DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 153-27
DROPS Design: Mynstur nr r-646
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S – M – L –XL – XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 32, turkos

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st og 9 umf verði 10 x 10 cm, A.1B á breiddina verði 6 cm, umf 1-4 i A.1 á hæðina verði 4½ cm.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 522, 2 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Í A.1 er byrjað á umferð merktri með 1 í mynsturteikningu. Síðan eru umferðir 2 til 5 endurteknar. Í A.2 er byrjað að hekla frá umferð merktri með 2 í mynsturteikningu.

HLIÐ:
Í hlið eru heklaðir st/fl eins og útskýrt er í A.1A og A.1D. Þ.e.a.s. í umf 1 og 5 í mynstri eru heklaðar fl, í umf 2,3 og 4 eru heklaðir st. Prjónamerki er staðsett mitt á milli l í hvorri hlið.
-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

VESTI:
Heklið 155-167-183-199-227-247 LAUSAR ll með heklunál nr 4 með Muskat.
Snúið við. Hoppið yfir 1. ll, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 154-166-182-198-226-246 fl. Setjið 1 prjónamerki eftir 39-42-46-50-57-62 fl inn frá hvorri hlið (bakstykki = 76-82-90-98-112-122 fl). Heklið nú þannig (byrjið í umf 1 í mynstri):
A.1A, A.1B er endurtekið 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1C, 4-10-18-26-16-26 fl/st í HLIÐ – sjá útskýringu að ofan -, A.1B er endurtekið 5-5-5-5-7-7 sinnum, A.1C, 4-10-18-26-16-26 fl/st í HLIÐ – sjá útskýringu að ofan, A.1B er endurtekið 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1C og A.1D.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 15-15-16-16-17-17 cm. Aukið nú um 1 fl/st í hvorri hlið hvoru megin við hvort prjónamerki einu sinni. Nú er aukið út með því að hekla 2 fl/st í 1 fl/st hvoru megin við hvort prjónamerki (= alls 4 útauknar fl/st). Haldið nú áfram eins og áður með 2 fl/st fleiri í hvorri hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 35-36-37-38-39-40 cm (stillið af eftir heilli mynstureiningu á hæðina). Klippið frá. Nú er stykkinu skipt upp og hvor hluti er heklaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 3-6-10-14-9-14 fl/st í hvorri hlið.
Byrjið á að hekla innan við 2-3-7-11-6-11 fl/st. Heklið 1-3-3-3-3-3 fl/st, A.1B er endurtekið 5-5-5-5-7-7 sinnum, A.1C og 1-3-3-3-3-3 fl/st (nú eru eftir 2-3-7-11-6-11 fl/st), snúið við. Heklið með mynstur eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st, snúið við. Heklið með mynstri eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st, snúið við. Heklið með mynstri eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st, snúið við. Heklið með mynstri eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st. Nú er 1 fl/st í hvorri hlið. Haldið nú áfram fram og til baka með mynstri eins og áður og 1 fl/st í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm (stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina) skiptið stykkinu upp fyrir hálsmál og hvor öxl er nú hekluð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið frá hlið. Heklið yfir 1 fl/st á hlið, A.1B 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1C og 1 fl/st. Haldið áfram þar til mynstureiningin hefur verið hekluð til loka á hæðina. Stykkið mælist nú ca 54-56-58-60-62-64 cm.

