DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-20
DROPS Design: Mynstur nr z-096-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 9-10-11-12 (14-15) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50-50-(50-50) gr litur nr 100, natur
50-50-50-50-(50-50) gr í litur nr 8105, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fl/st verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring).
Umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka).
Í byrjun hverrar umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring).
Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka).

ÚTAUKNING:
Aukið út 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í umf eftir að st framan á tátilju hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla aðeins fastara framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að dregið er aðeins meira í þráðinn á milli hverra st sem heklaðir eru. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að miðjustykkið framan á tátiljunni verði of laust.

UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ:
* 1 umf fl (hekluð frá röngu), 1 umf sl (hekluð frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum – ATH: Heklið í hverja l (ekki á milli l).

TÁTILJA:
Heklið 12-14-16-19 (25-28) ll (meðtalin 1 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 3 með litnum ísblár.
Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af næstu 10-12-14-17 (23-26) ll = 11-13-15-18 (24-27) fl, snúið við. Heklið síðan 1 fl í hverja fl frá fyrri umf JAFNFRAMT er aukið út um 2 fl í byrjun og lok fyrstu umf með því að hekla 3 fl í fyrstu og síðustu fl í umf = 15-17-19-22 (28-31) fl. Heklið fl fram og til baka þar til 1 umf er eftir áður en stykkið mælist 3-3-4-4 (4½-5) cm. Fækkið nú um 2 fl í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA = 11-13-15-18 (24-27) fl í umf – ATH: Í lok hverrar umf byrjar úrtaka þegar 4 fl eru eftir, heklið síðan 4 síðustu fl saman 2 og 2.
Stykkið mælist ca 3-3-4-4 (4½-5) cm. Klippið frá og festið enda.

Heklið síðan í kringum sólann þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= mitt á annarri skammhliðinni) – Heklið 1 fl í fyrstu l, 3 ll (= 1 st), heklið 1-1-2-2 (3-3) st fram að horni, 2 st í horni, 1 st í hverja af 11-13-15-18 (24-27) fl meðfram hlið, 2 st í horni, 4-4-6-6 (8-8) st meðfram skammhlið (= tá), 2 st í horni, 11-13-15-18 (24-27) st meðfram hlið, 2 st í horni og 2-2-3-3 (4-4) st meðfram skammhlið við miðju að aftan, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 38-42-50-56 (72-78) st.
NÆSTA UMF Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í hinum stærðunum: Heklið 1 umf með st í hvern st = (72-78) st.
NÆSTA UMF ER HEKLUÐ ÞANNIG Í ÖLLUM STÆRÐUM:
Heklið 1 st í hvern st, en fækkið um 1 st í hvoru horni af þeim 2 hornum framan á tá – LESIÐ ÚRTAKA = 36-40-48-54 (70-76) st.
HEKLIÐ NÚ ÞANNIG VIÐ MIÐJU AÐ AFTAN (heklið 1 l í hverja l frá fyrri umf):
UMFERÐ 1: 12-14-17-20 (27-30) fl, 1 hst, heklið 2 st saman – LESIÐ ÚRTAKA, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 12-14-17-20 (27-30) fl = 34-38-46-52 (68-74) l.
UMFERÐ 2: 11-13-16-19 (26-29) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 11-13-16-19 (26-29) fl = 32-36-44-50 (66-72) l.
UMFERÐ 3: 10-12-15-18 (25-28) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 10-12-15-18 (25-28) fl = 30-34-42-48 (64-70) l.
UMFERÐ 4 Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (24-27) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (10 – 10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (24-27) fl = (62-68) l.
UMFERÐ 5 Í STÆRÐ 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum: (26) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (26) fl = (66) l.
NÆSTA UMF ER HEKLUÐ ÞANNIG Í ÖLLUM STÆRÐUM:
9-11-14-17 (23-25) fl, 1 hst, heklið 10-10-12-12 (14-14) næstu st saman 2 og 2, 1 hst og 9-11-14-17 (23-25) fl = 25-29-36-42 (55-59) l.
NÆSTA UMF ER HEKLUÐ ÞANNIG Í ÖLLUM STÆRÐUM:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 7-9-12-15 (21-23) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 5-5-6-6 (7-7) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 7-9-12-15 (21-23) fl = 23-27-34-40 (53-57) l.
NÆSTA UMF ER HEKLUÐ ÞANNIG Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (20-21) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (7-7) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (20-21) fl = (51-55) l.
ALLAR STÆRÐIR:
= 23-27-34-40 (51-55) l. Heklið 1-1-1-2 (2-3) umf með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út 24-24-30-30 (36-36) st í 1. Umf. LESIÐ ÚTAUKNING/ÚRTAKA – ATH: Ef óskað er eftir stærri tátilju er hægt að auka við lykkjufjölda að óskaðri stærð.

