DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Sweet Rose Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS BabyAlpaca Silk í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 155-35
DROPS Design: Mynstur nr ks-085
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 gr litur nr 03, ljós bleikur
og einnig
DROPS BABYALPAKA SILK frá Garnstudio
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 1306, púðurbleikur

DROPS HRINGPRJÓNN ( 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 32 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Prjónið nú mynstur með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1-4 = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Sil (= 2 þræðir).
UMFERÐ 5-8 = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af Kid-Silk.
UMFERÐ 9-10: = 2 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir).
UMFERÐ 11-14: = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af Kid-Silk.
Endurtakið umf 1-14.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l.
Þegar aukið er út um 2 l í hvorri hlið er aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í hvora af fyrstu 2 og síðustu lykkjum í umferð.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l innan við 1 kantlykkju með því að prjóna 2 l slétt saman.
Fækkið um 2 l innan við 1 kantlykkju með því að prjóna 3 l slétt saman.

MÆLING:
Til að vinstra og hægra framstykki verði jafn breið er mikilvægt að láta stykkið liggja flatt þegar mælt er!

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Byrjið frá réttu og fellið síðan af þannig: 48-51-52-55-57-60 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 7-7-7-7-7-7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman og prjónið sl út umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið.

VINSTRI ERMI + FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið neðst niðri á ermi, fitjið upp nýjar l fyrir framstykki og bakstykki og prjónið fram að miðju að framan. Fitjið laust upp 48-52-54-58-60-64 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk = 2 þræðir. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Í næstu umf (= rétta) er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-2-4-3-3-2 cm er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING! Haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 60-64-66-70-72-76 l á prjóni og stykkið mælist nú 11-10-9-8-8-7 cm. Haldið síðan áfram eins og áður, en nú er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki í hverri umf frá réttu 7-7-7-7-5-5 sinnum og síðan 2 l í hvorri hlið á stykki í hverri umf frá réttu 1-1-1-1-2-2 sinnum = alls 15-15-15-15-15-15 l útauknar í hvorri hlið frá byrjun og 78-82-84-88-90-94 l á prjóni. Stykkið mælist nú 16-15-14-13-12-11 cm. Í 2 næstu umf eru fitjaðar laust upp 56-57-59-60-62-63 nýjar l í lok hverrar umf = 190-196-202-208-214-220 l. ATH! Stillið mynstrið af þannig að nýjar l eru fitjaðar upp í 2. umf í mynstri með 2 þráðum! Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist alls 31-32-33-33-34-35 cm. Í næstu umf frá réttu eru fyrstu 92-95-98-99-102-105 l prjónaðar áður en þær eru settar á þráð fyrir bakstykki. Fellið nú af næstu 3-3-3-5-5-5 l fyrir hálsmáli, setjið prjónamerki mitt á milli síðustu l sem felld var af og næstu l (= miðja ofan á öxl), fellið af næstu 9 l = 86-89-92-98-98-101 l eftir á vinstra framstykki. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umf frá réttu þannig: Fellið af 4 l 1 sinni, 3 l 7-7-7-7-6-6 sinnum og 2 l 1-1-2-2-4-4 sinnum (= 27-27-29-29-30-30 l felldar af) = 59-62-63-66-68-71 l eftir. Setjið þær l sem eftir eru á þráð fyrir kant að framan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 59-62-63-66-68-71 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur eins og áður, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 2 nýjar l 1-1-2-2-4-4 sinnum, 3 l 7-7-7-7-6-6 sinnum og 4 l 1 sinni (= alls 27-27-29-29-30-30 l fleiri) = 86-89-92-98-98-101 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI OG HÆGRI ERMI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Lykkjurnar af bandi eru settar til baka á prjóninn og bakstykkið er prjónað áður en l frá hægra framstykki eru settar á sama prjón. Prjónið nú hægri ermi.
Setjið til baka 92-95-98-99-102-105 l af þræði á prjóninn frá bakstykki og haldið áfram með mynstur frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun á umf fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA! = 91-94-97-98-101-104 l eftir á prjóni. Haldið síðan áfram með mynstur þar til stykkið mælist 11-11-12-12-13-13 cm frá prjónamerki við miðju ofan á öxl. ATH! Peysan kemur til með að teygjast þegar hún er notuð og það er því mjög mikilvægt að ekki sé prjónað of langt aftan við hnakka! Í lok næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l fyrir hálsmáli í lok umf með því að prjóna 2 l í síðustu l = 92-95-98-99-102-105 l á prjóni. ATH! Hér verður að stilla af mynstur frá hægra framstykki, þannig að næsta umf frá réttu geti byrjað í sömu umf í mynstri bæði á framstykki og á bakstykki!
Í næstu umf frá réttu er prjónað yfir allar l í umf áður en fitjað er upp 12-12-12-14-14-14 l fyrir hálsmáli í lok umf. Prjónið síðan allar l af þræði (= hægra framstykki)= 190-196-202-208-214-220 l.
Haldið síðan áfram yfir allar l þar til stykkið mælist alls 44-48-52-56-60-64 cm neðst niðri á bakstykki – stillið af mynstur þannig að næsta umf sé umf í mynstri með 2 þráðum!
Í byrjun á 2 næstu umf er fellt laust af 56-57-59-60-62-63 l = 78-82-84-88-90-94 l eftir. Áfram í stykkinu eru felldar af l fyrir ermi alveg eins og aukið var út fyrir vinstri ermi þannig:
Fellið af l á hvorri hlið á stykki í byrjun á næstu umf þannig:
Fellið af 2 l á hvorri hlið á stykki 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 7-7-7-7-5-5 sinnum. Haldið síðan áfram eins og áður, en nú er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 6 sinnum = 48-52-54-58-60-64 l eftir. Haldið síðan áfram með mynstur og stillið af eftir lengd á vinstri ermi. Prjónið 2 umf garðaprjón með 1 þræði af hvorri tegund. . Prjónið 1 umf til baka og fellið síðan laust af.

