DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 157-10
DROPS Design: Mynstur nr u-733
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43 - 44/46
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 - 30 cm
Hæð á sokk: 23 - 24 - 25 - 26 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150-150-150-200 gr litur 72, ljós perlugrár
50-50-50-50 g litur 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynstur er prjónað í sléttprjóni.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7-7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7-7-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 12-14-14-14 l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Prjónið 2 síðustu l á undan fyrra prjónamerkinu ofan á fæti snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið 2 fyrstu l á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti slétt saman.

ÚRTAKA Á TÁ:
Á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman.
Á eftir prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 64-64-68-68 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-8-8 l jafnt yfir = 60 l. Prjónið A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan A.2 – JAFNFRAMT í fyrstu umf á A.2 er fækkað um 4 l jafnt yfir = 56 l á prjóni. Á eftir A.2 er prjónað A.3 – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-4-0-0 l jafnt yfir = 48-52-56-56 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað, mælist stykkið ca 20 cm. Sokkurinn er prjónaður í sléttprjóni með litnum ljós perlugrár til loka. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26 cm er haldið eftir fyrstu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl, setjið eftirfarandi 24-26-28-28 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 24-26-28-28 hæl-l í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki á hæl. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 11-12-13-14 l hvoru megin við hæl og 24-26-28-28 l af þræði eru settar aftur til baka á prjóninn = 58-64-68-70 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28-28 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 7-8-8-7 sinnum = 44-48-52-56 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-4-5-5 cm að loka máli). Setjið prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 22-24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin LESIÐ ÚRTAKA Á TÁ! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf 5-6-6-7 sinnum = 8 l eftir á prjóni.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós perlugrár
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Bb wrote:

The heel decrease just leaves big holes? i watched the video, which is super hard to see, and im doing the same thing she's doing but mine has these big holes at the turn

23.11.2020 - 00:44

DROPS Design answered:

Dear Bb, try to tighten the yarn somewhat more if you have some holes - do this when you decrease as well as when you work the first stitch after turning. Hope this helps. Happy knitting!

23.11.2020 - 10:10

country flag Bb wrote:

What does "insert one marker on heel" mean?

23.11.2020 - 00:23

DROPS Design answered:

Dear Bb, you need here to insert a marker on the last row worked to be able to measure the length of the foot before working the toe. Happy knitting!

23.11.2020 - 10:09

country flag Jacqueline wrote:

Als je de pdf donwloadt, bevat die slechts 1 pagina: met alleen de benodigdheden, maar niet de beschrijving en ook geen telpatroon van het motief. Ik zou het patroon graag offline bewaren, omdat ik niet overal de beschikking heb over internet. (Overigens zijn pdf's wel goed van enkele andere patronen die ik geprobeerd heb).

11.12.2019 - 18:56

Ming wrote:

Thanks for this lovely pattern! I just finished a pair and found that the pattern does not match up very well at the end of each round. What can I do to improve the continuity?

21.11.2017 - 01:18

DROPS Design answered:

Dear Ming, this video shows how to avoid jog when working stripes and can be adapted for fair isle patterns. Happy knitting!

21.11.2017 - 08:39

country flag Helena wrote:

Sokkene er alt for store i forhold til størrelsen. Har strikket i karisma og med riktig strikkefasthet - sokkene er veldig vide.

07.06.2017 - 04:54

country flag Anna wrote:

Dies ist mein erstes Projekt mit Norwegermuster mit zwei Fäden und ich bin ganz begeistert, wie gut es geklappt hat. Allerdings wird der gemusterte Teil durch den mitgeführten Faden viel wärmer, als der untere, einfarbige Teil des Sockens. Gibt es irgendwelche Tipps, um das zu ändern? Ich fände es schön, wenn gerade der Fußteil genauso dick und warm wäre.

25.03.2017 - 00:33

DROPS Design answered:

Liebe Anna, wenn Sie 2-Fädig arbeiten, wir es immer bisschen dicker sein, als wenn Sie nur 1-Fädig arbeiten. Ihre Maschennprobe im beiden Fällen aber beachten. Viel Spaß beim stricken!

27.03.2017 - 08:46

country flag Stephanie Bevis wrote:

Just love these socks - my first ever pair of handmade socks for myself... already not my last! Thank you Drops.

19.03.2015 - 14:20

country flag Merilyn wrote:

Koo 1 ring parempidises koes, SAMAL AJAL kahanda 4-4-8-8 s ühtlaste vahedega = 60 Kas SAMAL AJAL tähendab, et hakkan kohe selle ringi ajal kahandama, või koon enne ühe ringi parempidises koes ära ja hakkan alles siis kahandama?

26.02.2015 - 20:16

DROPS Design answered:

See tähendab, kahandama peab sel sama parempidisel real. Head kudumist!

18.12.2015 - 12:13

country flag Kristine Motrøen wrote:

Hei! Jeg er ganske nybegynner når det gjelder strikking og skjønner ikke helt hvordan jeg skal få A1 til å gå opp? Det står at man skal ha 60 masker totalt, som vil si 15 per pinne(?), men diagram A1 er beregnet på 12 masker? Hva gjør jeg da? Hilsen Kristine

29.12.2014 - 13:21

DROPS Design answered:

Hei Kristine. Du har 60 masker og gentager A.1 (12 m i bredden) 5 gange gentaget i bredden = 60 masker i alt. Derefter mindsker du til 56 m og strikker du videre efter A.2 (8 masker i bredden) = 7 gange gentaget i bredden.

13.01.2015 - 14:28

country flag Luab wrote:

Strikker disse i str 38/40, og har derfor 52 masker etter at det er felt første omg av A3. Dette vil si 13m per pinne. Men A3 stemmer ikke overens med antall masker i diagrammet. Prøv å del 52 på 12 (som diagrammet viser), det går ikke opp. Er det meningen at det egentlig skal være 13 masker i diagrammet, da 13 *4 = 52? Og hva skal i såfall være i den siste maska? På forhånd takk for svar!

20.10.2014 - 19:16

DROPS Design answered:

Hej Luab, Jo men A.3 viser 4 m (ikke 12m) i diagrammet og 52/4 = 13 gange ifølge diagrammet. God fornøjelse!

23.10.2014 - 11:32