DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4417.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 155-8

#maybellenecardigan

DROPS Design: Mynstur nr as-016
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
175-175-200-225-250-275 gr litur nr 08, bleikfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l verði 10 cm á breidd prjónað eftir A.1.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4417.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 182-192-202-218-234-250 l (meðtaldar 16 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur eftir mysnturteikningu A.1 yfir allar l – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1. Prjónið fyrstu 54-56-58-62-66-70 l og setjið á þráð, prjónið næstu 74-80-86-94-102-110 l (= bakstykki) og setjið síðustu 54-56-58-62-66-70 l á þráð fyrir framstykki = 74-80-86-94-102-110 l eftir á prjóni fyrir bakstykki.

BAKSTYKKI:
= 74-80-86-94-102-110 l. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.1 – JAFNFRAMT í lok næstu 2 umf eru fitjaðar upp 4-4-2-2-0-0 l fyrir ermar. Fitjið nú upp til skiptis 4 og 2 nýjar l í lok hverrar umf þar til alls 36-34-32-30-28-26 l útauknar l verða í hvorri hlið = 146-148-150-154-158-162 l (færri lykkjur útauknar í stærri stærðum vegna meiri víddar á fram- og bakstykki). Haldið áfram með mynstur A.1. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1, fellið af miðju 18-16-18-18-18-18 l fyrir hálsmáli = 64-66-66-68-70-72 l eftir á hvorri öxl/ermi. Prjónið nú hvort stykki fyrir sig. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 54-56-58-62-66-70 l. Haldið áfram að prjóna mynstur eftir mynsturteikningu A.1 – JAFNFRAMT í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 4-4-2-2-0-0 l fyrir ermi í hlið. Fitjið nú upp til skiptis 4 og 2 nýjar l í lok hverrar umf frá réttu þar til aukið hefur verið út alls 36-34-32-30-28-26 l = 90-90-90-92-94-96 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1, fellið af síðustu 54-54-54-56-58-60 l frá röngu og prjónið út umf = 36 l á prjóni fyrir kraga. Prjónið garðaprjón yfir þessar l með stuttum umferðum með byrjun frá réttu (þ.e.a.s. að framan): * 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 26 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 8 cm þar sem stykkið er minnst. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. fitjið upp lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu. Kraginn byrjar frá röngu (þ.e.a.s. að aftan): * 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 26 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 8 cm þar sem stykkið er minnst. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma á öxlum og undir ermum. Saumið kraga saman við miðju að aftan og saumið við hálsmálið að aftan.

Mynstur

sl frá réttu = sl frá réttu
1 ls l, sláið uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður sl og látinn falla niður (= löng lykkja) = 1 ls l, sláið uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður sl og látinn falla niður (= löng lykkja)
sl frá röngu = sl frá röngu
Diagram for DROPS 155-8
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maybellenecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Tullia skrifaði:

Bonjour DROPS, En étudiant les explications de ce modèle je comprends que l'arrondi du col se fait exclusivement au point mousse (en rangs raccourcis). Est-ce bien cela ? Votre réponse sera la bienvenue. Merci. Tullia

28.06.2016 - 18:58

DROPS Design svaraði:

Bonjour Tullia, c'est exact. Bon tricot!

29.06.2016 - 08:15

country flag Silje Dahl skrifaði:

Hei! Skal denne strikkes med enkel eller dobbel tråd?

17.05.2016 - 00:04

DROPS Design svaraði:

Hej. Den stickas med enkel tråd. Lycka till!

17.05.2016 - 09:43

country flag Marijke skrifaði:

Dank je wel!

25.02.2016 - 19:41

country flag Marijke skrifaði:

Sorry, ik begrijp je antwoord niet helemaal. Waar kan ik zien hoe je de kraag hebt gedaan? Heb je er iets over opgestuurd?

25.02.2016 - 15:51

DROPS Design svaraði:

Hoi Marijke. Ja, als je op de HIER klikt in mijn vorige antwoord, dan kom je naar mijn project. Misschien kan je hier beter zien wat er wordt bedoelt

25.02.2016 - 15:52

country flag Marijke skrifaði:

Hallo Drops-Team, ik heb het achterpand en een voorpand klaar. Bovenaan het voorpand zit een flapje van 8 naar 16 cm hoog, en 20 cm breed. Als ik dan de 8 cm gebruik om langs het achterpand te leggen, zoals bij eerdere vragen werd geantwoord, heb ik geen breisel meer over om langs de (helft van de) nek vast te maken. Wat doe ik verkeerd?

