Anne skrifaði:
Is this pattern knitted flat? Or in the round? I’m guessing flat
11.10.2023 - 17:33DROPS Design svaraði:
Hi Anne, these little socks are knitted in the round on set of double pointed needles. Happy knitting!
11.10.2023 - 17:55
Tournelle Ghislaine skrifaði:
Pour le modèle KRINGLE TOES la quantité de laine préconisée est-elle pour 4 chaussettes ou pour 24 chaussettes ( total pour un calendrier de l'avent) ? Merci de me répondre.
10.10.2020 - 23:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tournelle, la quantité de laine indiquée permet de réaliser les 4 chaussettes présentées. Bon tricot!
12.10.2020 - 08:06
Gro skrifaði:
Hvor lange blir disse strømpene? Vet at de ikke er til å ha på foten, men skulle gjerne visst om de kan brukes som julestrømpe eller om de blir for små.
09.11.2015 - 11:08DROPS Design svaraði:
Hej. Du hittar måtten längst ner på oppskriften. Lycka till!
11.11.2015 - 09:23
Kathleen skrifaði:
Hallo, komt er geen adventskalender dit jaar? Ik keek er altijd weer geweldig naar uit om het vakje te openen... Groetjes en proficiat met alle leuke ontwerpen!
28.11.2013 - 18:43DROPS Design svaraði:
Hoi Kathleen. Jawel, er komt zoals altijd een kalender :-) Hij is vandaag op de site gezet - klik hier - en zondag gaat het eerste luikje open!
29.11.2013 - 17:35
Christy skrifaði:
I've started the heel decrease on this super cute sock. It doesn't seem to be working out. This is a new heel decrease for me. Maybe I'm doing it wrong
07.12.2012 - 03:17Tora skrifaði:
Detta är dekorationsföremål!
02.12.2012 - 08:38
Ulla skrifaði:
Super søde - opskriften svarer til hvilken størrelse???
02.12.2012 - 00:57DROPS Design svaraði:
Der er ingen størrelse. Det er til en kalender / dekoration - ikke til at tage paa.
03.12.2012 - 10:59
M. Fluit skrifaði:
Wat is de maat van de sokjes van het kalenderpatroon van 1 december?
01.12.2012 - 21:08DROPS Design svaraði:
Er is geen maat. Dit zijn calendersokjes, voor decoratie, niet om te dragen
03.12.2012 - 10:59
Cindy skrifaði:
The socks are darling! I am looking forward to the new patterns to come. Thank ypu so much DROPS!
01.12.2012 - 17:23
Martine skrifaði:
Adorables
01.12.2012 - 10:25
Kringle Toes#dropskringletoes |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir jólasokkar úr DROPS Karisma. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-855 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 til A-4. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækkar um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR 1: Fitjið upp 56 á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið * 2 l sl, 2 l br * í 2 cm. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 48 l. Skiptið yfir í litinn grár, prjónið nú eftir A-1. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm. Í næstu umf er haldið eftir fyrstu 12 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjón með litnum vínrauður fram og til baka yfir 24 hællykkjur í 5 cm. Setjið nú 1 prjónamerki í mitt stykkið. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 10 l með litnum ljós grár hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 56 l. Prjónið nú sléttprjón hringinn og A-1. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12 cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjón og með litnum vínrauður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin: Á UNDAN prjónamerki: 2 l sl saman. Á EFTIR prjónamerki: 2 l snúnar sl saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 10 sinnum = 16 l eftir á prjóni. Prjónið allar l saman 2 og 2 = 8 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. SOKKUR 2: Fitjið upp 56 á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Karisma. Prjónið * 2 l sl, 2 l br * í 2 cm. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 48 l. Skiptið yfir í litinn vínrauður, prjónið nú eftir A-2. Haldið áfram í sléttprjón og rendur þar til stykkið mælist 10 cm – endið eftir 3 umf með litnum vínrauður. Í næstu umf er haldið eftir fyrstu 12 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjón og með litnum ljós grár fram og til baka yfir 24 hællykkjur í 5 cm. Setjið nú 1 prjónamerki í mitt stykkið. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 10 l með litnum natur hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 56 l. Prjónið nú sléttprjón hringinn og A-2 eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12 cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin: Á UNDAN prjónamerki: 2 l sl saman. Á EFTIR prjónamerki: 2 l snúnar sl saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 10 sinnum = 16 l eftir á prjóni. Prjónið allar l saman 2 og 2 = 8 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. SOKKUR 3: Fitjið upp 56 á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum natur DROPS Karisma. Prjónið * 2 l sl, 2 l br * í 2 cm. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 48 l. Skiptið yfir í litinn vínrauður, prjónið nú eftir A-3. Þegar A-3 hefur verið prjónað er prjónað með litnum vínrauður til loka. Haldið áfram þar til stykkið mælist 10 cm. Í næstu umf er haldið eftir fyrstu 12 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir 24 hællykkjur í 5 cm. Setjið nú 1 prjónamerki mitt í stykkið. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 10 l hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 56 l. Prjónið nú sléttprjón hringinn og A-1. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12 cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá á hvoru megin við bæði prjónamerkin: Á UNDAN prjónamerki: 2 l sl saman. Á EFTIR prjónamerki: 2 l snúnar sl saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 10 sinnum = 16 l eftir á prjóni. Prjónið allar l saman 2 og 2 = 8 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. SOKKUR 4: Fitjið upp 56 á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum vínrauður DROPS Karisma. Prjónið * 2 l sl, 2 l br * í 2 cm. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 48 l. Skiptið yfir í litinn grár, prjónið nú eftir A-4. Þegar A-4 hefur verið prjónað er haldið áfram með litnum ljós grár. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10 cm. Í næstu umf er haldið eftir fyrstu 12 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12 l á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum vínrauður fram og til baka yfir 24 hællykkjur í 5 cm. Setjið nú 1 prjónamerki í mitt stykkið. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 10 l með litnum ljós grár á hvoru megin við hæl og 24 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 56 l. Prjónið nú sléttprjón með litnum ljós grár. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 12 cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 28 l bæði ofan á fæti og undi fæti. Haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin: Á UNDAN prjónamerki: 2 l sl saman. Á EFTIR prjónamerki: 2 l snúnar sl saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 10 sinnum = 16 l eftir á prjóni. Prjónið allar l saman 2 og 2 = 8 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropskringletoes eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-855
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.