Joyce Roche skrifaði:
On row 14, just after finishing first corner, it says skip 2 sc, (1dc in each of next 3 sc, skip 1 sc.) Shouldn't there be a chain 1 when you skip a sc? otherwise it is bunching up. Directions have been easy to follow but this part doesn't make sense. Thank you for your help.
15.02.2020 - 18:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Roche, there is no chain stitch between each group of 3 dc - just make sure your stitches are wide enough, on next round (= last round on square), you will crochet 3 dc between each 3-dc-group from round 14. But feel free to crochet 1 chain stitch there if it helps you. Happy crocheting!
17.02.2020 - 08:51
Fanny Navarro skrifaði:
Soy principiante gracias por sus enseñanzas seria de gran ayuda el tutorial
20.10.2019 - 07:57
Lucie skrifaði:
Skvělý návod, děkuji - taška vypadá moc hezky :-)
01.08.2019 - 07:04
Diane Bureau skrifaði:
Hi, I have just finished making this beautiful bag and now I am trying to figure out how to do the strap. I have no idea what a plait braid is so I went to youtube to find some answers but can't seem to find one. So I started using another flat braid technique, which I would be ok with but your instructions tell you to cut 18 strands, divide into 3 sections with 6 strands a piece. Then it tells you to make two plait braids, what am I supposed to do with the other 6 strands? 6 strands left.
18.07.2019 - 16:08DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Bureau, you are making a total of 2 plaits, with each plait made of 18 strands (3 sections of 6 threads). Happy crocheting!
19.07.2019 - 07:24
Stephanie Powell skrifaði:
Can I substitute Sugar n Cream yarn for the yarn listed in the pattern?
05.07.2019 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dear Stephanie, the DROPS patterns are written and made available free to support the DROPS yarns. I hope you will understand that we cannot help you with substitutions of yarns made by other companies. However, you should always make a swatch, check gauge and make necessary changes accordingly. Happy Crafting!
07.07.2019 - 17:17
Barbara skrifaði:
Can you tell me please the actual shade of the pink bag.
23.06.2019 - 16:03DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, in fact I am not sure which "pink" do you mean - this bag is all crochet with off white. But you can choose your favorite colour from actual color shade of DROPS Paris - here . Happy crocheting!
23.06.2019 - 16:46
Diane Garwood skrifaði:
On pattern Jude the bag states crochet in two layers. Does this mean two strands of yarn. The yarn is doubled?
08.06.2019 - 13:15DROPS Design svaraði:
Dear Diane, the yarn is not doubled, you work with just one strand. Two layers only means two layers of leaves in central flower. Happy crocheting!
08.06.2019 - 20:09Ilana Siaxate skrifaði:
Can I make this pattern to sell online for charity?
16.06.2018 - 07:20DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Siaxate, you will find all relevant informations under our copyright at the very bottom of the page. Happy crocheting!
18.06.2018 - 08:03
Sofia Broborg skrifaði:
På varv 14 står det efter **: "upprepa från (-) totalt 6 ggr" men varken - eller (-) finns i texten... Vad är det som ska upprepas just där? Senare står att man ska upprepa *-* men avsluta sista rep vid **
21.01.2018 - 15:00DROPS Design svaraði:
Vid (-) ska du upprepa det som står inom parenteserna, vid *-* ska du upprepa det som står mellan stjärnorna och sedan avsluta den sista rapporten vid de två stjärnorna **.
22.01.2018 - 17:53
Marika skrifaði:
Vad är måttet på den färdiga axelremmen enligt er beskrivning? Jag vill gärna använda väskan "cross-over" så den måste vara tillräckligt lång.... Tack för underbart mönster!
05.10.2015 - 09:43DROPS Design svaraði:
Hej Marika, har tyvärr inte måttet, men tror det räcker fåor "cross-over". Lycka till!