24.02.2016 - 09:15

DROPS Design svaraði:

Hoi Marijke. Ik snap niet helemaal wat je hebt gedaan. Ik heb zelf dit vestje gemaakt en je kan hier zien hoe ik de kraag hebt gedaan. Misschien helpt dat je verder.

24.02.2016 - 16:54

country flag BARDY skrifaði:

Bonjour, je voudrais tricoter un gilet genre maybellene en mailles jersey drops brushed alpaca silk coloris jean. Pour qu'il n'y ait pas d'effet grille faut-il des aiguilles 4 plutôt que 5 ou possibilité de doubler le fils mais avec quelle grosseur d'aiguilles et quel nombre de pelotes, je tricote avec des aiguilles droites et non circulaires. C'est dommage que je ne puisse pas lire tous les commentaires en FRANCAIS. Merci pour vos explications. Merci de me répondre assez rapidement.

04.02.2016 - 11:17

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Bardy, si vous souhaitez tricoter avec des aiguilles plus fines, il vous faudra recalculer les explications pour votre taille en fonction de votre échantillon et des mesures du schéma, votre magasin DROPS peut vous aider, ou bien consultez nos autres modèles dans cette qualité. Voir ici pour les aiguilles circulaires. Bon tricot!

04.02.2016 - 16:31

Sona Metcalfe skrifaði:

Love the pattern! I'm just in the middle of making this and it looks so cozy! I've chosen a different color of the yarn for my niece but how lovely the Cloud is! Hoping though I do have enough yarn. It's running out quickly... Thanks for sharing with us!

18.10.2015 - 00:22

country flag Marietta Forbriger skrifaði:

Hallo Drops Team, ich stricke gerade diese wunderschöne Jacke und bin von der Wolle und dem Muster total begeistert. Mein Problem: auf Grund des fehlenden Gewichtes (bin jetzt beim 3. Knäuel) und des Lochmusters, lässt sich die Länge der Jacke schlecht messen, eher schon die Breite. Können Sie keine Reihenangaben machen? Ich arbeite die größte Größe. Vielen Dank und freundliche Grüße Marietta

23.03.2015 - 18:59

DROPS Design svaraði:

Leider haben wir hier keine R-Angaben vorliegen, generell wird bei uns für das Höhenmaß mit cm-Angaben gearbeitet. Messen Sie die Jacke auch am Anfang am besten schon hängend und dehnen Sie sie leicht in Strickrichtung, allerdings ist die Jacke durch das leichte und luftige Garn wirklich sehr leicht und wird sich daher nicht stark aushängen.

26.03.2015 - 10:15

country flag Asja Karkov skrifaði:

Jeg tror der er en fejl i opskriften. Kan det passe at der skal være 16 kantmasker?

16.12.2014 - 12:31

DROPS Design svaraði:

Hej Asja. Ja, det er korrekt, det er kanten midt for.

16.12.2014 - 14:08

country flag Lily skrifaði:

Ich stricke diese wunderschöne Jacke, aber ich verstehen die Anleitungen nicht ganz gut. Wieviel Reihen mit 182 M stricke ich nach dem Diagramm A.1.? Einfach bis Höhe 43cm oder ende ich nach einem ganzen Rapport von A.1. wie im Text steht? Was heißt es bleiben 74-80-86... M? Nichts bleibt von 182 M minus die ersten 54 M minus die nächsten 74 M minus die letzten 54 M.

12.12.2014 - 23:41

DROPS Design svaraði:

Sie stricken einen ganzen Rapport A.1 zu Ende, die 43 cm sind dabei als ca.-Angabe zu verstehen. "Es bleiben 74-80-86-94-102-110 M" soll einfach nur heißen, dass Sie diese M jetzt noch auf der Nadel haben, für das Rückenteil. Die beiden Vorderteile haben Sie ja stillgelegt (beim ersten Vorderteil stricken Sie die M und legen sie dann still, dann stricken Sie das Rückenteil und legen danach die M des anderen Vorderteils still, ohne sie vorher zu stricken).

14.12.2014 - 10:09