Alicia skrifaði:
Hola,me gustaria saber los colores que lleva y cuantos?
23.10.2017 - 09:41DROPS Design svaraði:
Hola Alicia. En esta manta están usados dos colores de lana multicolor DROPS DELIGHT Nº17 y Nº18
30.10.2017 - 08:32
Clare skrifaði:
Do you have any recommendations for a neat & tidy change of yarn on each row or is it just a case of weaving ends in? Many thanks
03.06.2017 - 12:17DROPS Design svaraði:
Hi Clare, The best way to get a neat transition, when changing yarns is to work the last stitch before the colour change with the new yarn. Kind regards, Deirdre
04.06.2017 - 12:55
I Legius skrifaði:
Wil graag weten hoeveel bollen ik nodig heb voor deze deken en graag de kleurnummers ? vriendelijke groet
02.03.2017 - 13:28DROPS Design svaraði:
Hoi. Het staat aan het begin van het patroon: DROPS DELIGHT van Garnstudio 350 gr. kleur nr. 17, frambozentaart 350 gr. kleur nr. 18, herfstbos. Elke bol Delight is 50 gr :)
02.03.2017 - 13:50Lucy skrifaði:
Do we use hook size 3.5mm or 5mm? In the description it says 3.5mm but in the instructions it says 5mm.
23.07.2015 - 12:30DROPS Design svaraði:
Dear Lucy, the blanket is worked with a crochet hook size 3,5 mm, pattern has been edited, thank you. Happy crocheting!
28.07.2015 - 10:10
Débora skrifaði:
¡Me encanta!
12.06.2015 - 21:17
Jocelyne skrifaði:
Tout en simplicité mais tellement beau !
01.06.2015 - 14:08
Connie Comstock skrifaði:
Love big granny Afghans .
29.05.2015 - 19:40
C.p. skrifaði:
Granny Decken gehen immer...super..ich habe noch 'ne Kiste voll mit Drops Delight Resten....
28.05.2015 - 20:05
Elfrid Haara Leikvoll skrifaði:
Nydelig teppe
27.05.2015 - 19:11
Autumn Squares#autumnsquaresblanket |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklað teppi úr DROPS Delight með stuðlahópum.
DROPS 163-11 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. A.1 sýnir ferninga og A.2 sýnir hliðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er heklað í röndum, skipt er um lit í hverri umf. Ferningurinn er heklaður fyrst, síðan er heklaður kantur meðfram 2 hliðum. Að lokum er heklaður kantur í kringum allt teppið. FERNINGUR: Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með litnum hindberjaterta og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið síðan í hring, en til skiptis frá réttu og frá röngu eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 þannig: UMFERÐ 1: 3 ll, 2 st um hringinn, 3 ll, * 3 st um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum. Skiptið yfir í litinn haustskógur og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. UMFERÐ 2: 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st í sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum. Skiptið yfir í litinn hindberjaterta og endið á 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. UMFERÐ 3: 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga og 1 ll. Skiptið yfir í litinn haustskógur og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, snúið við. Haldið áfram að skipta um lit fyrir hverja umf og heklið síðan alveg eins – þ.e.a.s. það verða 3 st og 1 ll fleiri á milli horna fyrir hverja umf sem er hekluð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið þar til ferningurinn mælist ca 80 x 80 cm. Endið á 1 kl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. HLIÐAR: Heklið nú fram og til baka meðfram 2 hliðum gagnstæðar við hvora aðra (ekki hekla þá hlið á ferningi þar sem byrjun umf er). Heklið rendur eins og áður og heklið eftir mynstri A.2, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Byrjið með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir), heklið 1 kl í hornið og 3 ll, takið annan litinn frá og heklið síðan með 1 þræði í lit þannig: 2 st um hornið, 1 ll *, hoppið fram að næstu ll (á milli 3 st) og heklið 3 st og 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að horni, heklið 3 st um hornið. UMFERÐ 2: Snúið ekki stykkinu, heldur byrjið í næstu umf þar sem fyrri umf byrjaði (nú með hinum litnum). Heklið 3 ll, 1 ll, * hoppið fram að næstu ll (á milli 3 st) og heklið 3 st og 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að síðustu 3 st frá fyrri umf, endið á 1 st í síðasta st frá fyrri umf. Nú eru báðir þræðirnir aftur í sömu hlið. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll með báðum litum, takið frá annan þráðinn og heklið 2 st um fyrstu ll, 1 ll, * hoppið fram að næstu ll (milli 3 st) og heklið 3 st og 1 ll *, endurtakið frá *-* fram þar til 1 ll er eftir og 3 ll (= 1. st), heklið 2 st um ll og 1 st í 3. ll frá fyrri umf. UMFERÐ 4: Heklið eins og umf 2. Endurtakið síðan umf 1-4 þar til kanturinn mælist ca 30 cm frá þeim stað sem ferningurinn endaði. Heklið á sama hátt gagnstæðri hlið á ferningi. KANTUR: Heklið kant í kringum allt teppið. Heklið alveg eins og ferningur. Þ.e.a.s. heklið í umf og röndum, umf eru heklaðar saman í lok umf. Byrjið í einu af hornunum. UMFERÐ 1: Byrjið með báðum litum, heklið 1 kl í hornið og 3 ll, takið frá annan litinn og heklið síðan með öðrum litnum þannig: 2 st, 3 ll og 3 st um hornið, (*3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni. Heklið 3 st, 3 ll og 3 st um hornið). Endurtakið frá (-) 2 sinnum til viðbótar og endurtakið frá *-* fram að byrjum á umf og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Snúið við. UMFERÐ 2: Byrjið í næstu umf með báðum litum og heklið 3 ll, takið frá annan litinn og heklið á sama hátt og frá fyrri umf. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið eins og umf 2. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnsquaresblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.