DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Dream Cardigan

Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Karisma með norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-1
DROPS Design: Mynstur nr u-732
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
450-500-550-600-700-750 gr litur nr 72, ljós perlugrár
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRIGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 6-6-7-7-7-7 stk.

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 56/58 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100 gr litur nr 72, ljós perlugrár
50 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni sléttprjóni.

UPPHÆKKUN:
Prjónuð er upphækkun aftan í hnakka þannig: ATH! Í hvert skipti sem snúið er við mitt í stykkinu er 1. lykkjan tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram. Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til 22-25-28-29-29-31 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 22-25-28-29-29-31 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 37-41-46-49-49-53 l eru eftir, snúið við og herðið á þræði og prjónið þar til 37-41-46-49-49-53 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 53-58-65-70-70-76 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 53-58-65-70-70-76 l eru eftir í hinni hliðinn.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir 4 l sem eru staðsettar á milli merkja á fram-/bakstykki og erma. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

MYNSTURLEIÐBEININGAR:
Mynsturteikning A.3 sýnir hvernig 4 lykkjur í laskalínu eru prjónaðar svo það myndist minna bil á milli lykkja. Eftir mynstur er stykkið prjónað til loka með litnum ljós perlugrár.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Hálsmálið og kantur að framan er prjónað síðast.

PEYSA:
Fitjið upp 111-111-115-119-123-123 l (meðtalin 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) með hringprjónum nr 4 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf br frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út jafnt yfir 12-28-36-40-36-52 l = 123-139-151-159-159-175 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan UPPHÆKKUN - sjá útskýringu að ofan – í hnakka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 umf yfir allar l, næsta umf er frá réttu.
Prjónið 1 umf og setjið jafnframt 8 merkiþræði og 5 merki í stykkið þannig:
Prjónið 22-25-28-29-29-31 l, setjið 1 merkiþráð eftir þessa lykkju og setjið eitt merki í 2. lykkju frá byrjun (= miðja framan á hægra framstykki). Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, prjónið 6-7-7-8-8-10 lykkjur, setjið eitt merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðjulykkja á ermi). Prjónið 5-6-6-7-7-9 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur og setjið 1 merkiþráð. prjónið 21-24-27-28-28-30 lykkjur og setjið eitt merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðja á bakstykki). Prjónið 20-23-26-27-27-29 lykkjur og setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, prjónið 6-7-7-8-8-10 lykkjur og setjið eitt merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= mitt á ermi). Prjónið 5-6-6-7-7-9 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur og setjið 1 merkiþráð. Prjónið 22-25-28-29-29-31 lykkjur, setjið eitt meri í næst síðustu lykkju (= mitt framan á vinstra framstykki).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 – LESIÐ MYNSTURLEIÐBEININGAR! ATH: Lykkja með merki í bakstykki, framstykki og ermum á að passa við l með ör í mynstri. Talið út frá hlið (þ.e.a.s. að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingunum á milli fram- og bakstykki og erma). JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig – LESIÐ ÚTAUKNING:
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-0-0-2-10-14 sinnum, í annarri hverri umf alls 14-15-17-19-20-20 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6-6-5-4-2-2 sinnum (= 81-89-97-105-119-131 l á bakstykki og 42-46-50-54-61-67 l á hverju framstykki).
Á ERMI: Aukið út í annarri hverri umf alls 14-15-19-20-25-23 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6-6-4-4-2-4 sinnum (= 59-63-67-71-77-81 l á ermi. Stykkið mælist nú ca 19-19-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti að framan.
Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 283-307-331-355-395-427 á prjóni. Næsta umf er frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 42-46-50-54-61-67 l (= framstykki), setjið næstu 59-63-67-71-77-81 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l, prjónið síðan yfir 81-89-97-105-119-131 l (= bakstykki), setjið næstu 59-63-67-71-77-81 l á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l, prjónið síðan yfir síðustu 42-46-50-54-61-67 l (= framstykki) = 181-197-213-233-261-285 l. Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýjar l undir hvorri ermi. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist ca 36-37-38-39-40-41 cm frá uppfitjunarkanti að framan. Aukið síðan út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 miðjulykkjur í hvorri hlið (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa lykkja), uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) = 193-209-225-245-273-297 l.
Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 7 l jafnt yfir í öllum stærðum = 200-216-232-252-280-304 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir. Endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna í sléttprjóni. Setjið l frá öðrum þræði á hringprjóna nr 4 (= 59-63-67-71-77-81 l). Prjónið sléttprjón og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l í lok umf = 67-71-75-81-87-91 l. Setjið eitt merki mitt á milli þessa nýju l undir ermi. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið við 2 miðju l undir ermi (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 l). Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3-2½-2-2 cm millibili 8-9-10-12-15-16 sinnum til viðbótar (= alls 9-10-11-13-16-17 sinnum) = 49-51-53-55-55-57 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-43-42-42 cm er aukið út um 7-5-7-5-9-7 l jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 45-46-47-47-46-46 cm frá þeim stað sem nýjar l voru fitjaðar upp. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kanturinn að framan er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 3,5. Prjónið upp 120-124-128-132-136-140 l, (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 kantlykkju á vinstra framstykki með litnum ljós perlugrár. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br og 1 l garðaprjón. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en þegar stroffið mælist ca 1,5 cm er fellt af fyrir 5-5-6-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í br mynstureiningunum séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 6 cm ofan frá (það á einnig að vera 1 hnappagat í hálsmáli), hin hnappagötin eiga að vera staðsett með ca 8 cm millibili. Það er lengra á milli eftir síðasta hnappagatið að neðan við kant.

