Nathalie Rocar skrifaði:
Veste classe avec les poches à revers, parfaite pour toutes les occasions
13.12.2012 - 15:10
Barbora Podholová skrifaði:
Krásné
12.12.2012 - 13:55
Kristina skrifaði:
Dress up med en underbart mjuk kofta
12.12.2012 - 11:24
Marie Danneels skrifaði:
Vrouwelijk en mooi !
12.12.2012 - 10:01
Michele skrifaði:
Magnifique,classique et indémodable
12.12.2012 - 07:36
Camilla skrifaði:
Bris alt sommarbris
11.12.2012 - 23:45
Gitte skrifaði:
Elegant
11.12.2012 - 16:51
Maes skrifaði:
Zeer elegant
11.12.2012 - 16:45
Catherine skrifaði:
COCO Clin d’œil à la "veste culte" de Coco Chanel...
11.12.2012 - 11:10
Elisabeth skrifaði:
Så vacker jacka! Den vill jag gärn sticka till våren. Namnförslag: Coco
11.12.2012 - 10:55
Mariah#mariahcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-6 |
|
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir gat. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn. ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagati þegar 2 umf eru eftir í kanti að framan á undan hálsmáli. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 11, 19, 28, 36 og 45 cm. STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm. STÆRÐ L: 2, 12, 21, 30, 39 og 48 cm. STÆRÐ XL: 2, 12, 21, 31, 40 og 50 cm. STÆRÐ XXL: 2, 12, 22, 32, 42 og 51 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 13, 23, 33, 43 og 53 cm. ---------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 64-70-78-86-96-106 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út um 1 l í hvorri hlið þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4½-4½-5½-5½ cm millibili, 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar = 80-86-94-102-110-120 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 1 l til merkingar fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 78-84-92-100-108-118 l. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 22-22-22-24-24-24 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 26-29-33-36-40-45 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm og prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 36-39-43-47-52-57 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón nr 4,5 með BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið sléttprjón, en 1 kantlykkja í hlið og 4 kantlykkjur við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Aukið út um 1 l í hlið þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4½-4½-5½-5½ cm millbili, 7-7-7-7-6-6 sinnum til viðbótar = 44-47-51-55-59-64 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 1 l til merkinga fyrir handveg, fellið af í byrjun næstu umf frá réttu. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið 9-9-9-10-10-10 l á þráð fyrir hálsmáli (setjið lykkjur á þráðinn í lok umf frá réttu án þess að prjóna þær). Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli (þ.e.a.s. frá röngu): Fellið af 2 l 2 sinnum, 1 l 4 sinnum = 26-29-33-36-40-45 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm og prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-40-42-44-44-46 l (meðtalin er 1 kantlykkja á hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-7-7-7-7 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 7½-6-6-5-4-3½ cm millibili, 5-6-6-7-8-9 sinnum til viðbótar = 50-54-56-60-62-66 l. Þegar stykkið mælist 48-47-46-44-43-41 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af, stykkið mælist ca 49-48-47-45-44-42 cm. VASALOK: Fitjið upp 18-18-18-20-20-20 l á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 5-5-6-6-7-7 cm, fellið af. Prjónið annað vasalok til viðbótar. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 75 til 80 l í kringum hálsmál meðtaldar l á þræði að framan með hringprjónum nr 4,5. Prjónið 4 umf slétt og fellið af með sl frá röngu. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Staðsetjið vasa á framstykki ca 9-10-11-12-13-14 cm frá neðri brún og 8-9-10-11-12-13 cm frá miðju að framan (mátið flíkina og staðsetjið vasa eftir eigin ósk), saumið vasalokið í efsta kantinn með lykkjuspori. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mariahcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.