DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-868
DROPS Design: Mynstur nr w-446
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio
100 gr litur nr 12, rauður
50 gr litur nr 23, ljós grár
50 gr litur nr 61, ljós ferskjubleikur
50 gr litur nr 17, natur
50 gr litur nr 15, svartur

DROPS HEKLUNÁL NR nr 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 fl verði 10 cm á breiddina.
Fylgihlutir: vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring):
Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl í utan um galdrahringinn. Þegar þú hefur óskaðan fjölda fl utan um l, dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring.

HEKLAÐ Í HRING:
Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.

2 FL HEKLAÐAR SAMAN:
* Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á nálinni.

LITASKIPTI -FL
Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta fl í umf hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. Haldið áfram með nýja litnum í næstu umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

JÓLASVEINN:

HÖFUÐ:
Stykkið er heklað í hring með litnum ljós ferskjubleikur með heklunál nr 4,5. Byrjið neðst niðri á höfði með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ: 1 Heklið 6 fl um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING að ofan.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 10-13: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl. Skiptið yfir í rautt.
UMFERÐ 14: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, heklið nú 2 FL HEKLAÐAR SAMAN * - Lesið útskýringu að ofan, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl.
UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, heklið nú 2 fl heklaðar saman*, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl.
UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 fl heklaðar saman*, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 19-22: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl.
UMFERÐ 23: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið nú 2 fl heklaðar saman*, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 24-27: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl.
UMFERÐ 28: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið nú 2 fl heklaðar saman*, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 29-32: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl.
UMFERÐ 33: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 fl heklaðar saman*, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
UMFERÐ 34-37: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 38: Heklið allar fl saman 2 og 2 = 6 fl. Klippið frá og fyllið höfuðið með vatti, herðið að.

Í skiptingunni á milli ljós ferskjubleikur og rauður er heklaður kantur með litnum natur þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 st í fyrstu ll, hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í fyrstu ll.

DÚSKUR:
Heklið 21 ll (meðtalin er 1 ll til þess að snúa við með) með nál nr 4,5 með litnum natur. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni og 1 fl í hverja ll = 20 fl. Snúið við. Í næstu umf eru allar fl heklaðar saman 2 og 2 – sjá útskýringu að ofan! = 10 fl. Snúið við og heklið allar fl saman 2 og 2 = 5 fl. Herðið að dúsknum og saumið hann fastan efst á toppi húfunnar.

BÚKUR:
Stykkið er heklað í hring með litnum rauður með heklunál nr 4,5. Byrjið að gera galdrahring neðst niðri á búknum.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl.
UMFERÐ 11: * Heklið 1 fl í næstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 54 fl.
UMFERÐ 12-16: Heklið 1 fl í hverja fl = 54 fl. Skiptið yfir í svart – LESIÐ LITASKIPTI FL.
UMFERÐ 17-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 54 fl. Skiptið yfir í rautt.
UMFERÐ 19-22: Heklið 1 fl í hverja fl = 54 fl.
UMFERÐ 23: * Heklið 1 fl í næstu 7 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 24: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl.
UMFERÐ 25: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 26: Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl.
UMFERÐ 27: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 28: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl.
UMFERÐ 30: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 31: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 32: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl.
Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti.

FÓTUR:
Stykkið er heklað í hring með litnum svartur með heklunál nr 4,5. Byrjið neðst niðri á fæti með því að gera galdrahring.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3-5: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 6: * Hekliðo 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 fl. Skiptið yfir í rauður.
UMFERÐ 7-20: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl.
Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang.
Heklið annan fót á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti.

HANDLEGGUR:
Stykkið er heklað í hring með litnum ljós ferskjubleikur með heklunál nr 4,5.
Byrjið neðst niðri á stykki með því að gera galdrahring.
UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um galdrahringinn.
UMFFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl.
UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn rauður.
UMFERÐ 5-19: Heklið 1 fl i hverja fl = 8 fl.
Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang.
Heklið annan handlegg á sama hátt. Fyllið hendurnar með vatti.

HÁLSKLÚTUR:
Heklið 5 ll (meðtalin er 1 l til þess að snúa við með) með heklunál nr 4,5 með litnum rauður. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni og 1 fl í hverja ll = 4 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl fram og til baka þar til hálsklúturinn mælist ca 40 cm. Klippið frá og festið enda.
Haldið áfram með litnum natur og heklið kant í kringum hálsklútinn þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, hoppi fram ca 1 - 1 ½ cm *, endurtakið frá *-* og endið með kl í fyrstu fl í umf.

KARFA:
Stykkið er heklað í hring með litnum ljós grár með heklunál nr 4,5. Gerið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING að ofan.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í næstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl.
UMFERÐ 7: * Heklið 1 fl í næstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í næstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í næstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 54 fl.
UMFERÐ 10: * Heklið 1 fl í næstu 8 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 fl.
UMFERÐ 11-26: Heklið 1 fl í hverja fl = 60 fl. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið höfuðið fast á búkinn með smáu spori. Festið fætur og hendur á búkinn. Saumið hendurnar fastar á körfuna. Hnýtið hálsklútinn um hálsinn.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-868

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Johanne Mørk Jensen wrote:

Hej er lige stødt på et problem igen den kvast i toppen af nissehuen, jeg prøvede og lave den men kunne ikke trække den sammen er det fordi jeg skal sy ind imellem maskerne for at kan trække den sammen?

22.09.2021 - 19:53

DROPS Design answered:

Hej Johanne. Det är nog inte tänkt att det ska sys ind imellem maskerne, men du kan göra det om du inte kan trekke den sammen på något annat sätt. Mvh DROPS Design

24.09.2021 - 11:08

country flag Johanne Mørk Jensen wrote:

Hej har lige et spørgsmål, er det kun hovedet der skal vat i eller er det også huen?

21.09.2021 - 21:57

DROPS Design answered:

Hej Johanne. Det ska vara vadd i både huvud och hue. Mvh DROPS Design

22.09.2021 - 10:42

country flag Irina wrote:

Hello, with a Christmas Carol, I have a hard time after I finished the head, where do I attach the white yarn? And also I cannot find pattern for the hat. Sorry, I guess I am not very good at it ; ) But I would appreciate if someone will help me.

19.12.2017 - 21:06

DROPS Design answered:

Dear Irina, hat is worked from round 14 when you continue working with red. Then crochet the white edge in the sts around the round where you change colours. Happy crocheting!

20.12.2017 - 09:20

country flag Silvia wrote:

Sì ho fatto il campione come al solito infatti sto' utilizzando un uncinetto n.4 invece che 4.5 perché con il 4.5 le misure non mi corrispondevano precisamente al campione. Grazie

18.11.2013 - 20:30

DROPS Design answered:

Grazie Silvia, abbiamo inviato la segnalazione, se sarà necessario correggeremo il modello sul sito. Grazie, buon lavoro!

19.11.2013 - 15:22

country flag Silvia wrote:

Salve, sto'confezionando questi favolosi Santa Claus ma credo che ci sia un errore nella quantità del cotone rosso da utilizzare, gr. 50 non bastano per l'intero pupazzo, ne servono circa 100 gr per il pupazzo completo.

16.11.2013 - 10:43

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, il suo campione corrisponde a quello indicato? In ogni caso grazie per la segnalazione, lo faremo presente alla casa madre, se ci saranno delle correzioni le troverà sul sito al più presto. Buon lavoro!!!

17.11.2013 - 18:06

country flag Sy Og Hobby Verksted AS wrote:

Her er det beregnet litt lite garn. Jeg brukte 3 nøster av den røde

27.09.2013 - 15:26