Elke skrifaði:
Sehr schöner Pulli. Ich stricke ihn in Cotton Merino. Meine Maschebprobe mit Nadelstärke 4mm stimmte. Jedoch bemerkte ich relativ rasch beim Stricken, dass das für Grösse M mit Anschlag 208 Maschen von den Maßen her Grösse L ist. Habe dann nochmal neu mit Nadelstärke 3,5mm und Anschlag 208 Maschen angefangen, obwohl die Maschenprobe weniger als 10 cm war bei gleicher Maschenzahl und jetzt habe ich die Maße der Größe M.
07.10.2015 - 22:24
Adele skrifaði:
Schoener schnitt
14.06.2015 - 05:55
José skrifaði:
Mooi model. De mouwen zijn een prachtige blikvanger. De onderrand vind ik ook heel mooi.
13.06.2015 - 16:39
Sophie DROMARD skrifaði:
Difficile de choisir entre le pull et le gilet...
13.06.2015 - 08:18
Stella skrifaði:
Molto bello. Anche il colore
05.06.2015 - 13:01
Christine skrifaði:
Sehr schön, einfach, aber doch mit etwas Pfiff. Freue mich auf die Anleitung.
03.06.2015 - 13:30
Carmen Vallée skrifaði:
Joli couleur, simple et le motif de la manche très intéressant.
30.05.2015 - 16:19
Doris skrifaði:
Ich würde am liebsten sofort loslegen mit dem Nachstricken, sehr schöne und kreative Anordnung der Muster
29.05.2015 - 22:55
ALINGRIN skrifaði:
J'adore vraiment ce modèle, j’espère qu'il sera publié.
28.05.2015 - 21:27
Isabel Moratinos skrifaði:
Me gusta mucho su color verde, su simplicidad, y lo original de la situación de los calados.
28.05.2015 - 19:24
Green Forest#greenforestsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Fækkið um2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 192-208-240-256-288-320 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað A.1 (= 16 l) yfir allar l (=12-13-15-16-18-20 mynstureiningar). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 168-182-210-224-252-280 l í umf. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umf og 1 eftir 84-91-105-112-126-140 l (= hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 148-162-190-204-232-260 l. Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 4-4½-4½-5-5-5½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 164-178-206-220-248-276 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af fyrir handveg á hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 4 l í umf, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir í umf, fellið af þessar 4 l. Nú eru 74-81-95-102-116-130 l á bakstykki og framstykki. Geymið stykki og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 45-47-49-51-53-55 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan þannig: 15-16-17-18-19-20 l sl, A.2 (= 15 l), 15-16-17-18-19-20 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Aukið út með 3½-3-3-2½-2-2 cm millibili 11-12-13-14-16-17 sinnum til viðbótar = 69-73-77-81-87-91 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 51-50-50-49-49-48 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og breiðari hálsmáls) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkin = 61-65-69-73-79-83 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 270-292-328-350-390-426 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynstri og sléttprjón eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNU- sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-22-23-23-23-24 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf 0-0-1-3-6-7 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 102-108-128-134-150-170 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 7-7-23-25-37-53 l jafnt yfir = 95-101-105-109-113-117 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenforestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.