Mar skrifaði:
Citaten uit tekst: knoopsgaten MAAT S: 29, 35 en 41 cm rechtervoorpand: Begin bij een hoogte van 34 cm met minderen voor de hals, dus schuine gedeelte. Dus voor maat S zit alleen de onderste van de 3 knoopsgaten in het rechte gedeelte. Want bij 34 cm starten de minderingen dus begint het schuine gedeelte. En de knoopsgaten 35 en 41 cm zitten dus in schuine gedeelte. nogmaals de vraag of patroon klopt
08.07.2019 - 17:43DROPS Design svaraði:
Dag Mar,
Inderdaad, ik denk dat je gelijk hebt en dat de minderingen voor de halslijn 1 cm na het laatste knoopsgat moeten starten. Ik heb dit doorgegeven aan de ontwerpafdeling ter controle.
12.07.2019 - 08:38
Mar skrifaði:
Twee van de 3 knoopsgaten zitten in het schuine gedeelte van het voorpand. Is dit niet vreemd. Het zou logischer zijn dat de knoopsgaten in het onderste gedeelte zitten, voordat met de minderingen van het voorpand gestart wordt. Klopt het patroon?
03.07.2019 - 12:22DROPS Design svaraði:
Dag Mar,
Alle knoopsgaten horen inderdaad in het rechte gedeelte te zitten, dus voordat je begint met de minderingen voor de v-hals. Afhankelijk van je maat begin je bij een hoogte vanaf 34 cm voor het minderen van de hals. Het hoogste knoopsgat zit ongeveer 1 cm voor de afschuining van de hals. Als ik de tekening onderaan met de maten bekijk en de positie van de knoopsgaten, dan zou het moeten kloppen.
08.07.2019 - 11:44
Summer's Caress Cardigan |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum Kid-Silk með öldumynstri. Stærð S- XXXL.
DROPS Extra 0-1116 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 2 l og kantlykkjum að framan: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir kantlykkjum að framan: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan: 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 29, 35 og 41 cm. STÆRÐ M: 29, 36 og 43 cm. STÆRÐ L: 30. 37 og 44 cm. STÆRÐ XL: 30, 37 og 44 cm. STÆRÐ XXL: 31, 38 og 45 cm. STÆRÐ XXXL: 31, 39 og 47 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í hlutum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 107-119-133-145-159-171 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 2 þráðum af Kid-Silk. Prjónið mynstur innan við 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN þannig – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið: A.1 1-0-1-0-1-0 sinnum, A.2 7-9-9-11-11-13 sinnum, A.3 1-0-1-0-1-0 sinnum = 91-101-113-123-135-145 l. ATH: Kantlykkjur í garðaprjóni halda áfram í hvorri hlið þar til fitjað er upp fyrir ermum! Haldið svona áfram og endurtakið A.X til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-46-48-45-48-50 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina, fitjið upp 35-35-29-30-24-24 l í lok 2 næstu umf fyrir ermum = 161-171-171-183-183-193 l. Nú heldur mynstrið áfram frá A.X innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið þannig: A.1 1-0-0-1-1-0 sinnum, A.2 13-15-15-15-15-17 sinnum, A.3 1-0-0-1-1-0 sinnum. Þegar stykkið mælist 60-62-65-65-68-70 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 33 l í öllum stærðum. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þessar l er prjónað í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 68-73-73-79-79-84 l (þær 4 l við hálsmál halda áfram í garðaprjóni), fellið af næstu 25 l, 4 l garðaprjón við hálsmál og mynstur eins og áður út umf. Haldið áfram fram og til baka yfir vinstri öxl þar til stykkið mælist alls 65-68-70-70-73-75 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu. Fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 58-64-71-77-84-90 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni) á hringprjóna nr 5 með 2 þráðum af Kid-Silk. Prjónið mynstur þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 1-1-1-1-1-1 sinni, A.2 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.3 1-0-1-0-1-0 sinnum, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 50-55-61-66-72-77 l. ATH: Kantlykkjan heldur áfram þar til fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi og kantlykkjur að framan halda áfram til loka! Haldið svona áfram og endurtakið A.X. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34-37-39-39-42-44 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-46-48-45-48-50 cm fitjið upp nýjar l fyrir ermi: ÚRTAKA Í HÁLSMÁLI: Endurtakið úrtöku í hálsmáli í 4. hverri umf 17 sinnum í öllum stærðum. ATH: Stillið af að A.1 er prjónað við kant að framan þegar ekki eru nægilega margar l fyrir A.2. Þegar ekki eru nægilega margar l í hvorki A.1 eða A.2 við kant að framan, prjónið sléttprjón í síðustu umf frá réttu í mynstri (umf með úrtöku og uppslætti) yfir l sem ekki ganga jafnt upp í kant að framan. FITJIÐ UPP L FYRIR ERMI: Þegar stykkið mælist 43-46-48-45-48-50 cm – stillið af eftir bakstykki og 1 heilli mynstureiningu á hæðina – fitjið upp 35-35-29-30-24-24 l fyrir ermi í lok umf frá réttu. Síðustu 3 l eru prjónaðar í garðaprjóni eins og á bakstykki til loka. Þær l sem eru eftir eru prjónaðar í mynstri A.2 eins og áður og í stærð S, XL, XXL er prjónað A.3 yfir 6 l innan við 3 l garðaprjón á ermi. Þegar öll úrtaka fyrir hálsmáli er lokið eru 68-73-73-79-79-84 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 65-68-70-70-73-75 cm – stillið af eftir bakstykki, fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar mynstur er prjónað er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 1-0-1-0-1-0 sinnum, A.2 3-4-4-5-5-6 sinnum, A.3 1-1-1-1-1-1 sinni, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 50-55-61-66-72-77 l. Þegar fitjaðar eru upp l fyrir ermi, fitjið upp l í lok umf frá röngu og í stærð S, XL og XXL prjónið A.1 yst á ermi innan við 3 l garðaprjón. FRÁGANGUR: Leggið affellingarkantinn frá framstykki og bakstykki á móti hvorum öðrum og saumið axlasauma. Saumið l eina og eina saman með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1116
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.