DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Cotton Merino yarn
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 26-10

#cleverclarksweater

DROPS Design: Mynstur nr cm-005-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: (12/18) mán 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: (80/86) 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
(200) 250-250-250-300-350 gr litur nr 15, sinnepsgulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FRÁ RÉTTU:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FRÁ RÖNGU:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l snúnar br saman og síðan 2 l br saman (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp (126) 134-142-150-158-170 l á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (16) 17-19-22-24-27 cm prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynsturteikning A.2 prjónuð í hring. Þegar stykkið mælist (20) 22-25-28-31-34 cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, prjónið (57) 61-65-69-73-79 l (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið (57) 61-65-69-73-79 l (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 l í umf fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp (34) 36-38-38-40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist (6) 6-7-6-7-7 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með (1½) 2-2-2-2-2 cm millibili alls (9) 9-10-13-14-16 sinnum = (52) 54-58-64-68-72 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (17) 20-23-27-29-33 cm prjónið mynstur í hring eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynstur A.2 prjónað í hring. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca (21) 25-29-33-36-40 cm (stillið af þannig að endað er í sömu umf í mynstri eins og fram- og bakstykki) fellið af miðju 6 l undir ermi = (46) 48-52-58-62-66 l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem felldar voru af l fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = (206) 218-234-254-270-290 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
LESIÐ ALLA ÚTSKÝRINGU AF BERUSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

LASKALÍNA: Haldið áfram með mynstur eins og áður yfir allar l. JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls (13) 14-16-15-17-17 sinnum og síðan í hverri umf alls (3) 3-3-7-7-9 sinnum.

HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist (29) 31-35-39-42-46 cm setjið síðustu (17) 17-15-13-9-11 að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn og stykkið er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l (1) 1-1-1-2-2 sinnum og 1 l (0) 1-2-2-2-2 sinnum.

Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru (57) 59-59-57-57-59 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca (33) 36-40-44-48-52 l upp að öxl.

HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 86 til 96 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf br þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til (62) 70-76-80-88-88 l. Prjónið 1 umf sl frá réttu og 1 umf br áður en fellt laust af með sl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
br frá réttu, sl frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu
Diagram for DROPS Children 26-10
Diagram for DROPS Children 26-10

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Ellen skrifaði:

De ribbels aan de onderkant krullen om. Ik ben nog maar op 10cm en kan het dus uithalen. Wat moet ik doen om omkrullen te voorkomen? Het garen is Drops Muskat 100% katoen. Ligt het daar aan?

21.01.2018 - 00:30

DROPS Design svaraði:

Hoi Ellen, Dit kun je eruit halen door het werk, als het klaar is, te 'blokken' of op te spannen. In deze video is uitgelegd hoe je dat doet. Wat ik zelf ook wel doe bij een trui als deze, is hem 1 a 2 nachten tussen twee vochtige handdoeken leggen of de rand in ribbelsteek heel voorzichtig persen met het strijkijzer. Leg het werk op de strijkplank en leg er een vochtige theedoek overheen. Pers dan heel voorzichtig met het strijkijzer.

23.01.2018 - 09:22

country flag Tiziana Iazzolino skrifaði:

Buonasera, gradirei sapere se, utilizzando filati alternativi come Alpaca e Lima, quanti grammi potrebbero essere necessari per la taglia 3/4 anni. Grazie

16.01.2018 - 18:43

DROPS Design svaraði:

Buonasera Tiziana. Al seguente link trova le indicazioni necessarie per calcolare la quantità di filato necessaria usando un filato diverso da quello suggerito nel modello. Alpaca è più sottile del Cottone Merino, mentre Lima è dello stesso gruppo di filati. Verifichi sempre di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

16.01.2018 - 19:49

country flag Cristina Martinez skrifaði:

Lo he hecho para la talla de dos años y ha quedado perfecto. Muchas gracias

17.12.2017 - 05:27

country flag Lena Moberg skrifaði:

Hela arbetet stickas på rundsticka i mönstret talas både mönstret och raglanintagningarna som rätsida och avigsida. Hur gör man ? Hälsningar Lena moberg

10.11.2017 - 17:13

DROPS Design svaraði:

Arbetet stickas runt på rundsticka/strumpstickor, men efter att maskorna har satts på tråd för halsen fortsätter man sticka fram och tillbaka.

