Suzy skrifaði:
Hi, I love this pattern and would like to make size small. I made 88 chains, for the back, as directed on the pattern - but end up I with 72 DC , not 71 DC as stated on the pattern. I have analysed the first row instructions and done the maths and you can only end up with 72 stitches. Is there a pattern correction available? Many thanks
11.01.2017 - 21:35DROPS Design svaraði:
Dear Suzie, you should have 71 dc + the first 3 ch = 1 tr. Happy crocheting!
19.01.2017 - 11:13
Carine Steensels skrifaði:
Bij beschrijving van gehaakte drops trui met losse col en bezemsteelkant van Nepal drops 158-151 modelnr Ne-151 staat bij het achterpand haak als volgt : 1 stil in 4de l vanaf haha, haak
14.08.2015 - 18:54DROPS Design svaraði:
Hoi Carine. Ja, je haakt 1 stk in de 4e l vanaf de haakt (3 l = 1e stk van de toer)
18.08.2015 - 17:07
Michaela skrifaði:
Extra
11.06.2014 - 17:51
Mady skrifaði:
Beau modèle grosse dentelle au crochet pour un pull enveloppant séduisant. J'aime.
09.06.2014 - 17:48C Darmanin skrifaði:
Pretty. Crochet is totally in at the moment.
05.06.2014 - 10:16
Lavender Touch#lavendertouchsweater |
|
|
|
Hekluð peysa úr DROPS Nepal með kústskaftsmynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 st í 1 st. MYNSTUR-1: Heklið 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st í hverri umf frá réttu og í fremri lykkjubogann á hverjum st í hverri umf frá röngu. KÚSTSKAFTSMYNSTUR: UMFERÐ 1 (= ranga): Setjið fyrstu ll á prjón nr 20, * takið upp 1 l með heklunál nr 5 í gegnum fremri lykkjubogann á næstu l og setjið l laust á prjóna nr 20 *, endurtakið frá *-* alla umf. Notið 2 prjóna nr 20 ef þörf er á. Allar l í umf liggja nú laust á prjónum nr 20. UMFERÐ 2 (= rétta): * Stingið heklunálinni í gegnum 5 fyrstu l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 5 l saman), takið l af prjóni og heklið 1 ll, 5 fl í gegnum 5 lykkjurnar, heklið 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir á prjóni, stingið nú heklunálinni í gegnum 5 l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 5 l saman), heklið 1 ll, takið l af prjóni og heklið 5 fl í gegnum 5 l. UMFERÐ 3 (= ranga): 3 ll – sjá HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, 1 st framan í lykkjubogann í hverja fl frá fyrri umf (þ.e.a.s. ekki er heklað í ll og kl frá fyrri umf). UMFERÐ 4 (= rétta): 1 st aftan í lykkjubogann á hverjum st frá fyrri umf. Endurtakið umf 1-4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 88-92-101-108-119-128 ll með heklunál nr 5 með Nepal. Heklið næstu umf þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 st í hverja af næstu 0-4-1-2-1-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 71-75-82-88-97-105 st (3 fyrstu ll = 1 st). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið nú MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar 6 umf hafa verið heklaðar, heklið nú áfram með st í gegnum báða lykkjubogana. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 13 cm er felldur af 1 st í hvorri hlið á stykki (= 2 l færri) – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 13-7-6-4-3½-2½ cm millibili 2-4-5-8-10-14 sinnum til viðbótar = 65-65-70-70-75-75 st. Heklið st þar til stykkið mælist ca 42-45-47-50-51-53 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu. Heklið nú KÚSTSKAFTSMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 51-54-56-59-60-62 cm, stillið af að næsta umf sé umf 4 (= rétta) í kústskaftsmynstri, heklið kústskaftsmynstur eins og áður en einungis yfir miðju 55-55-60-60-65-65 st (5 st í hvorri hlið = handvegur). Þegar stykkið mælist 69-72-75-78-81-83 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 í kústskaftsmynstri, heklið nú 1 umf með st yst í 15-15-20-20-20-20 st á hvorri hlið (miðju 25-25-20-20-25-25 st = hálsmál). Klippið frá og festið enda. FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 61-64-69-72-71-73 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 eða 4 í kústskaftsmynstri, heklið nú einungis yfir síðustu 15-15-20-20-20-20 st í hvorri hlið (miðju 25-25-20-20-25-25 st = hálsmál). Haldið áfram með kústskaftsmynstur þar til stykkið mælist 71-74-77-80-83-85 cm, stillið af að síðasta umf sé umf 3 í kústskaftsmynstri. Klippið frá og festið enda. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka og er saumað saman í lokin. Heklið 44-44-44-50-50-50 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni. Haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 35-35-35-40-40-40 st. Heklið síðan mynstur-1. Þegar heklaðar hafa verið 6 umf svona (stykkið mælist ca 8 cm) og síðasta umf sé frá réttu, heklið þá kústskaftsmynstur til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm, stillið af að næsta umf sé umf 3 í kústskaftsmynstri, aukið út 2 st jafnt yfir í umf 3 í kústskaftsmynstri – lesið ÚTAUKNING að ofan. Aukið síðan út um 3 st jafnt yfir í næstu umf = 40-40-40-45-45-45 st. * Heklið 1 mynstureiningu af kústskaftsmynstri á hæðina. Heklið umf 1-2 af kústskaftsmynstri, aukið síðan út 2 st jafnt yfir í umf 3 í kústskaftsmynstri. Aukið síðan út um 3 st jafnt yfir í næstu umf = 5 st fleiri *, endurtakið frá *-* 2-2-3-2-3-3 sinnum til viðbótar á hæðina = 55-55-60-60-65-65 st. Heklið kústskaftsmynstur þar til stykkið mælist 55-56-55-56-56-57 cm á hæðina, stillið af að endað sé á umf 3 eða 4. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. ATH: Ermar eru saumaðar einungis í stuðla-umf á fram- og bakstykki. Saumið saman hliðarsauma og ermasauma yst í lykkjubogann með 1 spori í hverja umf. ATH: Saumið einungis í stuðla-umf á ermi. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmál frá miðju ofan á öxl þannig: 1 fl í hvern st, 2 fl í hverja umf 3 og 4 í kústskaftsmynstri og 3 ll yfir umf 1 og 2 í kústskaftsmynstri í kringum allt hálsmálið. Heklið nú fl í ll-boga og í fl JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 78-78-62-62-84-84 fl. Heklið 4-4-0-0-2-2 umf með fl JAFNFRAMT í hverri umf er fækkað um 5-5-0-0-7-7 l jafnt yfir (= alls 20-20-0-0-14-14 færri l) = 58-58-62-62-70-70 fl. Klippið frá og festið enda. LAUS KRAGI: Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður. Heklið 78-78-83-83-88-88 LAUSAR ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5 með Nepal. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 st í hverja ll = 75-75-80-80-85-85 st (3 fyrstu ll = 1 st). Heklið nú umf 4 í kústskaftsmynstri. Endurtakið umf 1-4 í mynstri þar til stykkið mælist ca 10 cm, stillið af að næsta umf sé umf 2 í kústskaftsmynstri. Heklið * 6 fl um 5 l á prjóni *, endurtakið frá *-* 14 sinnum til viðbótar, síðan * heklið 5 fl um 5 l á prjóni *, endurtakið frá *-* alls 0-0-1-1-2-2 sinnum = 90-90-95-95-100-100 fl. Heklið nú umf 4 í kústskaftsmynstri. Endurtakið umf 1-4 í kústskaftsmynstri, nú eru 18-18-19-19-20-20 mynstureiningar í umf 1-2 í mynstri. Þegar stykkið mælist 15 cm, stillið af að síðasta umf er umf 2 í mynstri, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman kraga í hlið í hverja fl/st-umf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavendertouchsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.