HEKLAÐUR KANTUR:
Skiptið yfir í natur og heklið 1 umf fl með 1 fl í hverja l. Heklið alls 12 umf með fl. Klippið frá og festið enda.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Rika wrote:

Moet het hele slofje in structuurpatroon?

07.12.2021 - 10:40

DROPS Design answered:

Dag Rika,

Als je het patroon volgt komt er een 'structuur' bovenop de slof, alle toeren zijn uitgeschreven..

07.12.2021 - 17:04

country flag Pernilla wrote:

Vad menar ni med "OBS: Det virkas i varje m (inte mellan m)" vid virkning av sulan? Ska det enbart virkas i yttre maskbågen?

25.10.2019 - 16:31

DROPS Design answered:

Hei Pernilla. Det er bare en OBS på at man skal hekles i masken (vanlig hekling/ i begge maskebuene) og ikke mellom 2 masker. God Fornøyelse!

28.10.2019 - 11:14

country flag TRICOT wrote:

Est-ce possible d'avoir le diagramme pour de modèle ? , je n'arrive pas bien à suivre les explication ... merci

27.02.2018 - 15:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tricot, nous n'avons pas de diagramme pour ce type de modèles, suivez bien pas à pas les explications et n'hésitez pas à poser votre question ici si besoin. Pour toute assistance individuelle, vous pouvez également vous adresser auprès de votre magasin. Bon crochet!

27.02.2018 - 16:21

country flag Elin Ignell wrote:

Är fundersam på stolekarna. När jag virkar en kedja med 24 fm så kommer jag inte upp i 10 cm ens med nål 5 och då har jag verkligen inte virkat tajt. Det förvirrar mig ytterligare att storlek 1/3 månader, enligt beskrivningen ska mäta 10 cm. Men antalet maskor där sulan är som längst är 17. Så hur kan detta gå ihop, om 24 fm nu ska ge mig 10 cm förutsatt att jag valt rätt virknål? Tacksam för vägledning :) MVH Elin

05.11.2017 - 16:38

DROPS Design answered:

Hej Elin, virkar du i DROPS Alpaca? Då skall du få 24 fm på 10 cm. Om du får virkfastheten till at stämma, så vill även måtten stämma enligt mönstret. Testa med sulan först får du se :)

16.11.2017 - 09:25

country flag Nina wrote:

Jeg har 38 staver nå, lurer på neste omgang der jeg skal felle 1 stav ved 2 hjørnene foran på tåen. Skal det hekles staver hele runden eller bare mellom de 2 hjørnene?

09.08.2017 - 17:24

DROPS Design answered:

Hei Nina. Det skal hekle 1 stav i hver stat hele runden, men fell 1 stav i hvert av de 2 hjørnene foran på tåen. God Fornøyelse!

14.08.2017 - 16:29

country flag Charlotte Goonan wrote:

I'm working this in size 6/9 months, what do the numbers in brackets after mean e.g. (26-29)? Also - the pattern refers to rounds to crochet if you're making size 2 years + 3/4 years but there isn't a size for this, the pattern says size 12/18 months is 2 - 3/4 years. I'm not clear if this means to do that round if you're doing the 6/9 months like I am. I assume I have to do the fifth round for 3/4 years. Please help!

28.03.2017 - 01:07

DROPS Design answered:

Dear Charlotte, the numbers in brackets refer to the sizes that would suit 2 years old and 3-4 years old children.If you are working the size that would fit a 6/9 month old child, you should work until round 3, then skip to the next row that says it is for all sizes. I hope this helps. Happy crocheting!

28.03.2017 - 01:16

Tamara wrote:

Very beautiful pattern, thank you very much! Could it be that the last 12 lines for the border should be with sc, rather than dc as per the instruction?

01.02.2016 - 00:00

DROPS Design answered:

Dear Tamara, that's correct, the last 12 rounds are worked with sc - remember that US-English and UK-English do have different crochet terminology, you can edit the language of the pattern by selecting correct language under the picture - read more here. Happy crocheting!

01.02.2016 - 10:56

Sahera wrote:

Hi, i dont really get what the numbers in the pattern are for when they appear in series like 1-1-2-2 and so on. Could you please help me out with this? Regards

26.06.2015 - 13:07

DROPS Design answered:

Dear Sahera, each number refers to each size, ie "Work 12-14-16-19 (25-28) ch" ... means in first size work 12 ch, in 2nd size work 14 ch, in 3rd size work 16 ch and so on. Happy crocheting!

26.06.2015 - 18:38

Lourdes González wrote:

Hermoso el escarpín ! Muy fácil de hacer. Agradezco mucho a quienes hacen este sitio porque me incentivan a hacer cosas que son mi distracción en los quehaceres diarios. Me emociona mucho cuando termino una prenda y se vé igual que la foto que publicaron. Un Abrazo!

24.06.2015 - 04:49

Rebeca wrote:

Hermosos, una calidad fina y excelente

25.08.2014 - 18:14