HÁLSMÁL:
Byrjið lengst út á hægri kanti að framan að ofan. Notið hringprjóna nr 3,5 og litinn ljós perlugrár, prjónið upp 128-128-132-136-140-140 l (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) í kringum allt hálsmál og yfir vinstri kant að framan. Prjónið stroff þannig (= 1. umf = ranga): 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin hnappagötin í hægri kant að framan. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum og festið enda.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 116 l með litnum ljós perlugrár á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist ca 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt með perlugrár JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 108 l. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 9 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum ljós perlugrár og sléttprjóni. Prjónið 1 umf JAFNFRAMT eru sett 9 merki í stykkið með 12 l á milli merkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju merki með því að prjóna 2 l slétt saman (= 9 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 10 sinnum = 18 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm á hæðina.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.11.2015
PEYSA: Alveg í lokin er búið að taka í burtu .. og prjónið 1 l.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós perlugrár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Brittinger wrote:

Ökning: När jag kommer fram till första markören ökar jag 1m stickar 3 m och är då framme vid nästa markör. Där ökar jag 1 m. Stickar sedan till markören för ärm då jag ökar 1 m före och 1 m efter markören. Är det så man ska göra? Finns ju ingen möjlighet att få till mönstret???? Vad används diagram A3 till? Tycker beskrivningen är mycket otydlig och tyvärr även era svar men hoppas nu på mer tydlighet och hjälp!

21.12.2023 - 15:30

DROPS Design answered:

Hej Brittinger, ja du ökar (stickar den i färgen enligt mönsteret), stickar 3 m, ökar och stickar den i mönster... osv, mönstret börjar vid varje raglanövergång och fortsätter alltså inte hela vägen runt!

02.01.2024 - 08:51

country flag Brittinger wrote:

Det ökas 1 m genom att göra ett omslag före och efter de 4 m som sitter mellan markörerna på framst/bakst och ärmarna. Omslagen stickas vridet räta på nästa v. De ökade m stickas fortlöpande in i mönstret. Hur görs ökningen på ärmen? Vart gör jag den? Samtidigt som ökningen för raglan? Förklara tydligt, tack!

12.12.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Hej Brittinger, Markøren sidder i overgangen mellem ryg & forstykke og ærmerne, så den ene af de 2 økninger er på ærmet og den anden er på ryg eller forstykket. Det er selve raglanøkningen som bliver til nye masker både på ærmet og på ryg og forstykke. Se vores video om hvordan man øker til raglan, du finder den nederst i mønsteret :)

13.12.2023 - 07:50

country flag Brittinger wrote:

Hur ska mönstret A2 bli rätt när jag ökar 2+2 msk på höger sida och 2+2 msk på vänster sida vartannat varv för ragglan. Finns ju ingen möjlighet att följa mönstret. Förklara tydligt hur detta ska göras!

11.12.2023 - 19:07

DROPS Design answered:

Hej Brittinger, jo du fortsätter mönstret som tidigare, och så bygger du på det befintliga mönstret efterhand som du får nya maskor. Så är du på en rad med 3mörka, 1ljus,3mörka,1 ljus, och har precis stickat 2 mörka, så fortsätter du med 1 mörk (så du har 3) osv :)

12.12.2023 - 10:36

country flag Tanja wrote:

Hallo! Wenn es beim höheren Halsrand heisst" an der hinteren Mitte anfangen", heisst das, ich soll nach der vorherigen Runde den Faden abschneiden und mittig neu beginnen?

30.09.2022 - 07:04

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, nach der letzten verkürzten Reihen, wenden Sie und stricken Sie alle Maschen bis Ende dieser Reihen, wenden Sie und die Reihe über alle Maschen stricken, wenden Sie und dann wie erklärt unter JACKE weiterstricken. Viel Spaß beim stricken!