13.11.2017 - 18:03

country flag Anne skrifaði:

Hallo, Zou dit patroon ook met gewone naalden gebreid kunnen worden? En wat is dan de steken verhouding?

14.09.2017 - 17:21

DROPS Design svaraði:

Hallo Anne, De stekenverhouding blijft hetzelfde als je breit op rechte naalden, maar je moet de steken voor het voor- en achterpand in tweeën verdelen en daarnaast een kantsteek toevoegen aan beide kanten. Ook moet je er rekening mee houden dat het telpatroon A.2 over een herhaling van 4 steken is. Meer informatie over het aanpassen van een patroon naar rechte naalden vind je hier

18.09.2017 - 10:19

country flag Leonie skrifaði:

Hallo, In der Raglanabnahme ist von Hin- und Rückreihe die Rede aber es wird doch rundgestrickt oder? Ist die Hinreihe dann die 1., 3., 5... Reihe und die Rückreihe die 2., 4.,6... ? Danke!

07.09.2017 - 20:12

DROPS Design svaraði:

Liebe Leonie, die Raglanabnahmen werden zuerst in die Runde gestrickt bis die Maschen für Halsausschnitt stillgelegen sind, dann wird die Paße hin- und zurückgestrickt, gleichzeitig wir es für Halsausschnitt abegekettet und für Raglan wie zuvor abgenommen. Viel Spaß beim stricken!

08.09.2017 - 09:08

country flag Claire Brunelle skrifaði:

Bonjour, j'ai presque terminé grandeur 7-8. Quand vous indiquez de relever 86 à 92 mailles pour l'encolure, cela veut dire de relever de 11 à 13 mailles de chaque côté de l'encolure devant pour total de 86 à 92 (57 sur la broche +9 en attente + 22 à 26 mailles relevées). Est-ce cela?

06.09.2017 - 19:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Brunelle, c'est tout à fait ça, avec les mailles sur l'aiguille + celles en attente, relevez le nombre de mailles nécessaire pour avoir entre 86 à 92 m pour le col. Bon tricot!

07.09.2017 - 08:36

country flag Claire Brunelle skrifaði:

Bonjour, Après avoir mis les 9 mailles (grandeur 7-8) en attente pour l'encolure, peut-on au lieu de rabattre les 12 autres mailles des rangs suivants les mettre en attente avec les 9 premières mailles de l'encolure. Cela donnerait un total de 78 mailles à la fin pour ensuite augmenter 10 mailles pour obtenir 88 mailles pour terminer le col. Conseillez-vous cette méthode. Merci

30.08.2017 - 00:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Brunelle, vous pouvez également procéder ainsi, peut-être même en utilisant la technique des rangs raccourcis (cf différentes techniques en vidéos pour conserver un certain maintien quand vous mettrez les mailles en attente. Bon tricot!

30.08.2017 - 09:19

country flag Claire Brunelle skrifaði:

Bonjour et merci pour vos précieux conseils. Une autre question. Comment conseillez-vous rabattre les mailles à l'encolure. Doit-on glisser la 1re maille, tricoter la 2e, rabattre la 1re sur la 2e, tricoter une autre maille et rabattre une fois de plus pour rabattre 2 mailles en début de rang.

30.08.2017 - 00:23

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Brunelle, tout à fait, procédez ainsi sur l'endroit et sur l'envers au début du rang suivant pour rabattre 1 fois 2 mailles de chaque côté. Bon tricot!

30.08.2017 - 09:14

country flag Claire skrifaði:

Pour la diminution à l'encolure, est-ce vraiment 9 mailles pour la grandeur 7-8 ans. Pour 5-6 ans c'est 13 et pour 9-10 ans c'est 11 diminutions.

14.08.2017 - 01:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Claire. Oui, c'est correct: pour la grandeur 7-8 ans, on doit rabattre 9 mailles pour l'encolure. Bon tricot!

17.08.2017 - 21:59