Irma Pèrez skrifaði:
En el modelo 151-36, es correcto la cantidad de material (125 a225 gms)?
07.08.2013 - 02:58DROPS Design svaraði:
Hola Irma ! Si, la cantidad es correcta. Esta calidad de hilo pesa muy poco.
08.08.2013 - 09:48
Christine skrifaði:
Die auch! Die Stricknadeln klappern schon vor Ungeduld...
02.07.2013 - 23:55
Marilyn skrifaði:
I love this pattern.
01.07.2013 - 20:22Jenny skrifaði:
Me gusta este modelo, me gustaria ver el patron....
30.06.2013 - 23:37
Reinhilde skrifaði:
Onweerstaanbaar ! Zowel model als garen ! Super !!
30.06.2013 - 17:50
Christine skrifaði:
Das ist mein Favorit, allerdings mit (3/4-) langen, schmalen Ärmeln. Danke auch für die Farbe. Die sind ein wichtige Kaufhilfe. Nur auf den Modellfotos kann ich mir einen Eindruck machen, wie eine Farbe verarbeitet aussieht. Deshalb bitte mehr bunte Modelle.
29.06.2013 - 12:26Eugenia skrifaði:
Precioso, quiero el patron
27.06.2013 - 04:00
Courcimault skrifaði:
L'anti-jersey, ce doit etre un bonheur à tricoter!
25.06.2013 - 09:24Silvia skrifaði:
Fantastic model with a right difficulty !Easy to wear ..
22.06.2013 - 20:59
Strickrubin skrifaði:
Super, freue mich auf die Anleitung!!
18.06.2013 - 19:16
Ruby Tuesday#rubytuesdaycardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk með köðlum, stroffi og stuttum ermum. Stærð S-XXXL
DROPS 151-36 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 9, 14, 19 og 24 cm. STÆRÐ M: 10, 15, 20 og 25 cm. STÆRÐ L: 11, 16, 21 og 26 cm. STÆRÐ XL: 7, 12, 17, 22 og 27 cm. STÆRÐ XXL: 8, 13, 18, 23 og 28 cm. STÆRÐ XXXL: 9, 14, 19, 24 og 29 cm. ÚRTAKA-1: Þegar 2 l eru eftir á undan mynstri A.1 er fækkað um 1 l með því að prjóna 2 l saman. Ef önnur l er sl prjónið 2 l slétt saman. Ef önnur l er br prjónið 2 l br saman. ÚRTAKA-2: Eftir mynstur A.2 er fækkað um 1 l með því að prjóna 2 l saman. Ef fyrsta l er sl prjónið 2 l slétt saman. Ef fyrsta l er br prjónið 2 l br saman. ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að innanverðu við allar l í garðaprjóni (þ.e.a.s. kantur að framan + útauknar l fyrir kraga). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan öllu l í garðaprjóni þannig: Ef önnur l er sl prjónið 2 l slétt saman. Ef önnur l er br prjónið 2 l br saman. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 miðju brugðnu lykkjur við miðju að aftan frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br (= miðju-l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. fyrsta útaukna lykkjan er prjónuð sl frá röngu (snúin fyrsta skiptið) og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu, þær 2 næstu sl frá röngu og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu o.s. frv.). ÚTAUKNING-2: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ÚTAUKNING-3: Aukið út um 1 l á eftir einni l br á eftir kanti að framan á hægra framstykki og á undan einni br l á undan kanti að framan á vinstra framstykki frá réttu. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. að fyrsta útaukna l er prjónuð sl frá röngu (snúin fyrsta skiptið) og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu, þær 2 næstu sl frá röngu og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu o.s. frv.). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 78-86-94-102-110-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum af Kid-Silk. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7-8-9-11 sinnum, 1 l br, A.1 (= 16 l), 2 l br, A.2 (= 16 l), 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7-8-9-11 sinnum og endið á 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff og mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-12-12 cm byrjar tilfæringin á köðlunum í A.1 og A.2. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan A.1, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA-1, prjónið A.1 yfir 16 næstu l eins og áður, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA-2 og prjónið þær l sem eftir eru í stroffi eins og áður. Haldið áfram með stroff og mynstur eins og áður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað að utan verðu við A.1 og A.2 og aukið út að innan verðu við A.1 og A.2 eins og útskýrt er frá að ofan, í stærð S + M +L: Í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 14-18-22 sinnum og í stærð XL + XXL + XXXL: Í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 26-30-38 sinnum. Eftir síðustu tilfæringu kemur til með að vera 7 l á milli kaðla í A.1/A.2 og garðaprjón á kanti á ermum. Eftir síðustu tilfæringu er haldið áfram með stroff og mynstur beint upp án úrtöku og útaukningu hvoru megin við kaðla. