Jolande skrifaði:
Hej, som jag skrev som kommentar blev mina vantar väääääldigt liten efter tvättning på 40 grader.Vågar inte testa igen på fin program, vad är er erfarenhet?
22.10.2013 - 12:21DROPS Design svaraði:
Men om du blötlägger vantarna igen, så kan du forma dom till rätt storlek med dina händer. Man kan dra ganska mycket i tovat garn :)
23.10.2013 - 10:26
Jolande skrifaði:
I knitted them and was eager to see how they were after felting in the washing machin. What a dissapointment. They were really quite big before washing, and efter washing a size that will suit a 6 year old child..... and yes I washed colourprogram 40 degrees. So be carefull! I don't think I will try again
20.10.2013 - 20:39DROPS Design svaraði:
Dear Jolande, in felting, machine and spin can make big differences, but also the detergent you use, or if using noone. You may rather like to make first a try on the most gentle setting and step it up. Happy knitting!
22.10.2013 - 18:26
AnnetteM. skrifaði:
Die sind ja mal schön und bestimmt richtig warm dabei!
18.06.2013 - 15:23
Marthe Sveen Edvardsen skrifaði:
Tova votter, varmer best om vinteren
03.06.2013 - 18:55Susan Barton skrifaði:
These look fun is the yarn ready felted or do you felt them on completion either way they look fun trendy and warm
02.06.2013 - 01:51
Ea skrifaði:
Mollig warme Gute-Laune-Faeustlinge
01.06.2013 - 13:24I Parsons skrifaði:
Just right, colourful and will be quick to make
30.05.2013 - 20:11Hettybell skrifaði:
Hope this one makes it to the final i will make these
30.05.2013 - 16:53
Candy Crush Gloves#candycrushgloves |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr DROPS Big Delight
DROPS 151-23 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna. Allur vettlingurinn er prjónaður í sléttprjóni. VETTLINGUR: Fitjið upp 52-52-56 l á sokkaprjóna nr 5,5 með DROPS Big Delight. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 8 cm þá er fækkað um 8 l jafnt yfir = 44-44-48 l. Þegar stykkið mælist 15-16-17 cm er sett 1 merki í 22.-22.-24. l í umf (= merki fyrir þumalfingur). Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við l með merki, endurtakið í annarri hverri umf alls 6-7-8 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 56-58-64 l. Eftir síðustu útaukningu eru útauknar lykkjur + lykkja með merki + 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur settar á þráð fyrir þumalfingur = 15-17-19 þumallykkjur. Fitjið upp 3 l fyrir aftan þumallykkjur = 44-44-48 l. Stykkið mælist ca 21-23-25 cm. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir þessar l. Þegar stykkið mælist 34-37-41 cm eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 = 22-22-24 l. Þegar stykkið mælist 36-39-43 cm eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 einu sinni til viðbótar = 11-11-12 l eftir á prjóni. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALFINGUR: Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 5,5 og prjónið upp 5 l við 3 útauknar lykkjur á hönd = 20-22-24 l. Prjónið í hring á sokkaprjóna í sléttprjóni. Þegar þumalfingurinn mælist ca 6-6-6,5 cm frá viki við þumalfingur er fækkað um 4-4-6 l jafnt yfir (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l slétt saman) = 16-18-18 l. Í næstu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir = 12-14-14 l. Þegar stykkið mælist 8,5–8,5–9 cm eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 = 6-7-7 l. Þumalfingurinn mælist nú frá viki við þumalfingur: 9-9-9,5 cm. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsaum á vettlingnum yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan vettling á sama hátt. ÞÆFING Á VETTLINGI: Til að koma í veg fyrir að þumalfingurinn þæfist saman er vettlingnum snúið við og festur er lítill plastpoki / silkiborði efst í þumalinn með öryggisnælu – opið á öryggisnælunni á að snúa upp að þumalfingrinum svo auðveldara sé að fjarlægja næluna síðar. Snúið vettlingnum við þannig að hann þæfist með réttuna út og plastpokinn / silkiborðinn sé innan í þumalfingrinum. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík. Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candycrushgloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.