Lillian skrifaði:
Man minskar. 67-2(9)=49
17.08.2014 - 12:09
R. Danielsen skrifaði:
Får ikke maskeantallet på armen til å bli 59 etter alle økninger, men 51 i str S. Kan det stå feil i oppskriften ? Tror det skal bli 53 og ikke 63 i str M. Hvis ikke jeg har oversett noe ? :-)
16.08.2014 - 23:04DROPS Design svaraði:
Hvis du tæller de 4 m med i hver side af ærmet så har du ialt 59 m (4+6+5+4 + 28 + 12) stemmer det?
18.08.2014 - 15:53
Shulagh Concannon skrifaði:
When the pattern says to insert a strand what does it mean? Is it what the marking thread video is demonstrating? Help!!!!!
25.07.2014 - 11:14DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Concannon, you will mark different places in the work, some with a stitch marker and some other with a marking thread - you will find both videos showing how to put these under the tab "videos". Happy knitting!
25.07.2014 - 11:39
Tanja Nicolaisen skrifaði:
Nydelig mønster og fargesammensetning
27.06.2014 - 18:55
Rosannapalombi skrifaði:
Ha una bell'aria nordica
12.06.2014 - 16:11
Allis Aresdatter skrifaði:
It has this special touch using elements from traditional Norwegian patterns
10.06.2014 - 16:24
Lilla Schwarte skrifaði:
Sehr schöner Pulli in zarten Farben und mit hübschem Muster.
09.06.2014 - 21:01
Elisabetta skrifaði:
Adoro i disegni norvegesi. Sono il vostro punto forte!
05.06.2014 - 00:19
Silver Dream#silverdreamsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa og húfa með norrænu mynstri prjónuð úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-2 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir 4 l sem eru staðsettar á milli merkja á fram-/bakstykki og erma. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. MYNSTURLEIÐBEININGAR: Mynsturteikning A.3 sýnir hvernig 4 laskalykkjur eru prjónaðar til þess að það myndist minna bil á milli lykkja. Eftir mynstur er stykkið prjónað til loka með litnum ljós perlugrár. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 120-120-124-124-128-128 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 þegar stykkið mælist 2 cm. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað jafnt yfir um 12-12-12-8-8-8 l = 108-108-112-116-120-120 l (þetta er gert til að flíkin passi betur). Prjónið 1 umf. Í næstu umf er aukið út jafnt yfir 12-28-36-40-36-52 l = 120-136-148-156-172 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umf og setjið jafnframt 8 merkiþræði og 4 merki í stykkið þannig: Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð (miðjulykkja á bakstykki). Prjónið fyrstu 21-24-27-28-28-30 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, Prjónið 6-7-7-8-8-10 lykkjur setjið 1 merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðjulykkja á ermi). Prjónið 5-6-6-7-7-9 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, prjónið 21-24-27-28-28-30 lykkjur og setjið 1 merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðja á framstykki). Prjónið 20-23-26-27-27-29 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, prjónið 6-7-7-8-8-10 lykkjur setjið 1 merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðja á ermi). Prjónið 5-6-6-7-7-9 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 20-23-26-27-27-29 l fram að fyrsta merki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 – LESIÐ MYNSTURLEIÐBEININGAR! ATH: Lykkja með merki á bakstykki, framstykki og ermum á að passa við l með ör í mynstri. Talið út frá hlið (þ.e.a.s. að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingunum á milli fram- og bakstykki og erma). JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig – LESIÐ ÚTAUKNING: Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-0-0-2-10-14 sinnum, í annarri hverri umf alls 14-15-17-19-20-20 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6-6-5-4-2-2 sinnum (= 81-89-97-105-119-131 l á bakstykki og 81-89-97-105-119-131 l á hvoru framstykki). Á ERMI: Aukið út í annarri hverri umf alls 14-15-19-20-25-23 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6-6-4-4-2-4 sinnum (= 59-63-67-71-77-81 l á ermi. Stykkið mælist nú ca 19-19-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti að framan. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 280-304-328-352-392-424 á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið yfir fyrstu 41-45-49-53-60-66 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 59-63-67-71-77-81 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l, prjónið síðan yfir 81-89-97-105-119-131 l (= framstykki), setjið næstu 59-63-67-71-77-81 l á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l, prjónið síðan yfir síðustu 40-44-48-52-59-65 l (= hálft bakstykki) = 178-194-210-230-258-282 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýrra lykkja undir hvorri ermi. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 36-37-38-39-40-41 cm. Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við 2 l í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa l), uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) = 190-206-222-242-270-294 l. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umf er aukið út um 10 l jafnt yfir í öllum stærðum = 200-216-232-252-280-304 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna í sléttprjóni. Setjið l frá öðrum þræðinum á hringprjóna nr 4 (= 59-63-67-71-77-81 l). Prjónið sléttprjón og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l í lok umf = 67-71-75-81-87-91 l. Setjið eitt merki mitt í þessar nýju lykkjur undir ermi. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið við 2 miðju l undir ermi (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 l). Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3-2½-2-2 cm millibili 8-9-10-12-15-16 sinnum til viðbótar (= alls 9-10-11-13-16-17 sinnum) = 49-51-53-55-55-57 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-43-42-42 cm er aukið út um 7-5-7-5-9-7 l jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 45-46-47-47-46-46 cm frá þeim stað sem nýjar l voru fitjaðar upp. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og festið enda. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 116 l með litnum ljós perlugrár á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist ca 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt með litnum perlugrár JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 108 l. Prjónið síðan mynstur eftir mynstri A.1 (= 9 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum ljós perlugrár og sléttprjóni. Prjónið 1 umf JAFNFRAMT eru sett 9 merki í stykkið með 12 l á milli merkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju merki með því að prjóna 2 l slétt saman (= 9 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 10 sinnum = 18 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm á hæðina. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverdreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.