Eivor Fransson skrifaði:
Mycket trevlig
01.01.2013 - 18:40
Happy skrifaði:
Werde ich bestimmt stricken, macht schön schlank.
24.12.2012 - 22:12
Liisukka skrifaði:
Nimi: viljapellon viileys
19.12.2012 - 13:05June skrifaði:
Good name for this one: A New Slant
16.12.2012 - 07:51
Marie Danneels skrifaði:
Geeft een heel afslankend effect; mooi !
12.12.2012 - 10:03
Andrea skrifaði:
1ooo und 1 Nacht
11.12.2012 - 22:57Mary skrifaði:
Diagonal stripes are always flattering
11.12.2012 - 18:46
Catherine skrifaði:
Gracille ? Jolie ligne épurée et structurée... "Le gilet de l'été" à enfiler partout et sur tout.
10.12.2012 - 19:30
Elisabeth skrifaði:
Ja meget spændende lækker flor farve
10.12.2012 - 18:35
Melissa Gisiger skrifaði:
Spændende sommerjakke :-)
10.12.2012 - 18:24
Valentina#valentinacardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónað vesti úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris og DROPS Lace prjónað hornrétt. Stærð S - XXXL
DROPS 146-29 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Prjónið mynstur þannig: 10 umf Bomull Lin eða Paris 4 umf Lace Endurtakið þessar 14 umf, látið endana fylgja með stykkinu. ATH! Lace verður að prjóna laust svo að prjónfestan verði sú sama og í Bomull-Lin/Paris. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vestið er prjónað í 4 hlutum. Örvar í mynstri sýna prjónastefnu. Allt vestið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA – ef prjónfestan heldur sér ekki, kemur það til með að hafa áhrif á útlitið! Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 3-3-4-4-4-4 l á hringprjóna nr 6 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið GARÐAPRJÓN og MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta) JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna 2 l í fyrstu l í öllum umf þar til 47-51-56-62-66-72 l eru á prjóni. Fækkið um 1 l í byrjun umf frá miðju að framan (frá réttu) með því að prjóna 2 fyrstu l slétt saman. Endurtakið úrtöku í byrjun hverrar umf frá réttu til loka. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram í hliðum eins og áður með því að prjóna 2 l í fyrstu l í hverri umf frá röngu (lykkjufjöldinn kemur þá til með að haldast stöðugur) þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – mælt beint upp meðfram hlið á vesti (ekki í prjónastefnu) – sjá mynsturteikningu. ERMI: Setjið 1 prjónamerki í hlið. Fitjið nú upp nýjar l í lok hverrar umf frá réttu (þ.e.a.s. í hlið) fyrir ermi þannig: Fitjið upp 6 nýjar l í hlið alls 4 sinnum (= 24 l fleiri). Setjið 1 nýtt prjónamerki í hlið. ATH: Munið eftir að úrtaka við miðju að framan heldur áfram eins og áður alla leið til loka = alls 67-71-76-82-86-92 l á prjóni. Eftir síðustu útaukningu fyrir ermi heldur útaukning áfram í hlið eins og áður (þ.e.a.s. prjónið 2 l í fyrstu l í hverri umf frá röngu). Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá síðasta prjónamerki (mælt beint upp meðfram hlið) fellið nú af fyrir öxl þannig: Prjónið 2 síðustu l í lok hverra umf frá réttu slétt saman þar til 29-31-32-34-36-38 l eru eftir í umf (þ.e.a.s. fellt er nú af bæði í byrjun og lok hverrar umf frá réttu, ekki er aukið út lengur frá röngu). VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Öll úrtaka / útaukning sem var gerð eins og útskýrt er í byrjun umf er nú gerð í lok umf og öfugt. BAKSTYKKI: Bakstykkið er prjónað í 2 hlutum og saumað saman við miðju að aftan. HÆGRA BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki. Þegar 35-35-36-36-36-36 l eru eftir er prjónað til loka með Bomull-Lin eða Paris. Haldið áfram með úrtöku þar til allar l hafa verið felldar af/fækkað. Setjið 1 prjónamerki á öxl 13,5-15-15-16,5-17-17,5 cm inn frá miðju að aftan (merkir hálsmál). VINSTRA BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki. Þegar 35-35-36-36-36-36 l eru eftir er prjónað til loka með Bomull-Lin eða Paris. Haldið áfram með úrtöku þar til allar l hafa verið felldar af/fækkað. Setjið 1 prjónamerki á öxl 13,5-15-15-16,5-17-17,5 cm inn frá miðju að aftan (merkir hálsmál). FRÁGANGUR: Leggið saman bakstykkin kant í kant og saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan yst í lykkjubogann. Saumið axlarsauma kant í kant lengst út á ermi að prjónamerki við hálsmál í hvorri hlið. ERMALÍNING: Prjónið upp 60-63-66-69-72-75 l meðfram kanti lengst út á ermi (bæði frá fram- og bakstykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka með Bomull-Lin eða Paris í 4 cm. Fellið af. Endurtakið á sama hátt á hinni erminni. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann (svo að saumurinn verði ekki of þykkur). KANTUR AÐ NEÐAN: Prjónið upp 132-144-156-174-186-204 l meðfram kanti að neðan á vestinu (framstykki og bakstykki). Prjónið garðaprjón með Bomull-Lin eða Paris í 4 cm. Fellið af. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant með Bomull-Lin eða Paris með heklunál nr 5 kringum op á vesti þannig: Heklið fl upp meðfram hægra framstykki, í kringum hálsmálið og niður meðfram vinstra framstykki. Snúið við og heklið til baka þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrstu fl, * 1 ll, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-*. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í vinstra framstykki, efsta talan 1 cm undir hálsmáli, sú neðsta ca 30 cm frá neðri kanti. Saumið tölur sem eftir eru með jöfnu millibili á milli efstu tölu og þá neðstu. Hneppið tölum í heklaða kantinn. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #valentinacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.