KANTUR AÐ FRAMAN OG HÁLSMÁL:
Byrjið frá réttu og meðfram uppfitjunarkanti á hægra framstykki og takið upp 59-62-63-66-68-71 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Haldið áfram að taka upp ca 70-90 l í kringum hálsmál og prjónið þær 59-60-63-66-68-71 l af þræði (þ.e.a.s. á vinstra framstykki). Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu. Haldið síðan áfram með 6 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu eru felldar af l fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður efst á öxl, saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt, yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.01.2014
Síðasti hlutinn undir BAKSTYKKI OG HÆGRI ERMI: Fellið af l á hvorri hlið á stykki í byrjun á næstu umf þannig: Fellið af 2 l á hvorri hlið á stykki 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 7-7-7-7-5-5 sinnum. Haldið síðan áfram eins og áður, en nú er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 6 sinnum = 48-52-54-58-60-64 l eftir. Haldið síðan áfram með mynstur og stillið af eftir lengd á vinstri ermi. Prjónið 2 umf garðaprjón með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umf til baka og fellið síðan laust af.
Yfirfarið á vefsvæði: 03.04.2014
Nýtt efnismagn: DROPS KID-SILK frá Garnstudio 100-100-125-125-150-150 gr litur nr 03, ljós bleikur og notið DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio 100-100-150-150-150-150 gr litur nr 1306 púðurbleikur

Mynstur

symbols = prjónastefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Catherine Dahl wrote:

How much yarn in yards or metres do I need for the XXL ? Please in English...?

30.03.2021 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Catherine, if you wantto use a different DROPS yarn to knit this sweater, our Yarn Converter will help you to calculate the necessary amount. Happy Knitting!

30.03.2021 - 19:53

country flag Jutta Riepshoff wrote:

Hallo Hätten Sie einen Tip für mich wie man am besten bei dem Strickstück die neu angesetzten Fäden am besten '' unsichtbar'' vernähen kann? Viele Grüße Jutta

07.02.2021 - 18:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Riepshoff, hier finden Sie Videos, wo man zeigt, wie die Fäden vernäht werden können. Viel Spaß beim stricken!

08.02.2021 - 10:28

country flag Jutta wrote:

Ist bei der Jacke unten kein Bündchen?

02.02.2021 - 16:06

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, es gibt tatsächlick kein Bündchen an der unteren Rand (= Randmaschen beidseitig krausrechts gestrickt). Viel Spaß beim stricken!

