DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Forest Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 164-13
DROPS Design: Mynstur nr cm-038
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 gr litur nr 11, skógargrænn

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
450-500-550-550-600-700 gr litur nr 10, mosagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA BOGALAGA (hvít) NR 521: 7 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8514.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 11, 17, 23, 30, 37, 44 og 51 cm.
STÆRÐ M: 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm.
STÆRÐ L: 11, 18, 25, 32, 39, 47 og 55 cm.
STÆRÐ XL: 11, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm.
STÆRÐ XXL: 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm.
STÆRÐ XXXL: 11, 20, 29, 37, 45, 53 og 61 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 203-219-251-267-299-331 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Cotton Merion eða Belle. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuðu þannig – frá réttu: 5 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 192-208-240-256-288-320 l, 1 l sléttprjón, 5 l garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 179-193-221-235-263-291 l á prjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 46-50-58-62-70-77 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 87-93-105-111-123-137 l). Haldið áfram í sléttprjóni og 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l færri), endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 159-173-201-215-243-271 l. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægra framstykki – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 26 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 4-4½-4½-5-5-5½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 175-189-217-231-259-287 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 77-83-95-101-113-127 l á bakstykki og 41-45-53-57-65-72 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 45-47-49-51-53-55 l á sokkaprjóna nr 4 með Cotton Merino eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan þannig: 15-16-17-18-19-20 l sl, A.2 (= 15 l), 15-16-17-18-19-20 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 3½-3-3-2½-2-2 cm millibili 11-12-13-14-16-17 sinnum til viðbótar = 69-73-77-81-87-91 l. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 51-50-50-49-49-48 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri laskalínu og breiðari hálsmáls) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerki = 61-65-69-73-79-83 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 281-303-339-361-401-437 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynstri og sléttprjón eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNU- sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-22-23-23-23-24 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf 0-0-1-3-6-7 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 113-119-139-145-161-181 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 12-14-30-31-43-59 l jafnt yfir = 101-105-109-114-118-122 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Claire wrote:

Bonjour, Je suis en train de réaliser ce magnifique gilet. Que faut-il comprendre concernant les diminutions du raglan, tous les 2 rangs et 0 fois tous les rangs pour la taille M ? Dans mon idée les diminutions se font toujours sur l’endroit . Est-ce juste ? Je vous remercie de m’éclairer . Bien à vous

14.11.2022 - 05:18

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, tout à fait, en M, vous diminuez uniquement tous les 2 rangs (tous les rangs sur l'endroit). Bon tricot!

14.11.2022 - 10:20

country flag Petra Dörges wrote:

Hallo zusammen Stricke gerade 164-13 , Bin bei der Passe und weiss nicht ob die Raglan Abnahmen in jeder Reihe also Hin und Rückreihe gestrickt werden müssen.? Unter Raglan Abnahmen steht hin und Rückreihe Abnahmen stricken und unter Passe steht jede 2. Reihe Abnahmen stricken?.. Können Sie mir da helfen? Gruß Petra Dörges

21.03.2021 - 19:44

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dörges, die Raglanabnahmen werden zuerst 21 bis 25 Mal (siehe Größe) in jeder 2. Reihe (= in jeder Hinreihe) und dann erst in jeder Reihe - je nach der Größe nur (in 1. und 2. Größe wird es nicht in jeder Reihe abgenommen). Viel Spaß beim stricken!

22.03.2021 - 08:59

country flag Sabine Roth wrote:

Beziehen sich die cm Angaben im Schnittbild auf die Körpermaße oder die Jackenmaße? Man braucht ja bei einer Strickjacke eine Bequemlichkeitszugabe . Ich stricke die Jacke nicht für mich. Sie wird ein Geschenk und ich habe deshalb nur die Körpermaße vorliegen und kein vorhandenes Kleidungsstück zum Vergleich. Wenn es sich um die Körpermaße handelt, wieviel cm müßte ich dann für die Bequemlichkeit zugeben dass die Jacke locker aber nicht sackig sitzt?

