Marie Diamond skrifaði:
Pattern 170-21 I don't understand the crochet tip On every dc round replace first dc with ch 3, finish 1 sl st in first ch. I'm a beginner. Thanks
20.11.2020 - 23:12DROPS Design svaraði:
Dear Marie, the crochet tip explains how the round starts and ends. When working dc (in US terms), you need to replace the first dc (work instead of the dc) 3 chain stitches. At the end of the round, you work 1 slip stitch in the third of these chain stitches. Happy crocheting!
20.11.2020 - 23:42
Adila skrifaði:
Hi, Just wanting to double check if you need 150g of the red colour to make this placemat? It seems a bit too much for a single placemat on a diameter of 22 cm. Thank you!
31.07.2019 - 11:43DROPS Design svaraði:
Dear Adila, yarn requirement is correct, remember to check the crochet tension. Happy crocheting!
06.08.2019 - 15:50
Paola skrifaði:
Buongiorno! Nelle istruzioni si dice di usare l'uncinetto numero 3, ma il cotone suggerito indica di usare il numero 5... quale è l'indicazione corretta? Grazie :-)
04.12.2015 - 12:32DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola. Per realizzare questo modello è corretto usare l’uncinetto n° 3: il lavoro deve risultare particolarmente sostenuto. Buon lavoro!
07.12.2015 - 13:12
Lefevre Christine skrifaði:
Que signifient "tour de B" et "tour en B" pour le set de table Père Noèl en DROPS Paris? merci
25.10.2015 - 12:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lefevre, ce sont des tours crochetés en brides - voir info crochet au début du modèle et vidéo. Bon crochet!
26.10.2015 - 11:22
Brunch with Santa#dropsbrunchwithsanta |
|
|
|
Hekluð diskamotta úr DROPS Paris. Stykkið er heklað eins og jólasveinn. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1053 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Umferð með st: Hver umf með st byrjar á 3 ll og endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þessar ll eru ekki taldar með í st-fjölda). Umferð með fl: Hver umf með fl byrjar á 1 ll og endar á 1 kl í ll frá byrjun umf. FL HEKLAÐAR SAMAN: Stingið heklunálinni í fyrstu fl, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu fl, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. LITASKIPTI: Til þess að fá fallega skiptingu við litaskipti er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið nýja þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni. KRABBAHEKL: Heklið eins og fl, nema aftur á bak. Þ.e.a.s. heklað er frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. DISKAMOTTA: Heklið 4 ll með heklunál nr 3 með litnum skærrauður og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 12 st um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st. UMFERÐ 3: * 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 5: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 st. UMFERÐ 6: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 st. UMFERÐ 7: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 5 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 84 st. UMFERÐ 8: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 6 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 st. UMFERÐ 9: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 7 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 108 st. UMFERÐ 10: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 8 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 120 st. UMFERÐ 11: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 9 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 132 st. UMFERÐ 12: * 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 10 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið með 36 st millibili = 144 st. Prjónamerkin merkja fætur og hendur sem heklaðar eru síðar. ATH: Ef óskað er eftir því að hafa diskamottuna stærri er haldið áfram með útaukningu á sama hátt (þ.e.a.s. það verður 1 st fleiri á milli hverra útaukninga í umf). UMFERÐ 13: * KRABBAHEKL – sjá útskýringu að ofan, í fyrsta st, 1 krabbalykkja í hvern af næstu 11 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn 156 krabbalykkjur. Klippið frá og festið enda. HÖFUÐ + HÚFA: Stykkið er heklað í hring. Heklið 5 ll með heklunál nr 3 með litnum ljós ferskja og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um ll-hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl *,endurtakið frá *-* = 24 fl. UMFERÐ 4: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* = 32 fl. UMFERÐ 5: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 3 fl *, endurtakið frá *-* = 40 fl. Nú er byrjun á skeggi heklað með litnum hvítur (ATH: Klippið ekki frá þráðinn með litnum ljós ferskja, það á að hekla áfram með honum síðar) þannig: * Heklið 1 fl framan í lykkjubogann í næstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* 9 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. yfir næstu 20 fl), endið á 1 fl í næstu fl. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan áfram með litnum ljós ferskja. ATH: 1. Umf er hekluð þá aftan í lykkjubogann í síðustu umf með litnum ljós ferskja yfir 20 fyrstu l. Heklið nú 6 umf með 1 fl í hverja fl. Skiptið yfir í litinn hvítur – LESIÐ LITASKIPTI! Til þess að fá þéttari kant neðst niðri á húfunni er hekluð 1 umf þannig (fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll): * 1 st í fyrstu fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar í sömu fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni *, endurtakið frá *-* út umf og endið umf á 1 kl í fyrstu l, skiptið um lit yfir í litinn rauður. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið nú 1 fl í hverja l þar til stykkið mælist 3 cm, troðið vatti í höfuðið áður en heklað er áfram. Næsta umf er hekluð þannig. * 7 fl, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* = 35 fl. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl. Næsta umf er hekluð þannig: * 6 fl, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá = 30 fl. Heklið 1 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið svona áfram (það fækkar um 5 l í annarri hverri umf) þar til 5 l eru eftir. Klippið frá og herðið að efst uppi. SKEGG: Stykkið er heklað fram og til baka yfir þær l sem gerðar voru fyrir skegg með heklunál nr 3 með litnum hvítur. Heklið * 1 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til 1 fl er eftir, endið á 1 fl í síðustu fl = 21 fl. Heklið 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í hverja fl. Endurtakið þessa umf þar til skeggið er ca 2½ cm. Klippið frá og festið enda. Heklið nú eina umf í kringum skeggið með heklunál nr 3 með litnum hvítur. Heklið hverja umf/l í kringum allt skeggið þannig: 1 krabbalykkja, 2 ll. HANDLEGGUR: Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 ll með heklunál nr 3 með litnum rauður, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn – MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 7: LESIÐ FL HEKLAÐAR SAMAN! * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn, skiptið um lit fyrir í litinn ljós ferskja – MUNIÐ EFTIR LITASKIPTI = 18 fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Fyllið handlegginn með vatti. UMFERÐ 9: Heklið * 1 fl í næstu fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 10: Heklið 2 og 2 fl saman umf hringinn = 6 fl. Klippið frá, saumið saman efst uppi og festið vel. Heklið hinn handlegginn á sama hátt. FÓTUR: Stykkið er heklað í hring. Heklið 3 ll með heklunál nr 3 með liltnum svartur, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn – MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 7: Heklið * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Fyllið fótinn með vatti. UMFERÐ 9: Heklið * 1 fl í næstu fl, heklið 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 10: Heklið fl 2 og 2 saman umf hringinn = 6 fl. Klippið frá, saumið saman efst uppi og festið vel. Heklið hinn fótinn á sama hátt. FRÁGANGUR: Gerið dúsk með litnum hvítur ca 4 cm að þvermáli. Festið efst uppi á húfunni. Saumið fætur og hendur við diskamottuna við hvert prjónamerki, saumið höfuðið við diskamottuna mitt á milli handa. Gerið tvo franska hnúta með litnum svartur fyrir augu og festið á höfuðið. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsbrunchwithsanta eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1053
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.