Shrooq Ahmad skrifaði:
Hello,in the pattern(body) it's written A.1 (=14 sts ) over all sts . what sts should I do ? thank you .
27.03.2014 - 18:19DROPS Design svaraði:
Hi, look at the charts below the text. See the chart named A.1, it goes over 14 sts. Repeat these 14 sts over all stitches on the round.
27.03.2014 - 21:41
Alexandra Seel skrifaði:
Hallo. Welche Größe entspricht XXXL bei den Damengrößen? Danke für eine schnelle Antwort.
13.01.2014 - 06:38DROPS Design svaraði:
Liebe Alexandra, die Massbezeichnungen sind von Land zu Land verschieden, daher finden Sie bei unseren Modellen jeweils eine Schnittzeichnugn mit genauen cm-Angaben.
13.01.2014 - 10:05
Bertina skrifaði:
Mooi voor een mooie zomeravond
03.01.2014 - 22:14Biljana skrifaði:
Must do for summer
28.12.2013 - 13:56
Tammy skrifaði:
I like the slight off shoulder. Just a little skin showing. Makes it refreshing and spring weather ready.
23.12.2013 - 04:31
Maija skrifaði:
Very pretty!
19.12.2013 - 10:02Bettina skrifaði:
Romantic, elegant,refreshing, I like it!
12.12.2013 - 21:30
Malena#malenatopp |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Safran með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-22 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan 1. -3.-5. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-280-336 l á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú A.1 (= 14 l) yfir allar l (= 16-20-24 mynstureiningar á breiddina). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 32 cm, stillið af að næsta umf sé umf 13 eða 27 í mynstri A.1, prjónið þannig: A.1 yfir fyrstu 52-66-80 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt saman eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= þær síðustu 4 og fyrstu 4 l í A.1), byrjið á A.1 eftir 4 l í mynstri (ATH: Prjónið ekki 2 l slétt saman og 1 uppslátt eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir næstu 104-132-160 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt saman eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= síðustu 4 og fyrstu 4 l í A.1), byrjið á A.1 á eftir 4 l í mynstri (ATH. Ekki prjóna 2 l slétt saman og 1 uppslátt yfir fyrstu 4 l eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir síðustu 52-66-80 l. Nú hafa verið felldar af 8 l í hvorri hlið á stykki og nú eru 208-264-320 l eftir á prjóni. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 86-100-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 14 l) yfir næstu 84-98-112 l og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru fyrstu 13 umf prjónaðar 1 sinni til viðbótar JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 5 l (ATH: Prjónið nú sléttprjón yfir síðustu l í A.1 áður en fellt er af) í hvorri hlið á stykki (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 76-90-104 l á prjóni. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sömu hringprjóna nr 3 eins og fram- og bakstykki = 360-444-528 l. Prjónið nú þannig – byrjið við miðju að aftan í 14. umf: A.1 (= 14 l) yfir næstu 42-56-70 l, A.2 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 1. prjónamerki eftir 9 l, A.3 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 2. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 3. prjónamerki eftir 9 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 4. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 84-112-140 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 5. prjónamerki eftir 9 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 6. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l A.2 JAFNFRAMT er 7. prjónamerki sett eftir 9 l, A.3 JAFNFRAMT er 8. prjónamerki sett eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir síðustu 42-56-70 l. Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – þannig: Fækkið um 1 l á undan 1.- 3.-5. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2.- 4.-6. og 8. prjónamerki í annarri hvorri umf frá réttu (= 8 l færri) alls 28-35-42 sinnum = 136-164-192 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í næst síðustu umf er fækkað um 20-40-58 l jafnt yfir þannig að það verða 116-124-134 l á prjóni. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og ermasauma. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #malenatopp eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.