Ragnhild skrifaði:
Jeg skal strikke denne boleroen til min datter. Bruker pinne nr 2 men klarer ikke få ermene trange som på bildet. 98 masker gir en en utrolig vid erme, og det ser mer ut som midt over skulderen, enn nederst på ermet. Er det noen som har erfaringer som kan hjelpe?
27.04.2014 - 20:15DROPS Design svaraði:
Vrangborden gør at arbejdet trækker sig sammen, så antal masker stemmer! God fornøjelse!
28.04.2014 - 08:48
Tomm skrifaði:
Hallo, verstehe ich die Muster richtig: die Reiehen sind mal eine Hin-Reihe dann eine Rück-Reihe? zB.beim Muster A.1 stricke ich die Hin-Reihe mit den Umschlägen+Abheben, die 2. Zeile des Musters ist dann die Rückreihe,und die 3. Reihe ist dann schon wieder mit Umschlägen? Herzlichen Dank im Voraus
13.03.2014 - 15:46DROPS Design svaraði:
Liebe Tomm, ja das ist richtig. In unseren Diagrammen wird jede Reihe dargestellt.
17.03.2014 - 12:17
Jette Bjærge skrifaði:
Tak for svar. Måske i også skulle kikke på en bedre forklaring på slutribben rundt om hele stykket. Det er ikke til at forstå hvad I mener mht til udtagningen af vrang masker. Når jeg nærstudere billedet ser det ud som om udtagningerne er foretaget på hver sin side af mønsteret, men det ikke det der står i teksten. Bedste hilsner Jette Bjærge
05.03.2014 - 21:11DROPS Design svaraði:
Hej Jette. Det er ikke tydeligt at se paa billedet, men der er taget ud i hver tredje vrang-rapport. Ved 7 cm skal du tage ud igen, denne gang forskyder du - altsaa du tager den vrang-rapport med 2 m ved siden af den med 3, saa du naar er faerdig har 2 vrang-rapporter med 3 vr ved siden af hinanden med 1 vrang-rapport med 2 vr imellem.
07.03.2014 - 11:10
Jette Bjærge skrifaði:
Jeg er igang med denne opskrift. Jeg er i tvivl om jeg skal fortsætte A 8 med 22 masker i glat med 1 vrang på retsiden hver 4. pind til jeg har gjort A4 og A5 færdig og derefter fortsætte med B8 når A4 erstattes af A6 og A5 af A7 MVH Jette Bjærge
16.02.2014 - 22:58DROPS Design svaraði:
Hej Jette. Du skal fortsaette med A.8b naar du har strikket A.8a, strik b 1 gang og fortsaet da med c. Kan godt forstaa din forvirring, saa vi skal nok lige skrive det lidt om.
21.02.2014 - 10:50
Nicole Grund skrifaði:
Ich habe 135 Maschen für den Arm aufgenommen. Ich finde das Bündchen ziemlich weit. Bei anderen Strickmustern mit langen Armen werden nur so um die 40-60 Maschen aufgenommen. Bevor ich jetzt weiter stricke würde ich gerne wissen, ob es wirklich 132 Maschen sind. Vielen Dank :-)
27.01.2014 - 19:49DROPS Design svaraði:
Liewbe Nicole, die Maschenzahl ist auch beim Originalmodell so - durch das Muster zieht sich das Strickstück stark zusammen.
28.01.2014 - 07:57Sarah Guthrie skrifaði:
Love the shape of this and the interesting combination of stitches,would look great over a dress on a chilly English evening.
08.01.2014 - 20:13
Emilia skrifaði:
è favoloso
28.12.2013 - 12:29Jyotsna skrifaði:
I LOVE THIS PATTERN .CAN YOU GIVE ME THIS PATTERN FOR ME?
16.12.2013 - 19:46
Elis skrifaði:
Very pretty! I wish the underarms would fit better.
12.12.2013 - 21:08
Kris skrifaði:
This one better make it in, its kinda like the one in the winter patterns that didnt make it,its beautiful.
