Dubost skrifaði:
Bonjour comment faire les cotes de chaussettes pour qu'elles ne tombent pas? Merci
29.11.2020 - 18:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dubost, vérifiez bien votre échantillon et conservez cette même tension lorsque vous tricotez. En fonction des jambes et de l'effet serré souhaité, vous pouvez modifier les côtes comme vous le préférez. Bon tricot!
30.11.2020 - 09:22
Charlotte skrifaði:
Er det mulig å strikke disse i størrelse 45/46? Går det for eksempel ann å strikke noen ekstra runder i partiet fra helen til tå?
12.10.2019 - 09:09DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, ja men det skal gå, sammenlign evt størrelsen med et par herresokker. God fornøjelse!
14.10.2019 - 08:57
Ritva Korpi skrifaði:
Ohjeessa on aivan selvä virhe. Kun käsketään vähentää 8 s, pitäisi lisätä. Ei varmaankaan edes Norjassa ole niin hoikkia sääriä, että 48 s. neuletiheys 23 s 10 cm:llä, eli 23 cm korkeudella noin 21 cm olisi riittävä leveys !!!!!
28.10.2018 - 13:00
Grete skrifaði:
Hvad menes der med efter der er taget ind i skaftet til 48 m : strik efter diagram 1 over alle m ( 3,3,3,4 gange rundt ) 1x i højden. ? Syntes da kun diagrammet er strikket 1 gang før hælen ?????
09.12.2016 - 13:34DROPS Design svaraði:
Hej Grete. Ja, du strikker det ogsaa kun 1 gang i höjden, men du gentager diagrammet 3 gange rundt paa pinden (der er 16 m per gentagelse = 48 m i alt).
13.12.2016 - 13:34
Mette skrifaði:
Hvor mange nøgler af det garn i linker til skal der bruges til et par strømper i str 35/37?
03.10.2016 - 10:39DROPS Design svaraði:
Hej Mette. Der staar: DROPS KARISMA fra Garnstudio 100 g i alle str f.nr 01, naturhvit 100 g i alle str f.nr 18, rød. 1 nögle Karisma er 50 gr saa dvs 2 nögler af begge farver.
03.10.2016 - 11:09
Janie Crosby skrifaði:
I just wanted to say that I love your patterns and can't wait to start working on them. I just discovered this site today.
26.12.2015 - 16:39
Mamie skrifaði:
Très jolies chaussettes, merci et bonne journée ensoleillée
04.12.2014 - 11:37
Merry & Warm#merryandwarmsocks |
|||||||
|
|
|||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn og fullorðna úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri með stjörnum. Stærð 32 - 43. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1051 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9-9-9-11 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9-9-9-11 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 8-8-10-10 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 52-52-56-68 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum rauður DROPS Karisma. Prjónið 1 umf slétt. Skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með stroff = 2 l br, 2 l sl. Þegar stroffið mælist 4-5-5-6 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-8-4 l jafnt yfir = 48-48-48-64 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan A.1 yfir allar l (= 3-3-3-4 sinnum hringinn í umf). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið eftir fyrstu 12-12-13-15 l á prjóni, setjið næstu 24-24-22-34 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-12-13-15 l á prjóni = 24-24-26-30 l fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur með litnum rauður í 4½-5-5½-6 cm. Setjið 1 merki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-12-10 l með litnum rauður hvoru megin við hæl og 24-24-22-34 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 52-52-56-64 l. Setjið 1 merki hvoru megin við 26-26-28-32 l ofan á fæti. Haldið áfram hringinn með litnum rauður – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan 26-26-28-32 l ofan á fæti slétt saman og fyrstu 2 lykkjur á eftir 26-26-28-32 l ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 44-44-48-56 l. Þegar stykkið mælist ca 16-18-20-22 cm frá merki á hæl (= ca 4-4-4-5 cm að loka máli) setjið 1 merki í hvora hlið þannig að það verða 22-22-24-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði merkin þannig: 3 l á undan merki: 2 l slétt saman, 2 l sl (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2), 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-3-3-4 sinnum og síðan í hverri umf alls 6-6-7-7 sinnum = 8-8-8-12 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merryandwarmsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1051
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.