30.09.2019 - 17:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Roch, hier lesen Sie mehr über die Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

01.10.2019 - 09:54

country flag Saskia wrote:

Hoe wordt het zwarte driehoekje bovenaan A1 gebreid? Staat volgens mij niet beschreven.

12.02.2019 - 20:31

DROPS Design answered:

Dag Saskia,

Deze brei je als volgt: 1 steek afhalen, 2 recht samenbreien en de afgehaalde steek overhalen. Hierdoor minder je 2 steken.

13.02.2019 - 10:37

country flag Asraa wrote:

Hi. In the yoke where we have to decrease 22 times for the medium size, does that mean that the decrease has to be done on both the right and wrong side of the work? (44 rows) Thank you.

04.02.2019 - 17:51

DROPS Design answered:

Dear Asraa, in size M you decrease for raglan a total of 22 times every other row, ie every row from RS, there will be no decrease made from WS in size M. Happy knitting!

05.02.2019 - 08:16

country flag Janou LE PONTOIS-M%ENOT wrote:

Bonjour Dans la partie des explications ci-dessous : Tricoter le rang suivant ainsi - sur l'endroit: 5 m point mousse, A.1 sur les 192-208-240-256-288-320 m suivantes, 1 m jersey, 5 m point mousse. Quand A.1 a été tricoté 1 fois en hauteur, on a 179-193-221-235-263-291 m. pouvez-vous me dire où et comment on fait 36 diminutions puisqu'on doit n'avoir plus que 263 m après avoir tricoté 1 fois A1 Merci pour votre réponse

27.12.2017 - 19:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Pontois-Menot, à l'avant-dernier rang de A.1, on diminue 2 mailles au milieu de chaque motif sans compenser ces diminutions par des jetés, si vous répétez 18 fois le diagramme, vous aurez ainsi 2 diminutions x 18 = 36 diminutions. Bon tricot!

02.01.2018 - 09:02

country flag Else Panagiotaki wrote:

Hei Hvor stor (brystmål i cm og lengde) er str S

02.02.2017 - 19:36

DROPS Design answered:

Hej Else. Se maalskitsen nederst. Her staar alle maal i cm per str.

06.02.2017 - 13:59

country flag Carole wrote:

Bonjour, Je ne suis pas sûre de comprendre le motif A1. Le 1er rang se tricote sur l'endroit du travail, donc les jetés et diminutions (rang 2 du motif) sont exécutés sur l'envers. Est-ce bien cela ? Merci pour votre aide.

21.09.2016 - 21:01

DROPS Design answered:

Bonjour Carole, dans A.1 les rangs avec les jetés doivent être sur l'endroit. Tricotez d'abord 1 rang avant de commencer le diagramme (1er rang = sur l'envers) ou commencez, au choix, au 2ème rang (= les dim et les jetés sur l'endroit). Cette information va être remontée à notre équipe, merci. Bon tricot!

22.09.2016 - 08:48

country flag Schiatti wrote:

J'ai commandé et payé de la laine chez Luce tricot pour faire le pull GREEN FOREST depuis le 31 mai dernier et je n'ai rien reçu??? Et je n'ai pas de nouvelles. Que puis je faire? Merci de votre réponse

14.07.2016 - 17:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Schiatti, merci de bien vouloir les contacter directement par mail, téléphone ou sur leur page Facebook, eux seuls peuvent vous répondre. Merci. Bon tricot!

15.07.2016 - 09:58

country flag Hillary wrote:

You give pattern sizes from S to XXXL but don't say what that means. What bust sizes do they correspond to? Any measurement would be more helpful than the ones you give. Thank you!

12.04.2016 - 15:01

DROPS Design answered:

Dear Hillary, you'll find a measurement chart scrolling down the page. Compare these measures with a garment you have, and you'll find the right size. Happy knitting!

12.04.2016 - 15:34