VINSTRI ÖXL:
Heklið á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd, (þ.e.a.s. 2 mynstureiningar við miðju að aftan = hálsmál).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 3-6-10-14-9-14 fl/st á hlið.
Byrjið við miðju að framan og heklið þannig:
A.1A, A.1B er endurtekið 2-2-2-2-3-3 sinnum, A.1C og 1-3-3-3-3-3 fl/st (nú eru eftir 2-3-7-11-6-11 fl/st í hlið). Snúið við. Heklið mynstur eins og áður til baka. Snúið við. Heklið mynstur eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1 fl/st í hlið, snúið við. Heklið til baka með mynstri eins og áður, snúið við. Heklið mynstur eins og áður þar til eftir eru 0-1-1-1-1-1-1 fl/st í hlið, snúið við. Heklið til baka með mynstri eins og áður. Nú eru 1 fl/st í hlið.
Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstri eins og áður.
JAFNFRAMT þegar hekluð hefur verið 1 mynstureining á hæðina eftir að stykki hefur verið skipt niður er fellt af fyrir hálsmáli. Heklið frá réttu þannig: A.2 A, A.2 B, A.1B 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1C, A.1D. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og hálsmáli er lokið er heklað frá miðju að framan – þannig: A.1A, A.1B 1-1-1-1-2-2 sinnum, A.1C og A.1D. Haldið svona áfram þar til stykkið mæist ca 54-56-58-60-62-64 cm (stillið af eftir bakstykki, þannig að heklaðar eru jafn margar mynstureiningar á hæðina eins og á bakstykki). Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið kant í kant með smáu spori svo að kanturinn verði ekki of þykkur.

KANTUR VIÐ HANDVEG:
Heklið nú kant í kringum handveg þannig:
UMFERÐ 1: Byrjið við miðju undir ermi. Heklið 1 ll, heklið nú fl í kringum handveg, endið á 1 kl í ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, heklið nú 1 st í hverja fl umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.
Heklið á sama hátt í kringum hinn handveginn.

KANTUR Í KRINGUM FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið nú kant í kringum fram- og bakstykki. Byrjið neðst niðri á hægra framstykki, heklið upp meðfram framstykki, í kringum hálsmál, niður meðfram vinstra framstykki og meðfram kanti að neðan. Þetta er heklað þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, heklið nú fl í kringum fram- og bakstykki, endið á 1 kl í ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja fl, endið á 1 kl í ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í fyrstu fl, * 3 ll, heklið nú 1 st í fyrstu af 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið 2 tölur í vinstri kant að framan, efsta talan er saumið beint fyrir neðan úrtöku fyrir hálsmál og sú seinni með ca 6 cm millibili. Tölurm er hneppt á milli st í kanti í hægra framstykki.

Mynstur

symbols = fl
symbols = ll
symbols = Picot/takki: Heklið 3 ll, 1 st í fyrstu af 3 ll, hoppið yfir 2 fl/st
symbols = st
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (86)

country flag Moa wrote:

Hej! Vilken storlek är det på knapparna som är rekommenderade i mönstret? Tack på förhand /Moa

22.04.2024 - 19:27

DROPS Design answered:

Hej Moa, knap 522 som står i opskriften er 20 mm :)

23.04.2024 - 14:28

country flag Anne Bonafede wrote:

Love the free patterns, but find it too difficult to read diagrams. Please provide patterns, such as this one, with fully written out rows of crochet instructions. Thank you. -Anne

03.10.2023 - 08:56

country flag Ellen wrote:

Good day. Can you please help me with the following pattern 15327. I'm starting over as the pattern for XL did not workout... I'm trying L now. The back piece stated: =3-6-10-14-9-14 sc/dc in each side. I'm working on 10 for Large but not sure what "in each side" means? I'm a bit confused about how to follow the pattern for the back piece. Can you please help me? Kind regards. Thank you.

29.09.2023 - 11:22

DROPS Design answered:

Dear Ellen on the previous pattern for body you worked 26 sc/dc on the sides; back piece starts and ends with 14 of these sts on each side (the last 14 sc/dc on one side and the first 14 sc/dc on the other side). Happy crocheting!

02.10.2023 - 08:40

country flag Ellen wrote:

Good day, Can you please help me with the back piece pattern of the Drops 15327. I'm new to this type of pattern. And really struggle to get the back piece pattern to work out. Thank you

01.09.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Ellen, could you please specify which part of the back piece is giving you trouble? You work something similar to short rows, where you work the pattern until some stitches of the row are left and turn the piece, so you will be leaving some stitches at the end of the rows unworked. Happy crocheting!

