. Deilið snúrunni upp svo að endarnir verði jafn langir. Þræðið hina hina snúruna í alveg eins, en byrjið í gangstæðri hlið á töskunni þannig að það verða tvær snúrur í hvorri hlið og hnýtið snúrurnar 2 og 2 saman. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #southwestbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.