05.10.2015 - 15:15
Jude#judebag |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Paris með axlaról úr fléttum
DROPS 146-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll og umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf. Í byrjun umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll og umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er að hekla blóm í 2 lögum sem síðar heldur áfram út og myndar ferning. HEKLAÐUR FERNINGUR MEÐ BLÓMI: Sjá mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með Paris og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið * 1 fl um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 3 ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 1 kl, 5 st og 1 kl = 3 blöð. Snúið við – næsta umf er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið 1 fl í kringum fyrstu fl í umf 1, 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri við miðju á fyrsta blaði frá umf 2, * 4 ll, heklið 1 fl í kringum næstu fl frá umf 1, 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri við miðju á næsta blaði frá umf 2 *, endurtakið frá *-* þar til alls hafa verið heklaðir 5 ll-bogar, endið á 4 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 6 ll-bogar. Snúið við – næsta umf er hekluð frá framhlið á blómi. UMFERÐ 4: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 1 kl, 6 st og 1 kl = 6 blöð. Snúið við – næsta umf er hekluð frá bakhlið á blómi. UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, 1 fl í miðjan botninn á 1. blaði, * 5 ll, 1 fl í miðjan botninn á næsta blaði *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið umf á 5 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 6 ll-bogar. Snúið við – næsta umf og eftirfarandi umf eru heklaðar frá framhlið á blómi. UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), 7 st um sama ll-boga, heklið nú 8 st um hvern ll-boga, endið umf á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 48 st. UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hvern st frá fyrri umf, endið umf á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 48 fl. UMFERÐ 8: Heklið 4 ll (jafngilda 1 hst + 2 ll), hoppið yfir 1 fl, * 1 hst í næstu fl, 2 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 24 hst með 2 ll á milli hverra. UMFERÐ 9: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 kl í 5. ll frá heklunálinni, 1 fl um næsta ll-boga, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga, ** 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** alls 3 sinnum, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar á 1 kl í kl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). UMFERÐ 10: Heklið 1 kl um 5 ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), um sama ll-bogann er heklað 4 st + 3 ll + 5 st (= 1 horn), * 1 fl um næsta ll-boga, 2 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, um næsta 3-ll-boga er heklað 3 st + 1 ll + 3 st, 2 ll, ** hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga, um 5-ll-boga er heklað 5 st + 3 ll + 5 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 11: Heklið kl að ll-boga í miðju á fyrsta st-hóp í horni. Heklið 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll), 1 fl um sama ll-boga, * 6 ll, 1 st í næstu fl, 5 ll, 1 fl um ll í miðju næsta st-hóp, 5 ll **, 1 st í næstu fl, 6 ll, um ll-boga í miðju á st-hóp í horni er heklað 1 fl + 3 ll + 1 fl *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 1. ll í byrjun umf. UMFERÐ 12: Heklið 1 kl um ll-boga í horni, 3 ll (jafngilda 1 st) 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, * 6 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga, 4 st um næsta ll-boga, 6 st um næsta ll-boga **, um ll-bogann í horni er heklað 3 st + 3 ll + 3 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 13: Heklið kl að ll-boga í horni, 1 ll, 5 fl um sama ll-boga, heklið nú 1 fl í hvern st og 6 fl um ll-boga í hverju horni umf hringinn, endið umf á 1 kl í ll í byrjun umf = 128 fl. UMFERÐ 14: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st í hvora af næstu 2 fl, 3 ll, 1 st í hverja af næstu 3 fl (= horn), * hoppið yfir 2 fl (1 st í hverja af næstu 3 fl, hoppið yfir 1 fl) **, endurtakið frá (-) alls 6 sinnum, 1 st í hverja af næstu 3 fl, 3 ll, 1 st í hverja af næstu 3 fl (=horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 15: Heklið kl að ll-boga í horni, 3 ll (jafngildir 1 st) 2 st + 3 ll + 3 st um sama ll-boga, heklið nú 3 st á milli hverra st-hópa og 3 st + 3 ll + 3 st um ll-boga í hverju horni, endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Heklið nú fram og til baka einungis yfir eina hlið á ferningnum (= efst á töskunni) þannig: UMFERÐ 1: Heklið kl fram að miðjan ll-boga í horni, snúið við, 3 ll (jafngilda 1 st), 2 st um sama ll-boga, heklið nú 3 st á milli hverra st-hópa frá fyrri umf og endið á 3 st um ll-boga í horni, snúið við = 10 st-hópar. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), heklið nú 3 st á milli hverra st-hópa þar til heklaðir hafa verið 9 st-hópar, endið umf á 1 ll og 1 st í síðasta st í umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 ferning með blómi til viðbótar. Leggið saman 2 ferninga með röngu á móti röngu og heklið þá saman meðfram þremur hliðum (þ.e.a.s. ekki er heklað meðfram einni hliðinni með 2 auka umf og heklað er í samtímis í gegnum báða ferningana) þannig: Heklið 1 kl í síðustu l, 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l, * 1 ll, 1 fl á undan næsta st-hóp, 1 ll, 1 fl í miðju st í st-hóp *, endurtakið frá *-* meðfram 3 hliðum á tösku (þar sem ferningarnir lengdust = op efst á tösku). Heklið nú aflíðandi kant í kringum opið á tösku með 1 fl í hverja l alla leiðina hringinn. AXLARÓL MEÐ FLÉTTUM: Klippið 18 þræði Paris ca 2 m og leggið þræðina saman. Gerið lausan hnút ca 30 cm inn frá endanum. Skiptið löngu þráðunum í 3 hluta með 6 þráðum í hverjum hluta og fléttið saman þar til ca 30 cm eru eftir, gerið lausan hnút á endann. Fléttið aðra fléttu eins (það þarf ca 1 dokku af Paris fyrir 2 fléttur). Leysið hnútana á hvorum enda, leggið 2 flétturnar saman. Takið annan þráð og vefjið fast utan um 2 flétturnar (ca 30 cm inn frá endanum), festið þráðinn vel (þessar 2 fléttur eru nú fastar saman). Takið nýjan þráð og vefjið fast utan um flétturnar alveg eins og áður í hinum endanum, festið þræðina vel. Saumið 2 fléttur í hvora hlið á töskunni, festið endann vel. Klippið þræðina í lengd eftir eigin ósk. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #judebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.