03.09.2023 - 19:28

country flag Ellen Imrie wrote:

Hi. I'm struggling to understand the diagram it's my first time trying to work on diagram. Can you please explain the second and third rows to me? Thank you. It seems like the number of chains for the bust 106cm size is incorrect? In the end I've made it 195 chains instead of 199 chains in order for the pattern to work out from the 3rd row. Thank you

16.08.2023 - 09:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Imrie, you start with 199 chains and work the 198 stitches from first row as follows: A.1A (= 1 dc), repeat A.1B a total of 2 times (= 12 sts 2 times = 24 sts), work A.1C (= 12 sts), then work 26 dc/tr (UK-English), work A.1B a total of 5 times (= 12 x 5=60 sts), A.1C (= 12 sts), 26 dc/tr, A.1B x 2 times (24 sts), A.1C (= 12 sts), A.1D (= 1 st)= 1+24+12+26+60+12+26+24+12+1=198 sts. On 2nd row there are 3 chain-space in each A.1B/A.1C = 9 ch-spaces on each front piece and 18 ch-spaces on back piece. Hope it can help. Happy crocheting!

16.08.2023 - 14:30

country flag Andrea wrote:

Ich habe genau nach Anleitung für Größe L gehäkelt. Jetzt bin ich mit dem linken Vorderteil noch nicht fertig, und auch die Umrandung fehlt noch. Die 350g Muskat Baumwollgarn reichen nicht aus!!!! Ich muss jetzt nochmal ein Knäuel nachbestellen und wiederum über 5 € Versandkosten bezahlen. Das ärgert mich schon sehr😖. Gibt es eine Möglichkeit, die Versandkosten zu sparen? VG Andrea

06.06.2023 - 12:04

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, es tut uns leid, daß Sie nicht genügend Garne hatten, stimmt Ihre Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe? Wenden Sie sich bitte direkt an Ihrem DROPS Händler, dort kann man Ihnen weiterhelfen. Danke im voraus für Ihr Veständnis.

06.06.2023 - 14:07

country flag Ingrid wrote:

Hoeveel minderingen moet ik maken aan de halszijde van het linker en rechtervoorpand en hoe doe ik dat?

09.05.2023 - 09:42

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

De minderingen zijn verwerkt in A.2. Je kunt dus gewoon het telpatroon blijven volgen.

11.05.2023 - 20:57

country flag Ingrid wrote:

Ik kom bij lange na niet uit met de hoeveelheid voorgeschreven garen; veel te weinig.

05.05.2023 - 13:34

country flag Ingrid wrote:

Ik snap de eerste toer van het telpatroon A1 al niet. Als ik 1x A.1.a, 3x A.1.b, 1x A.1.c, 16 vasten voor de zijkant, 3 x A.1.b, A.1.c en A.1.d haak, kom ik absoluut niet uit met het aantal steken (ik houd er nog veel over in die toer). Overigens is het voor maat XXL. Kunt u mij verdere uitleg geven?

03.05.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Dag Ingrid,

Heb je gezien dat er niet in elke steek van de vorige toer gehaakt wordt. Dus de picot haak je over 2 vasten en daartussen steeds 1 vaste boven 1 vaste van de vorige toer.

08.05.2023 - 21:21

country flag DANIELA wrote:

SCUSATEMI CHE VI DISTURBO OGNI TANTO OVVERO SEMPRE, MA QUESTO MODELLO è ESTIVO O AUTUNNO? PERCHE VEDO SCRITTO UNCINETTO N 4.00 MM

19.04.2023 - 19:26

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, è un modello lavorato in cotone con l'uncinetto n° 4 mm. Si ricordi di scrivere in minuscolo la prossima volta. Buon lavoro!

20.04.2023 - 21:14