Cate skrifaði:
Very stylish and figure flattering!
11.12.2013 - 17:40
PLOMION Danièle skrifaði:
Pour moi qui suis un peu "ronde", voilà qui devrait me mettre en valeur !
11.12.2013 - 11:44
Ileana skrifaði:
Molto bello, elegante e conferisce stile ed eleganza
10.12.2013 - 21:43
Rita Klevjer skrifaði:
Stilig
10.12.2013 - 20:22
River Run#riverrunvest |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Paris með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-23 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. VINSTRA BAKSTYKKI / ÖXL: Prjónið fram og til baka. Fitjið upp 24-26-28-30-36-40 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Í 1. umf (= frá réttu) prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 14-16-18-20-26-30 l sléttprjón, endið á 7 l garðaprjón (= við hálsmál). Prjónið svona í 3 cm. Stillið af að síðasta umf sé frá réttu. Geymið stykkið og prjónið hægra bakstykki/öxl. HÆGRA BAKSTYKKI / ÖXL: Prjónið á sama hátt og vinstra bakstykki / öxl, nema gagnstætt. Nú er bakstykki sett saman frá röngu þannig: Prjónið yfir hægra bakstykki eins og áður, fitjið upp 20-20-24-26-26-26 l á milli hægra bakstykki og vinstra bakstykki, prjónið eins yfir bakstykki og áður = 68-72-80-86-98-106 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 3 l garðaprjón, 14-16-18-20-26-30 l sléttprjón, 34-34-38-40-40-40 garðaprjón (yfir 7 l garðaprjón í hvorri hlið á bakstykki og þær 20-20-24-26-26-26 nýju l), 14-16-18-20-26-30 l sléttprjón, endið á 3 l garðaprjón. Endurtakið þessa umf einu sinni til viðbótar, prjónið síðan sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm. Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Geymið stykkið og prjónið framstykkin. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 24-26-28-30-36-40 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, 14-16-18-20-26-30 l sléttprjón, endið á 7 l garðaprjón (= við hálsmál). Prjónið svona í 2 cm. Aukið nú út frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 7 l garðaprjón, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, endurtakið útaukningu í öðrum hvorum cm 7-7-8-8-9-9 sinnum til viðbótar = 32-34-37-39-46-50 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm geymið stykkið. Stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið nú allar l inn á sama prjón. Prjónið yfir l eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 8-8-8-10-10-10 l á milli vinstra framstykki og vinstra bakstykki og 8-8-8-10-10-10 l á milli hægra bakstykkis og hægra framstykkis =148-156-170-184-210-226 l á prjóni. Í næstu umf frá röngu er prjónað þannig: Prjónið 7 l garðaprjón, 22-24-27-29-36-40 l sléttprjón, 14-14-14-16-16-16 l garðaprjón (yfir þær 3 l garðaprjón í hvorri hlið og þær nýju 8-8-8-10-10-10 l), 62-66-74-80-92-100 l sléttprjón (= bakstykki), 14-14-14-16-16-16 l garðaprjón (yfir þær 3 l garðaprjón í hvorri hlið og þær nýju 8-8-8-10-10-10 l), 22-24-27-29-36-40 l sléttprjón, endið á 7 l garðaprjón. Endurtakið umf 1 sinni til viðbótar. Prjónið síðan sléttprjón með 7 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út í hvorri hlið (á undan/á eftir 7 l garðaprjón) í öðrum hvorum cm á framstykki 2-2-3-4-3-3 sinnum til viðbótar (= 10-10-12-13-13-13 útaukningar alls) = 152-160-176-192-216-232 l á prjóni. Þegar útaukning í hálsmáli er lokið mælist stykkið ca 20-20-24-26-26-26 cm. Klippið frá. Prjónið síðan frá réttu þannig: Fitjið upp 3 l, prjónið 1 l garðaprjón, prjónið A.1 (= 6 l) yfir 6 næstu l með garðaprjóni, prjónið sléttprjón saman þar til 7 l eru eftir, A.2 (= 6 l) yfir næstu 6 l, 1 l garðaprjón, fitjið upp 3 l = 158-166-182-198-222-238 l á prjóni. A.1/A.2 færist til um 1 l út við miðju að aftan í hverri umf frá réttu til loka. Í næstu umf frá röngu er prjónað þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 1 l br, 1 l sl (= kantur að framan), mynstur og sléttprjón eins og áður þar til 4 l eru eftir, 1 l sl, 1 l br, 2 l garðaprjón (= kantur að framan). Í næstu umf (= rétta) prjónið kant að framan þannig: 2 l garðaprjón, 1 l sl, 1 l br, mynstur og sléttprjón eins og áður þar til 4 l eru eftir, 1 l br, 1 l sl, 2 l garðaprjón. Endurtakið þessar 2 umf yfir kant að framan til loka JAFNFRAMT er haldið áfram með A.1/A.2 og sléttprjón eins og áður. ATH: Í 5. umf í A.1/A.2 er aukið út um 1 l (= 2 l fleiri ) – sjá mynsturteikningu = 160-168-184-200-224-240 l á prjóni. Aukið er einungis út 1 sinni í A.1/A.2, þar eftir halda kaðlarnir áfram yfir 4 l eins og útskýrt er í síðustu umf í A.1/A.2. Þegar stykkið mælist 25-25-29-31-31-31 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 41-43-47-51-57-61 l eins og áður, setjið 1 prjónamerki í næstu l JAFNFRAMT því sem prjónað er, prjónið 76-80-88-96-108-116 l eins og áður, setjið 2. prjónamerki í næstu l JAFNFRAMT því sem prjónað er, prjónið þær l sem eftir eru 41-43-47-51-57-61 l eins og áður. Aukið síðan út í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið eins og áður fram að l með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= prjónamerki með l), sláið uppá prjóninn (= 4 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf. Endurtakið útaukningu með 11-7-7-7-13-8 cm millibili 3-5-5-5-3-5 sinnum á hvorri hlið = 176-192-208-224-240-264 l á prjóni. Prjónið garðaprjón, sléttprjón og mynstur A.1/A.2 þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. SNÚRA: Klippið 2 þræði ca 3 metra, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda saman og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á annan endann og festið hinn endann í fyrsta gatið efst í A.1. Gerið aðra snúru til viðbótar alveg eins og festið hana í fyrsta gatið efst í A.2. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riverrunvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.