02.02.2021 - 16:46

country flag Mrs G Tweed wrote:

I am concerned the mohair yarn will be itchy. Please would you advise which yarn I could use to replace it?

05.05.2019 - 18:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tweed, you will read more about alternatives here - for any assistance choosing the best matching alternative, please contact your DROPS store even per mail or telephone. Happy knitting!

06.05.2019 - 10:59

country flag Irene wrote:

Jeg vil gerne lave den bare ikke af den farve. Kan du sige mig hvilken garn kan passe sammen med Drops Kid-Silk 08? Er der Drops BabyAlpaca Silk 8112? Eller 6235? Det er lidt svært at vurdere på skærmen.

25.01.2017 - 19:03

DROPS Design answered:

Hej Irene. Her kan jeg desvaerre ikke hjaelpe dig. Du kan kontakte din DROPS butik med dette spörgsmaal. De har tit garnet liggende og kan hjaelpe dig med at finde den rette kombination. God förnöjelse.

26.01.2017 - 11:36

country flag Solrun Di Vecchia wrote:

Tak for svar. Har stadig problemer. Har strikket venstre ærme plus forstykke. Har strikket højre forstykke. Det er ganske kort? Rygstykke og højre ærme består ad de 102 m. på tråden plus m. fra højre forstykke?

03.08.2015 - 15:59

DROPS Design answered:

Hej Solrun, Ja men du er så nødt til at tage ind så ærmet bliver smallere, nøjagtig som du gjorde i den anden side, bare modsat (hvor du tog ud da du strikkede det første ærme). Prøv gerne at få hjælp i butikken hvor du købte garnet. Held og lykke!

04.08.2015 - 15:53

country flag Solrun Di Vecchia wrote:

Jeg finder opskriften temmelig uforståelig efter højre forstykke? Rygstk. og Højre ærme - der snakkes om at sætte tråden tilbage på p og bagstrykket strikkes ....... Nu har man jo 2 dele på tråd, så er det de 68 m. (XXL) der sættes først på og så strikkes højre ærme???? det har man jo ikke strikket endnu? Skal jeg blot sætte maskerne fra højre FORSTK. ind her? Bedste hilsener, Solrun

30.07.2015 - 09:45

DROPS Design answered:

Hej Solrun, Jeg ved ikke helt hvor du er i opskrften, så jeg forklarer fra starten. Du starter med venstre ærme, slår nye m op til forstk i den ene side og til rygstk i den anden side. Strikker ifølge opskriften, lukker af til hals, sætter rygstykket på en tråd, strikker forstykket færdig. Nu strikker du det andet forstykke. Fortsætter med bagstykket, sætter m fra højre forstykke ind på samme pind og fortsætter med højre ærme. God fornøjelse!

30.07.2015 - 10:32

country flag Tina wrote:

Fertig! Ein Hauch von nichts in Natur mit schönen alten Permuttknöpfen, die ich noch hatte. Vielen Dank mal wieder für die Anleitung. Ich liebe diese leichten und dennoch warmen Teile - bitte weiter so!

22.04.2015 - 22:15

country flag Tone W. Tolfsby wrote:

Hei! Jeg lurer på hvorfor mine gamle favoritter er borte? Kan man finne tilbake til dem? De tilhører samme e-postadresse som nå. Hilsen Tone

23.03.2015 - 13:43

DROPS Design answered:

Hei Tone. Vi opdaterede og forbedrede favoritsiden for en maaneds tid siden. Det betöd desvaerre at alle favoriter blev slettet, saa du bliver nödt til at finde dem igen og tilföje. Undskyld ulejligheden.

23.03.2015 - 14:41

country flag Nicole wrote:

Bin gerade am Stricken, die Jacke wird wunderschön! Eine Frage jedoch: wie kann man den zweiten Fäden mitführen, wenn man im Muster nur mit einem strickt und am Anfang der Reihe für den Ausschnitt abkettet? Gibt es da einen Trick?

09.09.2014 - 15:08

DROPS Design answered:

Liebe Nicole, wenn im Muster 2 Krausrippen mit Kid-Silk gestrickt werden (5.-8. R) können Sie den Faden BabyAlpaca Silk auf der Rückseite verkreuzen. Achten Sie darauf, dass die Fäden bei der Schräge weder zu fest noch zu locker gespannt sind.

09.10.2014 - 12:05