F Schilstra skrifaði:
T boven stukje mag van mij wel wat minder stijf.wat minder hoog dicht, en de schouderstukken veel smaller.dan zou ik hem willen maken.
13.12.2012 - 14:05
Angelika skrifaði:
Lizzy
13.12.2012 - 11:21
Tetsje skrifaði:
Heel mooi, deze ga ik zeker maken
13.12.2012 - 10:24
Elisabetta skrifaði:
Bella maglietta elegante
12.12.2012 - 14:04
Sabine skrifaði:
Something nice for the summer
12.12.2012 - 11:31
Astrid Hediger skrifaði:
Exklusiv schön
11.12.2012 - 16:13
Jocelyne skrifaði:
Vagabonde
10.12.2012 - 21:07Veronika skrifaði:
Da kommt Afrikafeeling auf -
10.12.2012 - 21:03
Susanne skrifaði:
Gillar att det inte sitter tajt.
10.12.2012 - 20:01
Michaela skrifaði:
Sehr schön ich liebe so ein sommer teilchen freue mich auf die anleitung
10.12.2012 - 19:20
Yasmin#yasmintunic |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Hekluð tunika úr DROPS Cotton Viscose með gatamynstri, kanti að neðan og fiðrildi til skrauts. Stærð S-XXX
DROPS 148-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (á við um hálsmál og handveg): Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda st sem fækka á. Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Snúið við þegar sá fjöldi st er eftir sem fækka á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í 2 hlutum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Heklið 141-160-178-197-216-234 ll með Cotton Viscose með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja af næstu 6-4-8-6-4-8 ll , * hoppið yifr 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 121-137-153-169-185-201 fl. Haldið áfram með mynstur A.1 þannig: Mynsturteikning a yfir fyrstu 9 fl, mynsturteikning b þar til 8 fl eru eftir, mynsturteikning c yfir þær (= 15-17-19-21-23-25 mynstureiningar alls í umf). Endurtakið 4 umf í mynstri A.1 þar til stykkið mælist ca 32 cm – endið eftir umf 4 í mynstri. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú eftir mynstri A.2 einu sinni á hæðina. Þegar A.2 er lokið eru 92-104-116-128-140-152 st í umf. Haldið áfram með 1 st í hvern st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af fyrir handveg í hverri umf í hvorri hlið þannig – SJÁ ÚRTAKA: Fækkið um 4 st 1 sinni, 3 st 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 st 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 st 1-3-4-4-5-4 sinnum í hvorri hlið = 82-86-90-94-98-102 st eftir í umf. Þegar stykkið mælist 53-54-56-57-59-60 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli og hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig. FYRRI ÖXL: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 28-30-31-33-34-36 st í annarri hliðinni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við hálsmál í hverri umf: Fækkið um 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 2 sinnum = 19-21-22-24-25-27 st eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, klippið frá. SEINNI ÖXL: Heklið á sama hátt og fyrri öxl. BAKSTYKKI: Heklið eins og framstykki að úrtöku fyrir handveg = 82-86-90-94-98-102 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm. Heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig þannig: Heklið 1 umf með st yfir fyrstu 21-23-24-26-27-29 st, snúið við, fækkið um fyrstu 2 st og heklið út umf, klippið frá. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið hliðarsauma kant í kant svo að saumurinn sjáist sem minnst. BYLGJULAGA KANTUR AÐ NEÐAN: Heklið í fl-umferðina neðst niðri á fram- og bakstykki (með byrjun í annarri hliðinni) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 3: Heklið 2 fl, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 4: Heklið 2 fl, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 5: Heklið 2 fl, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 6: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 2 fl + 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) + 2 fl. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM HANDVEG OG HÁLSMÁL: Byrjið við miðju að aftan á hálsi og við miðju undir handveg. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir ca ½ cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 2: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 1 fl + 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) + 1 fl. Klippið frá og festið enda. SILKIBORÐI: Þræðið inn silkiborða efstu gataumferðina undir berustykki – byrjið og endið í vinstri hlið að framan og hnýtið litla slaufu. FIÐRILDI – TIL SKRAUTS: VÆNGIR: Heklið 15 ll meðheklunál nr 3. Allar umf eru heklaðar frá réttu. UMFERÐ 1: Heklið 3 3-tbst í 6. ll frá heklunálinni, 1 ll, 1 st í næstu ll, 2 ll (í umf 2 er byrjað að hekla hér), 2 3-tbst í næstu ll, 1 3–tbst í næstu ll, 3 ll, 1 kl í næstu ll, 3 ll (í umf 3 er byrjað að hekla hér), 1 3-tbst í næstu ll, 2 3-tbst í næstu ll, 1 ll, 1 st í næstu ll, 2 ll, 3 3-tbst í næstu ll, 5 ll, 1 kl í síðustu ll. Klippið frá og festið enda. UMFERÐ 2: Byrjið á að hekla 1 kl í aðra af þeim 2 ll frá fyrri umf (sjá umf 1), 1 ll, í næstu 3-tbst er heklað þannig: Heklið 1 hst og 1 st, í næsta 3-tbst er heklað þannig: Heklið 1 st (í umf 4 er byrjað að heklað hér), 1 ll, 1 tbst og 1 st, í næsta 3-tbst er heklað þannig: Heklið 1 st og 1 hst, 1 ll, 1 kl í 1. af þeim 3 ll frá fyrri umf. Klippið frá og festið enda. UMFERÐ 3: Byrjið á að hekla 1 kl í þriðju af þeim 3 ll frá umf 1 (sjá umf 1), 1 ll, í næstu 3-tbst er heklað þannig: Heklið 1 hst og 1 st, í næstu 3-tbst er heklað þannig: Heklið 1 st (í umf 5 er byrjað að hekla hér), 1 tbst, 1 ll, 1 st í næstu 3-tbst er heklað þannig: Heklið 1 st og 1 hst, 1 ll, 1 kl í 1 ll frá umf 1. Klippið frá og festið enda. UMFERÐ 4: Byrjið með að heklað 1 kl í st frá umf 2 (sjá umf2), 1 ll, í næsta tbst er heklað þannig: Heklið 1 fl, 1 ll og 1 fl, 1 ll, 1 kl í næsta st. Klippið frá og festið enda. UMFERÐ 5: Byrjið með að hekla 1 kl í st frá umf 3 (sjá umf 3), 1 ll, í næsta tbst er heklað þannig: Heklið 1 fl, 1 ll og 1 fl, 1 ll, 1 kl i næsta st. Klippið frá og festið enda. BÚKUR: Heklið með tvöföldum þræði þannig: Heklið 6 ll, 2 fl í 2. ll frá heklunálinni (= höfuð). Klippið frá og festið enda. Saumið búkinn á vængina með höfuðið upp á milli stóru vængjanna. Að lokum er hekluð umf með kl meðfram kantinum á stóru vængjunum. Saumið fiðrildið fast vinstramegin á berustykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #yasmintunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.