DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Southwest

Prjónað poncho úr DROPS Nepal með grafísku mynstri, kögri og háum kraga í stroffprjóni, prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 165-20
DROPS Design: Mynstur nr ne-177
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stærð: S/M - L /XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
600-650-700 gr litur nr 8903, svartur
100-100-100 gr litur nr 0206, ljós beige
100-100-100 gr litur nr 0300, beige
50-50-50 gr litur nr 0618, ljós brúnn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff og garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Allar l í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til þess koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn við miðju að framan og miðju að aftan prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Uppslátturinn hvoru megin við prjónamerki á öxlum er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður í sléttprjóni. Kraginn er prjónaður í stroffprjóni. Byrjun umf = miðja að aftan.

PONCHO:
Fitjið upp 120-132-144 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum svartur Nepal. Prjónið stroff (= 3 l sl, 3 l br) í 12 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón þar sem fækkað er í fyrstu umf 32-36-40 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 88-96-104 l. Setjið eitt prjónamerki hér! HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki í fyrstu l (= miðja að aftan), prjónið 21-23-25 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l (= hægri öxl), prjónið 21-23-25 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l (= miðja að framan), prjónið 21-23-25 l, setjið eitt prjónamerki í næstu l (= vinstri öxl), prjónið næstu 21-23-25 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf byrjar útaukning. ATH: Ekki er aukið eins út við miðju að framan/miðju að aftan og á hvorri öxl. LESIÐ ÚTAUKNING!

ÚTAUKNING MIÐJU AÐ FRAMAN OG MIÐJU AÐ AFTAN:
Endurtakið útaukningu hvoru megin við l með prjónamerki í 4. hverri umf 16-18-19 sinnum til viðbótar.
ÚTAUKNING Á HVORRI ÖXL:
Endurtakið útaukningu hvoru megin við l með prjónamerki í annarri hverri umf 18-25-34 sinnum til viðbótar.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 232-276-324 l í umf og stykkið mælist ca 31-35-37 cm frá prjónamerki í hálsmáli (mælt meðfram útaukningu fyrir miðju að aftan) prjónið þannig: Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 0-4-4 l (þ.e.a.s. 0-2-2 l hvoru megin á milli prjónamerkja fyrir miðju að framan og miðju að aftan) = 232-280-328 l.
Haldið nú áfram með útaukningu fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan í 4. hverri umf eins og áður til loka, JAFNFRAMT er mynstur prjónað – LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATH: Uppslátturinn og l með prjónamerki fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan eru prjónaðar með grunnlit í mynstri í hverri umf til loka.
Prjónið 1 l sl (= miðja að aftan), prjónið A.1 (= 12 l) 9-11-13 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 7 l í A.1, prjónið næstu l slétt (= miðja að framan), prjónið A.1 9-11-13 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 7 l í A.1. Haldið svona áfram hringinn. Nýjar útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. l á undan l með prjónamerki í eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur frá 8. l í A.1. Lykkjur eftir lykkju með prjónamerki í eru prjónaðar þannig að mynstrið verði spegilmynd hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Í næst síðustu umf í A.1 er aukið út um 4 l jafnt yfir í öllum stærðum (þ.e.a.s. 2 l í hverri einingu milli l með prjónamerki að framan og að aftan). Þegar alls A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 260-308-356 l í umf. Prjónið nú þannig: Prjónið 1 l sl (= miðja að aftan), prjónið A.2 (= 24 l) 5-6-7 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 9 l í A.2, prjónið 1 l sl (= miðja að framan), prjónið A.2 5-6-7 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 9 l í A.2. Haldið svona áfram hringinn.
Nýjar útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. l á undan l með prjónamerki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur frá 10. l í A.2. Lykkjur eftir lykkju með prjónamerki eru prjónaðar þannig að mynstrið verði spegilmynd hvoru megin við l með prjónamerki. Í síðustu umf í A.1 er aukið út um 16 l jafnt yfir í öllum stærðum (þ.e.a.s. 8 l í hverri einingu milli l með prjónamerki framan og aftan). Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 296-344-392 l í umf.
Haldið nú áfram með mynstur þannig: Prjónið 1 l sl (= miðja að aftan), prjónið A.3 (= 8 l) 18-21-24 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 3 l í A.3, prjónið næstu l slétt (= miðja að framan), prjónið A.3 18-21-24 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 3 l í A.3. Haldið svona áfram hringinn. Nýjar útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. l á undan l með prjónamerki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur frá 4. l í A.3. Lykkjur eftir lykkju með prjónamerki í eru prjónaðar þannig að mynstrið verði spegilmynd hvoru megin við l með prjónamerki. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 320-368-416 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 (notið e.t.v. 2 stk hringprjóna ef þörf er á) og prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með svartur, JAFNFRAMT í fyrstu umf í garðaprjóni er aukið út um 18-21-23 l jafnt yfir = 338-389-439 l. Fellið af. Klippið frá og festið enda.

KÖGUR:
Festið kögrið meðfram öllum kantinum að neðan þannig: 1 kögur = Klippið 2 þræði ca 35 cm með litnum svartur. Leggið þá saman tvöfalda og þræðið lykkjunni í gegnum l í affellingarkanti, þræðið endann í gegnum lykkjuna. Endurtakið í ca 4. jverja l hringinn alla umf – passið uppá að það verði eitt kögur í miðjulykkju að framan og að aftan. Klippið kögrið til svo að það verði ca 13 cm langt.

