Anu Manandhar skrifaði:
Very inspired by your design and the philosophy. I understand your policy and agree to follow them
28.05.2025 - 09:37
Claudia skrifaði:
Hi, im Diagramm A3 verringert sich die Maschenzahl in Reihe 2 und 14. In der Anleitung steht aber nichts von Abnahme!? Wie muss ich das stricken? Liebe Grüße eure Claudia
27.09.2022 - 07:19DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, es werden 266 Maschen angeschlagen und die 14 Maschen in A.3 werden 19 Mal gestrickt - nehmen Sie im A.3 wie gezeigt, so sind es nur noch 10 Maschen x 19 Mal = 190 Maschen sind noch übrig nach A.3. Viel Spaß beim stricken!
27.09.2022 - 09:28
Milica skrifaði:
The pattern says 50g for mittens but after finishing one of the mittens I see that 50g won't be enough. Otherwise, a simple but lovely pattern!
11.12.2021 - 23:55
Ulrica Yngvesson skrifaði:
Kan jag sticka dessa vantar i Drops Alpaca utan att räkna om mönstret?
27.04.2020 - 12:53DROPS Design svaraði:
Hej Nej det kan du dessvärre inte, DROPS Alpaca tillhör garngrupp A och detta mönster är stickat med ett garn ur garngrupp B. Vill du sticka med ett annat garn så får du alltså välja ett ur garngrupp B. Mvh DROPS Design
27.04.2020 - 13:07
Susan Quinn skrifaði:
I don't knit with diagrams. Is each row represented in the diagram or do you do a 'purl' row in between? Do I start at top or bottom of diagram?
17.12.2019 - 12:17DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Quinn, please see a question 9 in the list of frequently asked questions (FAQ) here. Happy knitting!
17.12.2019 - 15:02Yuliya skrifaði:
Hello! When knitting the neck warmer do I need to dec 10 stitches only one time in the 1st row of A5 or on every 1st row of A5? My finished piece has 180 stitches at the end and it looks too wide and almost not functional
02.12.2016 - 06:48DROPS Design svaraði:
Dear Yuliya, that's right so, you dec 10 sts on 1st row in A.5 = 180 then work A.5 on these 180 sts and finish with ribbing also over the 180 sts. Happy knitting!
02.12.2016 - 08:51
Mette skrifaði:
I votteoppskriften burde det stå at man hopper over maske 2 i mønsteret når tommelmaskene strikkes. Ser at Johanna fra Sverige har spurt om dette uten å få et riktig svar. Når man øker til tommelen strikkes maske 1 i mønsteret, økningene, og så maske 3 i mønsteret. (Maske to i mønstret er jo midtmasken på tommelen som skal strikkes i grått uansett). Etter tommelen strikkes mønsteret som i diagrammet. Håper dere retter dette i oppskriften?
31.01.2016 - 09:29
Johanna skrifaði:
Hur gör jag vid tumkilen med de olika färgerna för att mönstret ska passa även efter? Att omslaget ska stickas i ljusgrått är jag med på, men ska de in i mönstret så maska 1 i mönster stickas, sedan omslag, sedan maska 2 i mönstret, sedan omslag och sedan vidare i mönster? Eller ska det göras på annat sätt? Tack!
26.09.2015 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hej Johanna, nej de nya m stickas inte in i mönstret, de skall sticka i ljusgrått. Lycka till!
01.10.2015 - 16:06
Sophie DROMARD skrifaði:
J'espère qu'ils seront retenus pour aller avec le pull!!
13.06.2015 - 08:34
Karin skrifaði:
Schönes Muster!
05.06.2015 - 09:57
Winter Melody Set#wintermelodyset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðum vettlingum, húfu og hálsskjóli úr DROPS Lima með norrænu mynstri. Stærð: Ein stærð.
DROPS 165-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 48 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós grár. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5, prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 2 l jafnt yfir = 50 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið A.1 yfir allar l (= 5 mynstureiningar á breiddina). Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í 2. l í umf (= þumall). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út fyrir þumal þannig: Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 6 sinnum (allar útauknar lykkjur eru prjónaðar í litnum ljós grár) = 13 þumallykkjur og 62 l alls. Þegar stykkið mælist 10 cm eru settar 13 þumallykkjur á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumallykkjur = 50 l alls. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (= 25 l á milli prjónamerkja) og prjónið síðan með litnum ljós grár. Í næstu umf er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5 sinnum, síðan í hverri umf 4 sinnum = 14 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Allur vettlingurinn mælist ca 23 cm. ÞUMALL: Setjið 13 þumallykkjur á sokkaprjón nr 3,5 og takið að auki upp 3 l í kanti á bakhlið við þumallykkjur = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós grár í ca 6 cm, prjónið síðan allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 8 l sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við næst síðustu l í umf. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 116 l með litnum ljós grár á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 6 l jafnt yfir = 110 l. Prjónið síðan mynstur eftir A.2 (= 11 mynstureiningar á breiddina). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað með litnum ljós grár og sléttprjóni. Prjónið 1 umf slétt þar sem 10 prjónamerki eru sett í húfuna með 11 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 9 sinnum = 20 l eftir í umf. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 10 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 266 l á hringprjóna nr 4 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umf slétt, 1 umf brugðið, prjónið síðan A.3 (= 19 mynstureiningar á breiddina). Þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 190 l í umf. Prjónið A.4 yfir allar l. Prjónið síðan A.5, í fyrstu umf í A.5 er fækkað um 10 l jafnt yfir = 180 l. Prjónið A.5 þar til stykkið mælist 25 cm. Prjónið nú stroff (2 l sl, 2 l br) yfir allar l. Prjónið stroff í 5 cm, stykkið mælist 30 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintermelodyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.