Birgit Wachsmann skrifaði:
Sehr hübsch.
17.12.2013 - 14:53
Maria Jonsson skrifaði:
Snygg!
10.12.2013 - 19:41
Agnès skrifaði:
Enfin autre chose qu'un shrug, qu'un gilet ... Regardez les collections haute-couture et proposez- nous des modèles chics, mode et pas dadame ;0)
10.12.2013 - 19:23
Emmanovembre skrifaði:
Elegante!!!
10.12.2013 - 18:28
Valeria Del Mar#valeriadelmarskirt |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Heklað pils úr DROPS Cotton Viscose með sólfjarðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-14 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í byrjun á umf er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf með 1 st í 3. ll frá fyrri umf (þegar stykkið er heklað fram og til baka) og endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar stykkið er heklað í hring). Fyrsti tbst í byrjun umf er skipt út fyrir 4 ll, endið umf á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. MÆLING: Vegna þyngdar á garninu verður öll mæling að gerast þegar stykkinu er haldið uppi, annar kemur pilsið til með að verða allt of sítt þegar það er mátað. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. ÚRTAKA: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka ofan frá og niður eftir klauf í hlið, síðan er stykkið heklað í hring niður. PILS: Heklið 186-209-232-258-279-305 LAUSAR ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af næstu 4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* þar til 3-5-7-5-5-3 ll eru eftir, hoppið yfir 1 ll og endið á 1 st í hvern af síðustu 2-4-6-4-4-2 st = 158-178-198-220-238-260 st. Heklið nú fram og til baka með 1 st í hvern st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar heklaðar hafa verið alls 5 umf á hæðina eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerkin er sett eftir 14-14-16-20-21-22 st, síðan eiga að vera 26-30-33-36-39-43 st á milli prjónamerkja, nú eiga að vera 14-14-17-20-22-23 st á eftir síðasta prjónamerki í lok umf. Í næstu umf er aukið út um 1 st á undan öllum prjónamerkjum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hvorri umf alls 7-7-8-9-10-11 sinnum – ATH! Aukið út í annað hvort skipti á undan og á eftir prjónamerki = 200-220-246-274-298-326 st. JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið alls 12 umf á hæðina endar klaufin og stykkið er síðan heklað í hring með umf í byrjun í hlið – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 29-31-33-35-37-39 cm – LESIÐ MÆLING – fækkið um 8-10-12-10-10-8 st jafnt yfir í næstu umf – LESIÐ ÚRTAKA. Nú eru 192-210-234-264-288-318 st eftir í umf. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Heklið nú MYNSTUR A.1, A.2 og A.3 þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (koma í stað 1 tbst), 3 tbst í fyrsta st, hoppið yfir 2 st, * 1 fl í næsta st, hoppið yfir 2 st, 7 tbst í næsta st, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* alls 31-34-38-43-47-52 sinnum, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 2 st, 3 tbst í sama st eins og fyrsti tbst-hópurinn frá byrjun umf, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 32-35-39-44-48-53 sólfjaðrir. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í 4. ll frá byrjun á 1. umf, * 7 tbst í næstu fl, hoppið yfir 3 tbst, 1 fl í næstu tbst *, endurtakið frá *-* alls 31-34-38-43-47-52 sinnum, 7 tbst í næstu fl, endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf = 32-35-39-44-48-53 sólfjaðrir. UMFERÐ 3: Heklið 4 ll (koma í stað 1 tbst), 3 tbst í fyrstu fl, * hoppið yfir 3 tbst, 1 fl í næsta tbst, 7 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 31-34-38-43-47-52 sinnum, hoppið yfir 3 tbst, 1 fl í næsta st, hoppið yfir 3 st, 3 tbst í sömu fl eins og fyrsti tbst-hópurinn frá byrjun á umf, endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 32-35-39-44-48-53 sólfjaðrir. Endurtakið umf 2-3 þar til sólfjaðramynstur mælist ca 16 cm – haldið áfram að endurtaka þessar tvær umf að óskaðri lengd. Stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm. Klippið frá og festið enda. HNESLA: Meðfram hlið á klauf sem er staðset efst á framstykki eru heklaðar hneslur/lykkjur (byrjun neðst niðri): Heklið 2 fl í fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st, * heklið 2 fl í hvorn af næstu 2 st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 2 fl í síðasta st efst uppi, núið við og heklið til baka þannig: Heklið 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga. KANTUR FYRIR TÖLUR: Meðfram annarri hliðinni á klauftinni efst eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka (í 1. umf eru heklaðar 2 fl í hvern st = 24 fl), klippið frá. Saumið tölur í kantinn. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #valeriadelmarskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.