Mona Sundqvist skrifaði:
Sommarlätt
06.01.2015 - 19:40
Fabienne De Grauwe skrifaði:
Very trendy
06.01.2015 - 18:29
Patrizia Lacelli skrifaði:
Bellissimo modello in linea con la moda e molto elegante
31.12.2014 - 17:31
Petra Powilleit skrifaði:
Gefällt mir einfach sehr gut
28.12.2014 - 22:22
Ester skrifaði:
Un capo versatile, adatto per diverse occasioni.
28.12.2014 - 17:09
Catarina Kristell skrifaði:
Min favorit i år!
17.12.2014 - 21:07
Uschi skrifaði:
Klasse Optik, schnell drüber gezogen für den Sommerabend.
14.12.2014 - 11:49Janet skrifaði:
Beautiful. Look forward to making this one
13.12.2014 - 12:57
Annette skrifaði:
Klasse. Ein super Modell.
12.12.2014 - 20:34
Cristina skrifaði:
Molto bello e prayico
12.12.2014 - 18:00
Just Me#justmesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 162-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með sl, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. 3 ST SAMAN: Heklið 3 st í 1 st þannig: * Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið síðan næsta st en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 94-101-108-122-129-143 ll með heklunál nr 4,5 með Cotton Light. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 stuðull í hverja af næstu 5 loftlykkjum, * 1 st í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll*, endurtakið frá *-* þar til 1 ll er eftir, 1 st í síðustu ll = 80-86-92-104-110-122 st. Heklið nú þannig: 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir 1 st (koma í stað 3 ll), A.1 (= 6 l) alls 13-14-15-17-18-20 sinnum, endið á 1 st í síðasta st. Haldið áfram með þetta mynstur. Gatið í A.1 vísar að 2 l í hverri umf til vinstri (séð frá réttu) þar til gatið mætist einum st í vinstri hlið á stykki. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.z endurtekið til loka. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm. Heklið nú mynstur yfir miðju 68-74-80-80-86-98 l (= 6-6-6-12-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg). Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Heklið st yfir fyrstu 20-23-24-24-24-31 l (= öxl) þannig: Heklið 1 st í hvern st og 2 st um hvern loftlykkjuboga = 20-23-24-24-24-31 st. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki, nema heklað er A.2 í stað A.1, þ.e.a.s. gatið vísar til hægri (séð frá réttu). A.x er endurtekið til loka. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.x er fellt af fyrir hálsmáli (í næstu umf frá röngu) þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 31-34-37-37-40-46 st, heklið 3 ST SAMAN – sjá skýringu að ofan. Snúið við. Endurtakið þessa úrtöku í hverri umf fyrir miðju að framan alls 7-7-8-8-9-9 sinnum = 20-23-24-24-25-31 l eftir á öxl. Heklið nú 1 umf með 1 st í hvern st og 2 st um hvern ll-boga. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á hinni öxlinni. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 45-45-49-49-52-52 ll með heklunál nr 4,5 með Cotton Light. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja af næstu 5-5-7-7-5-5 ll, * 1 st í hverja af næstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 1-1-3-3-1-1 ll, 1 st í síðustu 1-1-3-3-1-1 ll = 38-38-42-42-44-44 st. Heklið 1 st í hvern af fyrstu 1-1-3-3-1-1 st, A.2 þar til eftir eru 1-1-3-3-1-1 st (= 6-6-6-6-7-7 sinnum á breiddina), 1 st í hvern af síðustu 1-1-3-3-1-1 st. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.x endurtekið til loka. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm er aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í fyrsta og síðasta st í umf (= 2 st fleiri). Endurtakið útaukningu með 4½-4-4-3-3-2½ cm millibili 9-10-10-12-12-14 sinnum til viðbótar = 58-60-64-68-70-74 l. Útauknar lykkjur eru heklaðar jafnóðum inn í mynstur. ATH: Það er alltaf 1 st (eða 3 ll = 1 st) á hvorri hlið á stykki. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 52-52-51-51-51-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Heklið saman axlasauma frá röngu í gegnum bæði stykkin þannig: 1 fl í fyrsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-*. Saumið ermar í. Heklið saman sauma undir ermum og hliðarsauma frá röngu í gegnum bæði stykkin þannig: * 1 fl yst í lykkjubogann, 3 ll, hoppið yfir 1 umf *, endurtakið frá *-* þar til ca 10 cm eru eftir á fram- og bakstykki fyrir klauf á hvorri hlið. Klippið frá og festið enda. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmáli frá miðju að ofan á öxl þannig: 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið og endið á 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #justmesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.