12.12.2013 - 17:54
Lemon Shrug#lemonshrugbolero |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-14 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 2 hlutum, neðst framan á ermi og að miðju aftan á baki. Síðan eru þessi 2 stykki saumuð saman við miðju aftan á baki. Að lokum er prjónaður upp kantur/stroff í kringum opið á jakkanum. HÆGRI HLIÐ: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með byrjun neðst framan á ermi. Fitjið upp 98-115-132 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 med Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, síðan * 2 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 1 sinni og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * A.1 (= 11 l), A.2 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, síðan A.1 (= 11 l) alls 1 sinni, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað í 5 cm (stykkið mælist ca 15 cm). Nú er A.3 prjónað í stað A.1 (A.2 heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 50 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * A.4 (= 11 l), A.8 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3 sinnum, ** A.4 (= 11 l), A.5 (= 6 l) **, endurtakið frá **-** alls 3-3-4 sinnum og endið á A.4 1 sinni og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.4/ A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 196-237-268 l á prjóni og stykkið mælist ca 12 cm frá prjónamerki. Prjónið nú A.6 í stað A.4 og A.7 í stað A.5 (teikning A.8 heldur áfram þannig: Prjónið A.8b 1 sinni og haldið síðan áfram með A.8c). Þegar A.8b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 204-249-280 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 17-19-21 cm frá prjónamerki, setjið fyrstu 110-136-155 l á prjóni frá réttu á þráð (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn) = hægra framstykki. Nú eru 94-113-125 l eftir fyrir bak. Setjið 1 nýtt prjónamerki (hér á hliðarsaumurinn að vera saumaður saman) og haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir bak-l. Þegar stykkið mælist 2-2-3 cm frá prjónamerki eru settar 10 l alls 5 sinnum á þráð frá neðst niðri á baki og upp yfir hnakka í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umf frá röngu – l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráð til að þurfa ekki að klippa frá) = 44-63-75 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og setjið til baka allar l af þræði á prjóninn JAFNFRAM er umf prjónuð frá réttu = 94-113-125 l. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir = 104-123-135 l. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Setjið fyrstu 48-59-63 l efst í hnakka á þráð (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir 56-64-72 l á prjóni JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 56-64-72 l sl ( frá miðju á baki að kanti að neðan), snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl frá neðri kanti þar til 2 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. við miðju á baki), snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 54-62-70 l sl, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl frá neðri kanti þar til 4 l eru eftir á prjóni, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 52-60-68 l sl, snúið við. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl frá neðri kanti þar til 6 l eru eftir á prjóni, snúið við. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón einungis yfir 2 síðustu l neðst á bakstykki = 56-64-72 umf garðaprjón. Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar 104-123-135 l (einnig l af þræði) áður en fellt er af. Stykkið er nú prjónað að miðju á baki, þ.e.a.s. hálfa leið. VINSTRI HLIÐ: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri hlið, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að þegar l á framstykki eru settar á þráð, er það gert frá röngu (í stað frá réttu) og þegar l eru settar á þráð á baki er það gert í byrjun á hverri umf frá réttu (í stað frá röngu). FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann upp að prjónamerki við 50 cm, saumið síðan hliðarsauma, þ.e.a.s. haldið áfram með ermasaum þannig að hlið á framstykki er saumað við hlið á bakstykki upp að prjónamerki. Saumið saum á baki. STROFF: Prjónið upp l meðfram opi á jakka – þ.e.a.s. upp með hægra framstykki, aftan við hnakka, niður meðfram vinstra framstykki og síðan meðfram hrygglínu þannig: Prjónið upp frá réttu ca 340 til 380 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 2,5 og prjónið í hring þannig: Prjónið 1 umf br, prjónið nú 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir í 390-416-468 l. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið A.3 (= 11 l), 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er aukið út í 3. hverri br einingu í 3 l br = 420-448-504 l. Endurtakið útaukningu þegar kanturinn mælist 7 cm, en færið til útaukninguna þannig að nú eru 2 br mynstureiningar með 3 l br á milli hverra 2 l br = 450-480-540 l. Þegar kanturinn mælist 8 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til þess að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja eða 12. hverja l, uppslátturinn er felldur af eins og l. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonshrugbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.