Maren skrifaði:
Eine Frage:In der Anleitung steht:In der nächsten Rd auf jeder Seite der vorderen und hinteren Markierung je 1 M aufnehmen.Diese Aufnahmen in jeder Runde noch 3x wdh(= insgesamt 4Aufnahmen)=136M in der Rd.4x2 Maschen aufnehmen sind dann doch aber nur 8 Maschen mehr,also 128.Muss ich 8x Maschen aufnehmen?Und wann genau fange ich mit den Beinen an?Wenn ich acht mal die Frabe gewechselt habe oder wenn ich eine bestimmte Länge gehäkelt habe?
01.09.2014 - 10:00DROPS Design svaraði:
Liebe Maren, Sie nehmen jeweils beidseitig jeder Markierung zu, also an jedem Markierer 2 M = 4 M pro Rd. Dann haben Sie also insgesamt 16 zugenommene M. Mit den Beinen fangen Sie direkt nach der letzten Zunahme-Rd an.
01.09.2014 - 12:13
Heidi skrifaði:
Forstår ikke hvor man skal begynne å hekle stripemønster i forbindelse med forhøyningen bak.
24.06.2014 - 08:43DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. Du skal ikke hekle stripemönster naar dy hekler forhöyningen. Du skal först begynde paa striberne naar du er faerdig med den forhöyning
25.06.2014 - 17:13
Piret skrifaði:
Proovisin teha, aga 140 ahelsilmusega alustades tuleksid püksid ikka väga väga suured.
26.05.2014 - 20:21
Heartthrob Pants#heartthrobpants |
|
|
|
Heklaðar buxur fyrir börn með snúru í mitti úr DROPS Alpaca. Stærð 0-4 ára
DROPS Baby 25-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með fl byrja á 1 ll, umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf. Allar umf með st byrja á 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. ATH: Þessar ll koma EKKI í stað fyrstu fl/st í umf. RANDAMYNSTUR: UMFERÐ 1 (= frá röngu með natur): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 2 (= frá réttu með natur): Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 3 (= frá röngu með natur): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 4 (= frá réttu með natur): Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 5 (= frá röngu með ísblár): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 6 (= frá réttu með ísblár): Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 7 (= frá röngu með ísblár): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 8 (= frá réttu með ísblár): Heklið 1 fl í hvern st. Endurtakið umf 1-8. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 l saman. Þetta er gert þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að bregða þræðinum í síðasta skiptið um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður, en eftir hverja umferð er stykkinu snúið við og heklað er til skiptið frá réttu og röngu. BUXUR: Heklið 140-147-154 (161-168) ll með heklunál nr 3 með litnum ísblár og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja að aftan. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll, síðan * 1 fl í hverja af fyrstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 120-126-132 (138-144) fl. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl í 2 umf til viðbótar. Heklið nú 1 umf með opi fyrir snúru þannig: Heklið 4 ll (koma í stað 1 st + 1 ll), * hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Í næstu umf er hekluð 1 fl í hverja ll og í hvern st. Heklið 1 umf til viðbótar með 1 fl í hverja fl. Nú er hekluð upphækkun að aftan þannig: Heklið 10 fl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og heklið 1 fl í hverj af fyrstu 20 fl, snúið við, heklið 1 fl í hverja af fyrstu 30 fl, haldið svona áfram að hekla yfir 10 fl fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til heklað hefur verið yfir alls 80-80-100 (100-120) fl. Snúið við og heklið aftur til baka. Haldið áfram hringinn yfir allar l með RANDAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-17-18 (19-20) cm við miðju að framan, setjið 1 prjónamerki við miðju að framan, það eiga að vera 60-63-66 (69-72) l á milli prjónamerkja við miðju að framan og við miðju að aftan. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki að framan og að aftan með því að hekla 2 fl/st í sömu l. Endurtakið útaukningu í hverri umf 3-3-4 (4-4) sinnum til viðbótar (= alls 4-4-5 (5-5) útaukningar) = 136-142-152 (158-164) l alls í umf. Heklið síðan skálmar hvora fyrir sig. SKÁLM: Nú er heklað þannig til að skipta upp stykkinu fyrir skálmar: Heklið kl yfir fyrstu 5 fl í umf (klof), heklið síðan fl yfir næstu 58-61-66 (69-72) l og endið með 5 kl yfir síðustu 5 fl í umf (klof). Klippið þráðinn. Setjið 58-61-66 (69-72) lykkjur saman og haldið áfram að hekla randamynstur hringinn yfir þessar lykkjur, hoppið yfir 10 kl (klof). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = innri hlið á skálm. Þegar skálmin mælist 2-2-2 (3-3) cm, fellið af 1 fl hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2½-3 (3½-4½) cm millibili, 6-6-6 (5-5) sinnum til viðbótar (= alls 7-7-7 (6-6) úrtökur) = 44-47-52 (57-60) fl. Heklið síðan áfram þar til skálmin mælist 16-20-22 (27-32) cm (endið eftir rönd með litnum natur). Heklið síðan 8 umf fl með litnum ísblár. Klippið frá og festið enda. Heklið aðra skálm á sama hátt, 10 l við miðju að framan og við miðju að aftan = op. FRÁGANGUR: Saumið saman op í klofi kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. SNÚRA: Heklið með litnum natur með heklunál nr 3 þannig: * Heklið 2 ll, 1 fl í fyrstu ll *, endurtakið frá *-* þar til snúran mælist ca 80-85-90 (95-100) cm, klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna í gataumferðina efst uppi á buxunum – byrjið og endið við miðju að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #heartthrobpants eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.