Wahlgrenis skrifaði:
Name: Light Blue Dream
14.12.2012 - 15:49
Eva skrifaði:
Name: Lake blue
13.12.2012 - 20:06
Janne Mikalsen skrifaði:
Sjøgløtt
12.12.2012 - 20:45
Eva skrifaði:
Skøn
12.12.2012 - 19:11
Daniela skrifaði:
Semplice ma d'effetto
12.12.2012 - 14:59
Kristina skrifaði:
Säger bara en sak - sol, sommar bad och ljusa nätter - med en sån tröja på
12.12.2012 - 11:25
Jutta skrifaði:
Ein sehr schoenes Modell, ausgesprochen wandelbar und tragbar fuer jede Figur und jedes Alter. Toll
12.12.2012 - 08:43
Wenche Whiting skrifaði:
Lekker på en kjølig sommerkveld!
11.12.2012 - 22:48
Catherine skrifaði:
Très raffiné.
11.12.2012 - 18:47
Maarit skrifaði:
Kaunis malli ja ihana väri!
11.12.2012 - 13:58
Donna#donnasweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Heklað er eftir mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA: Snúið við þegar 1 st er eftir = 1 st færri. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 1 st + 1 ll aukalega í síðasta st í hvorri hlið. Útauknar lykkjujr eru heklaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Bakstykkið er heklað fram og til baka. Bakstykkið er heklað 6 cm lengra en framstykki. Heklið eina umf með 88-94-102-110-120-130 LAUSUM ll (mikilvægt er að ll séu lausar svo að kanturinn verði ekki of stífur) með heklunál nr 4 með Cotton Light. Snúið við og heklið 1 st í 6. ll frá heklunálinni (A.1A hefur nú verið heklað – sjá mynsturteikningu í mynstri). Heklið A.1B yfir næstu 80-86-94-102-112-122 ll og endið á A.1C í 2 síðustu ll. Haldið nú áfram að hekla eftir A.2B þar til 2 st/ll eru eftir, heklið A.2C = 85-91-99-107-117-127 st. Haldið áfram með A.2 til loka. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir byrjun á handveg). Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm heklið ekki yfir miðju 27-29-31-33-35-37 st = 29-31-34-37-41-45 st eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú hekluð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.2, klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm – ATH! Bakstykkið á að vera 6 cm lengra en framstykki – þess vegna verður lengdarmælingin misjöfn. Heklið nú þannig: Heklið A.2A, endurtakið A.2B þar til 2 st/ll eru eftir, heklið A.2C = 85-91-99-107-117-127 st. Haldið áfram með A.2 til loka. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir byrjun á handveg). Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm heklið ekki yfir miðju 23-25-27-29-31-33 st. Heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig, jafnframt er fækkað um 1 st í hverri umf við hálsmál alls 2 sinnum – lesið ÚRTAKA = 29-31-34-37-41-45 st eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með A.2, klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. ERMI: Ermin er hekluð fram og til baka. Heklið eina umf með 48-48-50-52-54-56 LAUSAR ll (mikilvægt er að ll séu lausar svo að kanturinn verði ekki of stífur) með heklunál nr 4 með Cotton Light. Snúið við og heklið 1 st í 6. ll frá heklunálinni (A.1A hefur nú verið heklað). Heklið A.1B yfir næstu 40-40-42-44-46-48 ll og endið á A.1 C í 2 síðustu ll = 45-45-47-49-51-53 st/ll. Haldið nú áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 7-5-4½-3½-3½-3 cm millibili 5-7-8-9-9-10 sinnum til viðbótar (alls 6-8-9-10-10-11 útaukningar) = 57-61-65-69-71-75 st/ll. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 49-48-47-46-44-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í – frá öxl og niður að prjónamerki á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt, endið þegar 26 cm eru eftir á bakstykki og 20 cm á framstykki = klauf. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #donnasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.