CRISTINA RUBIO skrifaði:
Sensación de comodidad y calidez
18.01.2013 - 16:01
Jessicaleijnse skrifaði:
Mooi wacht op het patroon! ;-)
17.01.2013 - 12:43
Mirella Demarchi skrifaði:
Tutti i modelli sono belli e originali
17.01.2013 - 07:09Louise skrifaði:
Super beau modèle, j'adore le détail au crochet à la cheville est très joli
09.01.2013 - 19:05
Carine skrifaði:
Bieder
09.01.2013 - 16:58
Adamczyk B. skrifaði:
Wie schon gesagt ich liebe Socken diese auch
06.01.2013 - 21:34Pilar skrifaði:
Para este invierno esta perfecto, muy coquetos
02.01.2013 - 15:53
Birgitta skrifaði:
Kan man tänka sig en sval sommarkväll.
01.01.2013 - 22:02
Virpi skrifaði:
Nimiehdotus: Henna
01.01.2013 - 19:07
Ruth Ahlert skrifaði:
Superschick diese Häkelsocken, auch die Farbzusammenstellung.Edel. Eine tolle Kombination mit der Häkelkante und den Blüten. Möchte ich unbedingt häkel. Dankeschön dafür.
01.01.2013 - 10:02
Annabelle#annabelleslippers |
|
|
|
Heklaðar tátiljur úr DROPS Nepal. Stærð 35-43.
DROPS 148-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll og umf endar með 1 kl í þrjiðju ll. Fyrsta fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 ll og umf endar með 1 kl í fyrstu ll. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 lykkju með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næstu fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu fl alveg eins, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. RENDUR: Klippið ekki þráðinn með litnum natur frá, látið hann fylgja með stykkinu, hinir litirnir eru klipptir frá við litaskipti. 1 umf með ljós grágrænn og fl, 1 umf með grágrænn og fl, 1 umf með natur og st, 1 umf með grágrænn og fl, 1 umf með ljós grágrænn og fl, 1 umf með natur og st, 1 umf með gallabuxnablár og fl, 1 umf með millibláur og fl, 1 umf með natur og st, 1 umf með milliblár og fl, 1 umf með gallabuxnablár og fl, 1 umf með natur og st, Endurtakið þessar 12 umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá tá, að hæl, síðan er heklað upp við ökkla. TÁTILJA: Heklið 5 ll með litnum natur með heklunál nr 4 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 12 st um ll-hringinn – byrjun umf = miðja undir fæti. UMFERÐ 2: * Heklið 1 st í fyrsta sl, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 st. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 st. UMFERÐ 4 (skiptið yfir í litinn milliblár): Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu 3 st, 2 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 5 (skiptið yfir í litinn blár): Heklið * 1 fl í hverja fl, en aukið út um 4-6-10 fl jafnt yfir = 34-36-40 fl. UMFERÐ 6 (skiptið yfir í litinn natur): Heklið 1 st í hverja fl. Haldið áfram með RENDUR - lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 12-13-15 cm, endið eftir 2 umf með fl, klippið frá. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðju l í umf, þ.e.a.s. eftir 17-18-20 st. Haldið á stykkinu þannig að táin snú að ykkur og teljið 4 l til vinstri á undan þræði, byrjið að hekla héðan frá réttu með litnum natur og st. Heklið þar til 6 l eru eftir alls 6 fl í umf (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki við miðju ofan á fæti), snúið við. Haldið áfram með rendur eins og áður – heklið 1 kl í fyrsta st, síðan fl þar til 1 st er eftir, snúið við. Heklið nú fram og til baka yfir þær 26-28-32 l sem eftir eru þar til stykkið mælist alls ca 21-23-26 cm – stillið af að næsta umf sem verður hekluð sé umf með litnum natur og st. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í hverja og eina af fystu 11-12-14 fl, heklið nú 4 næstu st saman 2 og 2 – lesið ÚRTAKA, heklið nú 1 st í hverja og eina af síðustu 11-12-14 fl. Klippið frá. Leggið tátiljuna saman og saumið saman kant í kant við miðju að aftan. LEGGUR: Byrjið við miðju að aftan og heklið 40-42-44 st með litnum grágrænn jafnt yfir í kringum opið efst á tátiljunni. Haldið áfram hringinn með st þar til heklaðar hafa verið alls 6 umf. Í næstu umf er aukið út um 8-9-10 st jafnt yfir = 48-51-54 st. Heklið nú kant sem heklaður er yfir legginn við ökkla. Til þess að útkoman verð sem best er stykkinu snúið við og heklað er áfram frá röngu. UMFERÐ 1: * Heklið 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, í stað síðustu fl endið með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Byrjið með 1 fl í kringum toppinn á fyrsta picot, heklið nú * 1 picot, festið með 1 fl í kringum toppinn á næsta picot *, endurtakið frá *-* umf hringinn en í stað síðustu fl endið með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn natur og heklið eins og umf 2. Brjótið saman 5 efstu umf niður við ökkla. BLÓM: Heklið 3 blóm: Heklið 1 blóm með litnum natur, 1 blóm með litnum milliblár og 1 blóm með litnum gallabuxnablár. Heklið þannig: Heklið 5 ll, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Næsta umf er hekluð þannig: * 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), 1 fl um ll-hringinn *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar = 6 blöð. Klippið frá. Saumið blómin þrjú niður öðru megin við ökkla. Heklið aðra tátilju á sama hátt, en saumið blómin niður í gagnstæða hlið við ökkla. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #annabelleslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.