----------------------------------------------------------
HÚFA OG TASKA:
Sjá DROPS 165-21.
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = ljós beige
symbols = svartur
symbols = beige
symbols = ljós brúnn
symbols = útauknings umf - sjá skýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Southwest

skandura_handmade, Austria

Norwegian Winter Poncho

Reimy, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Marie-Pierre Guillot wrote:

Je ne comprends pas comment en ayant 4 sections de 23 mailles on arrive à 96, non 23x 4 ça fait 92 donc il y a trop de mailles et pourtant c’est bien écrit qu’après le 3eme marqueur on tricote les 23 restantes mais il en reste 25…c’est bien mal expliqué et je suis bloquée

13.01.2024 - 20:27

Marie-Pierre Guillot answered:

Ouf j’ai réussi donc ne tenez pas compte de ma question précédente.

13.01.2024 - 21:02

country flag Anita wrote:

Ik heb de meerdering gedaan zodat ik op 276 steken kom en mijn werk heeft de goede lengte. als het volgende stukje lees komt er dan de meerdering naar 280 steken meteen na de laatste meerdering in waarop je op 276 of kom er eerst nog een naald over heen in tricosteek?

08.02.2022 - 11:19

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Als je 276 steken op de naald hebt en de juiste lengte, brei je daarna 1 naald in tricotsteek waarbij je tegelijkertijd in diezelfde naald meerdert naar 280 steken.

11.02.2022 - 14:46

country flag Nicole S wrote:

Ich würde diesen Poncho gerne meiner Tochter sticken. Sie trägt im Moment die Grösse 152. Kann ich einfach 24 Maschen weniger als bei der grösse S anschlagen? Also mit 70 Maschen beginnen? Merci für Ihre Rückantwort.

11.05.2020 - 17:21

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

12.05.2020 - 09:11

country flag Alicia wrote:

Bonjour ! Je me pose une question au niveau des diminutions. Je viens de finir le col en côtes sur 12cm. Il est écrit de répartir 32 diminutions sur le premier tour de jersey. Qu'entendez vous par là ? Merci d'avance.

12.01.2020 - 23:11

DROPS Design answered:

Bonjour Alicia, vous tricotez 1 tour endroit sur vos 120 mailles, et diminuez 32 mailles à intervalles réguliers sur ce tour = il reste 88 m. découvrez ici comment diminuer à intervalles réguliers. Bon tricot!

13.01.2020 - 10:23

country flag Janke wrote:

Als reactie op de vraag van Janet: helpt het als je het telpatroon ondersteboven houdt? In dat geval klopt A1 volgens mij precies met de foto. En omdat je het patroon vanaf de hals (dus eigenlijk ondersteboven) breit, is dat misschien logisch. Ik vind het een geweldig patroon, ben aan het puzzelen op andere kleurtjes.

19.09.2018 - 13:11

DROPS Design answered:

Hallo Janke, Dat is ook een goede tip. Dankjewel!

19.09.2018 - 16:02

country flag Janet wrote:

Ik wil beginnen met het inbreien, maar heb het idee dat ik een stuk van het telpatroon niet heb. Wat komt er na A1? A2 zou logisch zijn, maar er zit nog een patroon tussenin die niet hier op de site staat. Kunt u mij daaraan helpen?

15.09.2018 - 10:31

DROPS Design answered:

Dag Janet, Ik heb de telpatronen nagekeken, en alle telpatronen die je nodig hebt staan erop. Je breit van boven naar beneden en in telpatroon A.1 is zowel de rand met zwart als basiskleur, als de rand waarin beige/camel de hoofdtoon voert, opgenomen.

17.09.2018 - 12:47

Dusica Filipovska wrote:

Beautiful pattern.I have a problem with the part where pattern A1 begins.Do I increase every 4th row or?It also applies with the next A2 and A3.Thank you in advance

29.08.2018 - 18:53

DROPS Design answered:

Dear Dusica, yes, you keep increasing in every 4th row. for the A., A.2 and teh A.3 pattern as well. Work the increased stitches into the pattern. Happy Knitting!

30.08.2018 - 00:39

country flag Sonja wrote:

Hej den 17 april stillede jeg et spørgsmål, mon jeg får et svar? Mvh Sonja

27.04.2017 - 13:14

DROPS Design answered:

Hej Sonja, nu har vi svaret, se dit spørgsmål nedenfor. Og der vil blive lagt en rettelse ud på selve opskriften. God fornøjelse!

27.04.2017 - 16:07

country flag Sonja Mortensen-Dissing wrote:

Hej, jeg har læst kommentarerne og flere steder står der, at der er fejl i denne opskrift. Er den blevet rettet, så jeg kan strikke efter den der ligger her eller skal jeg have tilsendt en ny opskrift? Kh Sonja

17.04.2017 - 16:06

DROPS Design answered:

Hej Sonja, Der hvor der i opskriften står: På næste omgang starter alle udtagninger: her starter du med at tage 1 m ud på hver side af alle mærketråde (8 udtagninger) nu kan du følge udtagningerne ifølge opskriften og da vil antallet masker stemme efter udtagningerne. Vi skal lægge en rettelse ud så hurtigt som muligt. Tak for info!

27.04.2017 - 16:06

country flag Comte wrote:

Je ne comprends pas comment vous calculez le nombre de mailles avec les augmentations. 16*4ça fait64 18*4 ça fait 72 64 +72+88 ça fait 224

16.12.2016 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Comte, après la 1ère augmentation, on a 96 m, puis on augmente encore 16x 4 + 18x4 m soit 96 + 64+72 = 232 m. C'est-à-dire que l'on augmente au total 17x4 + 18x4. Bon tricot!

19.12.2016 - 09:03