30.09.2022 - 08:27

country flag Gitte wrote:

Hej. \r\nJeg kan Ikke få opskriften til , at gå op i 3x XL. Det er i de forhøjning og der hvor mærketråd og mærkerne skal sættes. Vil ikke godt uddybe det for mig. Og skrive hvordan jeg skal starte med forhøjning og hvor de mærketråd og mærker skal være. Håber at i kan hjælpe mig.Hilsen Gitte F.

17.12.2021 - 18:32

country flag Gerd Ingrid Olsen wrote:

Er det forskjell mellom denne og \"Narvik Jacket by DROPS Design\"? \r\n\r\nhvilken modell er lettest å strikke?

03.01.2020 - 11:38

DROPS Design answered:

Hej Gerd, vælg den du synes bedst om, bare du følger opskriften, så skal du nok finde ud af det :)

10.01.2020 - 15:49

country flag Ann-Kristin wrote:

Om jag gör som det står i mönstret blir knapphålet väldigt litet. Knappen i mönstret är 20 mm o knapphålet mycket mindre.

20.08.2019 - 22:17

DROPS Design answered:

Hei Ann- Kristin. Ett kast til knappehull skal være nok til knappen som skal brukes. En strikket stolpe med knappehull er tøyelig, men kan være trang de første gangene. Om du ønsker et større knappehull, kan du gjøre 2 kast om pinnen istedenfor 1 kast. God Fornøyelse.

09.09.2019 - 11:04

country flag Rebecka wrote:

Hej! Jag förstår inte hur jag ska komma vidare. Jag har precis satt ut de olika markörerna och ska nu börja sticka efter mönstret, A.3. Min fråga är vart jag ska öka för raglan? Förstår inte förklaringen under ökningstipset, att det ska ökas en maska före och efter de 4 maskorna som sitter mellan markörerna på främst/bakst och ärmarna. Skulle ni kunna förklara vart jag ska göra ökningarna? Hur många ökningar blir det på vart annat varv? Stickar st. medium. Tack!

18.08.2019 - 15:10

DROPS Design answered:

Hej, du ökar 1 maska på varje sida om de 4 maskorna i raglanlinjen (dessa maskor sitter mellan markörerna). I storlek M ökar du totalt 15 gånger på vartannat varv och 6 gånger på vart 4:e varv på fram -och bakstycket. På ärmarna ökar du 15 gånger på vartannat varv och sedan 6 gånger på vart 4:e varv. Det ökas alltså inte alla gånger samtidigt på fram- och bakst och ärmarna.

19.08.2019 - 18:05

country flag Solvor wrote:

Hei. Hvis jeg ønsker å strikke denne jakken i et tynnere garn, for at jakken ikke skal bli så tykk. Hvordan omregner jeg da mønsteret? Hvilket garn kan da anbefales? Mvh Solvor

05.04.2019 - 12:08

DROPS Design answered:

Hei Solvor. Hvis du vil strikke den i et tynnere garn vil du få en annen strikkefasthet enn angitt. Du må derfor regne om alle maskeantall i genseren, og samtidig passe på at mønsteret går opp i hele rapporter. Det er selvfølgelig ikke noe i veien for at du gjør dette, men vær klar over at det krever en del regning. Ta utgangspunkt i strikkefastheten din i det andre garnet, og målene du ønsker på plagget. Cm-målet i bredden kan du gange med strikkefastheten for å få maskeantall. For en oversikt over våre tynneste garn, se på garnene i garngruppe A. God fornøyelse

08.04.2019 - 15:17

Christiane wrote:

Danke fuer die Antwort. Wie oft stricke ich 'jede 2. Reihe' bevor ich anfange, 'jede 4. Reihe' zu stricken? (Ich stricke die Jacke in Groesse M) Ist mit 'jede 2. Reihe' jede 2. Hin-Reihe gemeint oder insgesamt jede 2. Reihe? Und kommen diese Zunahmen zusaetzlich zu den Zunahmen fuer die Raglanaermel (je eine M vor und hinter den 4 Raglan M)?

09.03.2018 - 13:46

DROPS Design answered:

Liebe Christiane, in der Größe M wird es 15 Mal in jeder 2. Reihe und 6 Mal in jeder 4. Reihe zugenommen. In jeder 2. Reihe = 1 Reihe mit Zunahmen, 1 Reihe ohne Zunahmen stricken, diese beide Reihe insgesamt 15 Mal wiederholen. In jeder 4. Reihe zunehmen = 1 Reihe mit Zunahmen, 3 Reihen ohne Zunahmen stricken, diese 4 Reihe insgesamt 6 Mal wiederholen. Bei den Ärmeln wird es in jeder 2. Reihe 15 x und in jeder 4. Reihe 6x zugenommen, dh unterschiedlich von Rumfteil. Viel Spaß beim stricken!

09.03.2018 - 14:25