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l á hvorri hlið fyrir kant á ermum – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 12 sinnum til viðbótar (= alls 13 sinnum í hvorri hlið) = 104-112-120-128-136-152 l. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 16-16-16-20-20-20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og stroff eins og áður JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í næstu umf frá hálsi = 43-47-51-53-57-65 l eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið á hinni öxlinni á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið LAUST upp 45-49-53-57-61-69 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 6 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum af Kid-Silk. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, A.2 (= 16 l), 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7-8-9-11 sinnum og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff og mynstur fram og til baka – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-12-12 cm byrjar tilfæring á kaðli í A.2. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l br, aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING-3, prjónið A.2 yfir 16 næstu l eins og áður, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og prjónið þær l sem eftir eru í umf með stroffi eins og áður. Haldið áfram með stroff og mynstur eins og áður JAFNFRAMT er aukið út að innan verðu á A.2 (við kant að framan) og fækkið að utan verðu við A.2 alveg eins og á bakstykki. Eftir síðustu tilfæringu kemur til með að vera 7 l á milli kaðals í A.2 og garðaprjóns á kanti á ermi og stroffið og mynstrið heldur áfram beint upp án útaukninga og úrtöku. KANTUR Á ERMAR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er sett 1 prjónamerki í hlið. Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir kant á ermum og aukið er út í lok hverrar umf frá réttu eins og á bakstykki. SJALKRAGI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm er aukið út um 1 l fyrir sjalkraga innan við síðustu kantlykkju við miðju að framan – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 3-3-5-5-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-6-6-8-8 sinnum), síðan í 4. hverri umf alls 3 sinnum í öllum stærðum og að lokum í 8. hverri umf alls 3 sinnum í öllum stærðum = 10-10-12-12-14-14 l fleiri fyrir kraga og 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón alls. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA-3. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 3-3-3-5-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-6-6-6 sinnum) og síðan í 4. hverri umf alls 5 sinnum í öllum stærðum. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 59-63-69-71-77-85 l á prjóni. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umf frá röngu er fellt af síðustu 43-47-51-53-57-65 l á öxl, Prjónið sl út umf yfir 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir þessar l fyrir kraga (með byrjun frá miðju að framan) þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf einungis yfir síðustu 10-10-12-12-14-14 l (við miðju að framan) *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm lengst inn þar sem er minnst, fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið A.1 (í stað fyrir A.2). Fækkið á undan A.1 eins og útskýring í ÚRTAKA-1 og aukið út á undan síðustu br l á undan kanti að framan eins og útskýringu í ÚTAUKNING-3. Aukið út fyrir kant á ermum í byrjun á hverri umf frá réttu (í stað lok hverrar umf frá réttu). Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af fyrir öxl í byrjun á umf frá réttu (í stað frá röngu), prjónið sl út um yfir þær 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón og prjónið stuttar umf yfir kraga-l eins og á hægra framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan( passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður), og saumið kragann niður við hálsmál aftan við hnakka innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju frá prjónamerki við handveg og niður. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rubytuesdaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.